Æskan - 01.12.1972, Síða 25
Næstbezti kór í heimi?
Þa3 er ekki svo fjarri lagi að spyrja þessarar spurningar,
vegna þess að þetta er mynd af karlakórnum FÓST-
BRÆÐRUM. Á alþjóðlegu kóramóti, sem haldið var i
Wales siðastliðið sumar, hlaut hann önnur verðlaun í
keppni við 80 kóra, sem til mótsins komu víðsvegar að
úr heiminum. Söngstjóri Fóstbræðra er Garðar Cortes, og
er hann fyrir miðju á myndinni, sem tekin var f ferðinni.
Garðar Cortes.
GARÐARCORTES
Karlakórinn Fóstbræður hefur nú starfað óslitið ( 60 ár,
en samt hafa ekki stjórnað honum nema 4 menn. Sá, sem
það gerir núna, er Garðar Cortes, en hann er Reykviklngur,
fæddur árið 1940, sonur Kristjönu Jónsdóttur og Axels
Cortes.
Að loknu gagnfræðaskólanámi hélt Garðar til Englands,
þar sem hann stundaði ýmiss konar vinnu á tfmabili.
Síðan hóf hann nám f söngstjórn og tónlistarkennslu og
lauk prófum frá Royal Academy of Music 1967 og frá
Trinity College of Music. Eftir helmkomuna hefur Garðar
kennt söng og tónlist við Tónllstarskólann á Seyðisfirði og
Réttarholtsskólann f Reykjavfk, stjórnað Þjóðleikhúskórnum
og hljómsveit.
Síðastliðið vor stjórnaði Garðar uppfærslu á barnaóperu
Benjamíns Britten, Nóaflóði, f Bústaðaklrkju.
Garðar er sjálfur góður söngmaður og hefur hann oft
sungið opinberlega.
Kvæntur er Garðar enskri konu sem Krystina heitir, og
er hún píanóleikari. Þau eiga eina dóttur barna. Aðra
dóttur á hann, sem heitir Sigrún Björk og orðin stálpuð;
hún á heima á Blönduósi.
23