Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 39
MORGUNN
29
fimm eða sjö höggum. Frú Fox spurði nú hið ókunna afl
n°kkurra spurninga, sem öllum var svarað rétt með töl-
um, og þetta afl virtist meira að segja þekkja einkalíf henn-
ar betur en hún sjálf. Hún spurði t. d., hversu mörg böm
hún hefði átt, og þegar voru barin sjö högg. Hún neitaði
bessu og kvaðst aðeins hafa átt sex börn, en óþekkta aflið
stóð fast á sínu máli og barði aftur sjö högg. Þá minntist
fru Fox þess, að sjöunda barnið hafði fyrir löngu dáið ný-
fmtt.
1 undrun sinni kallaði Fox nú á nágrannakonu þeirra.
Hún kom og hlustaði undrandi á höggin, og hvernig þau
Sétu svarað spurningum. Fregnin barstum bæinn eins og
eldur um sinu og fólkið þusti saman inn í heimili Fox-
hjónanna. Menn voru undrun lostnir, gengu úr skugga um
staðreyndirnar, en botnuðu vitanlega ekki neitt í þessu.
Vinir þeirra tóku þær frú Fox og dætur hennar heim til
sm um nóttina, en höggin héldu áfram í húsinu engu að
siður eftir að þær voru farnar burt. Sú staðreynd sýnir,
hve fráleitt það var, sem ýmsir hugðu, að telpurnar fram-
leiddu höggin með höndum sínum eða fótum.
Lengi fram eftir nóttinni var fólk saman og hlustaði á
bessi undur í húsi Fox-f jölskyldunnar. Engum var eðlilega
hjóst. að hér höfðu gerst stórkostlegir hlutir, í raun og
Veru ákaflega einfaldir, en stórkostlegir engu að síður. 1
fyrsta sinn var hér opnuð leið, sem öllum gat verið fær,
til að ganga úr skugga um, að hinum dularfullu höggum
reðu vitsmuniun gæddar verur, sem unnt var að tala við,
bótt ekki heyrðist rödd þeirra. Hér hafði ekkert minna
^erzt en það, að ný vísindi voru fædd, viðfangsefni tekið
hi meðferðar, sem ekki allfáir af mestu vit- og vísinda-
mönnum næstu aldarinnar áttu eftir að fást við. Og braut-
lna hafði rutt 11 ára gamalt ómenntað alþýðubarn.
Lað hefir síðan orðið mörgum til ásteytingar í þessu
mali, að hin fyrsta byrjun gerðist ekki í rannsóknastof-
um vísindamannanna, heldur í fátæklegu húsi hjá um-
homulitlu alþýðufólki, að hugmyndin um að ná vitrænu