Menntamál - 01.12.1964, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL
185
notaður við Linear progröm. Við tungumálanám eru not-
aðar vélar, sem einnig taka upp munnleg svör nemandans
og svara þeim bæði munnlega og með prentuðum texta.
Rafmagnsheilar eru notaðir við flóknari hagnýting kennslu-
véla í sambandi við notkun kyrrmynda, kvikmynda, sjón-
varps og segulbands við einstaklings- og hópkennslu sam-
tímis. En allt er þetta enn á tilraunastigi.
Nú kann ýmsum að finnast, að P. I. boði ekki svo ýkja
margt nýtt, ef lrá eru skilin hin nýtízkulegu tæknibrögð vél-
menningarinnar við uppsetning námsefnisins; hér sé byggt
á ævagömlu lögmáli allrar fræðslu, sem sé því að láta hvert
atriði byggjast á öðru, hjálpa hverjum einstökum nemanda
og örva til sjálfstæðra athugana, beizla athygli nemenda í
kennslustundum, veita þeim tækifæri til upprifjunar og
hrósa þeim fyrir góða frammistöðu. Víst er þetta ekkert nýtt.
En eitt helzta vandamál þeirra, sem fást við kennslu í stór-
nm bekkjum eða námshópum, er að koma þessum ágætu
grundvallarreglum við, þegar kennt er á hefðbundinn máta.
Engum vafa virðist undirorpið, að með kennslutækni P. I.
er mun auðveldara að mæta þörfum hvers einstaklings, þrátt
íyrir fjölda nemenda í bekkjum.
Ef kennslutækni þessi á að ná tilgangi sínum.varðar miklu
að til alls undirbúnings sé vandað af vísindalegri þekking
°g nákvæmni. Enda þótt þannig sé því einnig varið með allt
námsefni, svo sem fyrirlestra eða kennslubækur, þá er um
að ræða talsverðan mun á vinnubrögðum. Venjulegur fyrir-
lestur eða kennslubók í algengri námsgrein veitir nemand-
anum sjaldan nægilega þjálfun í að vinna í rökréttu sam-
hengi með viðfangsefnið, fylgjast af athygli með því, sem
Sagt er eða skrifað stendur, velta fyrir sér dæmum, prófa
sjálfan sig í því, sem farið hefur verið yfir, draga saman
heildarpunkta kennslunnar og rifja upp. Vandalaust er Jrað'
Eestum kennurum að finna næg dæmi Jjess, að vel undir-
huin og vel framkvæmd hópkennsla fari fyrir ofan garð
°8 neðan lijá nemendum. Jafnvel umræður um ákveðin við-