Æskan - 01.12.1972, Síða 78
Sigurður Helgason
Keppti fyrst í príprautinni ■
Ólympíukeppandi
Meðal keppenda Islands á Ólympiuleik-
unum í Munchen var 17 ára stúlka að nafni
Lára Sveinsdóttir. Lára er fædd í Reykja-
vik 22. ágúst 1955 og er dóttir hjónanna
Jóhönnu Ingólfsdóttur og Sveins Sigurðs-
sonar að Hrisateigi 43.
Lára hóf íþróttaferil sinn með þátttöku í
þriþraut FRÍ og ÆSKUNNAR haustið 1968,
þá 13 ára gömul. Hún keppti þá fyrir
Laugalækjarskóla, en þar stundaði hún
gagnfræðanám.
I þessari fyrstu keppni sinni stökk hún
1.35 i hástökkl og komst [ úrslitakeppnina,
sem haldin var að Laugarvatni vorið 1969.
Hún sigraði þar í sinum aldursflokki og
stökk aftur 1.35 m í hástökkinu.
Lára gekk siðan i Glimufélagið Ármann
og hefur oft keppt með því félagi síðan
undir handleiðslu þjálfara þess, hins góð-
kunna íþróttamanns Valþjarnar Þorláks-
sonar, sem eitt sinn var meðal beztu stang-
arstökkvara í Evrópu og Norðurlandameist-
ari í tugþraut. Lára æfði mest hlaup og
stökk. Framfarir hennar voru miklar, en
þó mestar á síðastliðnu sumri. Þá marg-
bætti hún m. a. (slandsmetið í hástökki og
stökk hæst 1.69 I landskeppnl íslendinga
við Norðmenn, Svía og Finna, sem háð
var í Mo í Rana í Norður-Noregi. Hún slgr-
aði glæsilega í þeirri grein og einnig í
100 m grindahlauþi og langstökki.
Með þessu afreki sínu i hástökkinu
tryggði hún sér rétt til þátttöku í Ólympiu-
leikunum í Munchen.
Hún á nú Islandsmet i 100 m hlaupi,
12.4 sek., 100 m grindahlaupi 15.2 sek.,
hástökki 1.69 m og í fimmtarþraut 3483
stig.
í sumar
Lára er nú nemandi í Kennaraháskóla ís-
lands. Hún er iðin við nám sitt, en æfir auk
þess frjálsar íþróttir úti og inni þrisvar í
viku. Hún reykir ekki, enda segir hún, að
góður árangur í íþróttum byggisf á þrot-
lausri þjálfun og reglusemi.
Ekki sakar að geta þess, að systir Láru,
Sigrún Sveinsdóttir, hóf einnig keppni í
frjálsum íþróttum með þátttöku i þríþraut-
inni haustið 1968. Hún er aðeins 16 ára
gömul, en á samt (slandsmet í 200 m
hlaupi, 25.9 sek.
Vafalaust hefðu margar ungar stúlkur
viljað vera í sporum Láru Sveinsdóttur á
Ólympíuleikunum í sumar og sjá allt, sem
þar fór fram. Það eru 4 ár til næstu Ólymp-
íuleika og því möguleiki fyrir þær stúlkur,
sem vilja feta í fótspor hennar að komast
þangað.
76