Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 34
24
MORGUNN
Saga Assýríumanna og Babýlóníumanna hinna fornu
leiðir oss þessar staðreyndir fyrir sjónir í mörgum mynd-
um. Medar og Persar þekktu þessi fyrirbæri, í öðrum
menningarríkjum fomaldarinnar í Austur-Asíu voru þau
alkunn, og Gamia-testamentið er fullt af frásögum, sem
sýna oss, hve ríkan sess þessi fyrirbæri hafa skipað í and-
legu lífi Gyðinganna. Sama staðreyndin verður enn fyrir
oss, ef vér leitum vestur um haf til hinna fornu menning-
arþjóða, sem lifðu í Ameríku áður en vestrænir menn tóku
sér fasta búsetu þar, Aztekanna og Inkanna í Perú. Og í
hinu stórmerka menningarlífi Forn-Egypta voru hin sál-
rænu fyrirbæri alþekkt og prestastétt þessarar merkilegu
þjóðar bjó vafalaust yfir furðulegri þekking á sálrænum
lögmálum og furðulegu valdi yfir þeim. Þá verða þessar
staðreyndir enn fyrir oss í ríkara mæli, er vér horfum til
þeirrar þjóðarinnar, sem glæsilegri menning átti en nokk-
ur hinna, en það em Forn-Grikkir. Hinir merkustu og
ágætustu menn þjóðarinnar voru sterktrúaðir á spádóma
og bendingar frá öðrum heimi, og flestallir vitrustu heim-
spekingar, sagnaritarar og skáld þessarar furðulegu smá-
þjóðar voru algerlega sannfærðir um raunveruleik þess-
ara fyrirbrigða og geta þeirra þráfaldlega í ritum sínum.
Forn-Rómverjar áttu, eins og kunnugt er, Grikkjum menn-
ingu sína mjög að þakka, enda var sálræn reynsla einnig
í andlegu lífi þeirra merkilegur þáttur, eins og margir beztu
rithöfundar þeirra votta.
Hér er ekki rúm til að rökstyðja þetta nánara, en í
merkum fræðiritum er mönnum opin leið til að ganga úr
skugga um þetta, ekki sízt í hinu merkilega riti W. Howitt,
er kom út í tveim bindum og nefnist: History of the Sup-
ernatural.
Ekki ætti að þurfa að eyða löngum tíma né miklu rúmi
til þess að sýna oss, hve ríkan sess þessi fyrirbrigði skip-
uðu í andlegu lífi forfeðra vorra, norrænna manna. Til þess
er nóg að benda á bókmenntaarfinn mikla og góða, Islend-
ingasögumar, og þá Sturlungu ekki sízt, og löngum tíma