Menntamál - 01.12.1964, Blaðsíða 83
MENNTAMÁL
225
kaupi. Nemur sá mismunur fyrra árið kr. 15.00 á hverja
kennslustund og kr. 17.07 seinna árið.
Greiddir verða 7% vextir p. a. frá 1. júlí 1961 til 30. júní
1962 og frá þeim tíma til ársloka 1964.
Ríkissjóður greiðir málskostnað.
Haldið verður eftir 5% af heildarútborgun hvers kenn-
ara vegna kostnaðar.
Farið er að vinna að útreikningum, og verður því verki
hraðað, eftir því sem tök eru á.
Stjórn S. í. B. vill vekja athygli kennara á, að geti þeir
ekki vegna fjarlægðar eða af öðrum ástæðum nálgast sjálfir
þessar greiðslur, verða þeir að gefa ákveðnum aðila skrif-
legt umboð til að veita þeim viðtöku fyrir sína hönd. Stjórn
S. í. B. er fús til að annast þessa fyrirgreiðslu fyrir þá, sem
þess óska. Þarf þá viðkomandi kennari að taka fram, hvort
hann vill heldur leggja upphæðina inn í bankabók á sitt
nafn eða láta senda sér hana. Ber í þessu efni að snúa sér
til skrifstofu S. í. B., Þingholtsstræti 30, Reykjavík. Póst-
hólf 616.
Hinn 29. nóv. s. 1. var kölluð saman í Reykjavík for-
mannaráðstefna Sambands íslenzkra barnakennara sam-
kvæmt eindregnum áskorunum S. B. R. Ráðstefnuna sóttu
fulltrúar frá öllum svæðasamböndum S. í. B. að Kennara-
sambandi Vestfjarða undanskildu.
Rætt var m. a. um ástand og horfur í kjaramálum stétt-
arinnar í sambandi við það fræðslu- og menningarhlut-
verk, sem hún er sett til að gegna í þjóðfélaginu. Fram kom
í ræðum manna einróma og mikil óánægja með núverandi
launakjör barnakennara.
Ráðstefnan taldi, að þótt kennarar hefðu með kjaradómi
3. júlí 1963 hlotið nokkrar launabætur í bili, væru þær nú
að engu orðnar sökum lnaðvaxandi dýrtíðar.
Bent var í þessu sambandi á þá staðreynd, að réttinda-
lausum mönnum heldur enn áfrarn að fjölga í kennara-
stöðum. Veldur þar mestu um, að stór hópur þeirra, sem
15