Menntamál - 01.12.1964, Blaðsíða 23
MENNTAMÁL
165
Noregur.
Atvinnumálaráðuneytið fer með yfirstjórn starfsfræðsl-
unnar í landinu, en framkvæmd hennar skiptist á milli
sveitarstjórnar- og atvinnumáladeilda ráðuneytisins.
Sérstiik nefnd fer með mál, er snerta samstarf við skól-
ana (Samordningsnemda for yrkesrettleiing), skipuð full-
trúum skóla- og atvinnumálaráðuneyta, og ráðgert hefur
verið að bæta í nefndina fulltrúum atvinnuveitenda og
launþega.
Samkvæmt lögum frá 1960 er landinu skipt í ákveðin
vinnumiðlunarumdæmi (arbejdsformidlingsdistrikter). í
hverju umdæmi er ein aðalskrifstofa, sem stjórnar vinnu-
miðluninni. Þar starfa starfsfræðsluráðunautar, sem stjórna
starfsfræðslunni í umdæminu. Heimilt er að hafa samstarfs-
nefndir í hverju umdæmi, er vinni að samstarfi um starfs-
fræðslu.
Eftir þessari skipan eiga 76 ráðunautar að vinna við
starfsfræðsluna. Allir hafa þessir ráðunautar fullan vinnu-
dag og skrifstofuhjálp eftir þörfum. Laun þessara manna
eru nokkru hærri en laun kennara við barna- og gagn-
fræðaskóla.
Til þess að geta íengið stöðu sem ráðunautur við starfs-
fræðslu, verður viðkomandi að hafa uppeldis- eða sálfræði-
nrenntun (kennari, félagsráðgjafi, sálfræðingur) að við-
bættri staðgóðri þekkingu á atvinnulífi landsins og hafa auk
þess reynslu sem kennari og leiðbeinandi. Auk þess verða
‘Tllir að ganga í gegn um sérstaka þjálfun og allstrangt nám.
Náminu er hagað á þann veg, að fyrst koma tvö 4 vikna
námsskeið, síðan 1—2 ár í starfi með sjálfsnámi og síðast
•Titur 4 vikna námsskeið, og eru þeir þá fullgildir ráðu-
nautar, sem lokið hafa þessu námi.
Með lögum um barnafræðslu (Lov om folkeskolen) frá
10. apríl 1959 er ákveðið, að starfsfræðsla skuli vera skyldu-
námsgTein í norskum skólum. Kennarar eiga að annast