Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 82
72
MORGUNN
brigðin, varð það að fullum vinslitum þessara fornu vina,
ekki sízt, er próf. Zöllner gerðist yfirlýstur spíritisti eftir
rannsóknir sínar. En Madame d’Esperance gaf próf. Friese
slikar sannanir, að hann sannfærðist og tók þá fullum
sáttum við sinn gamla samherja og vin.
Enn gerðist það á fundum þessa frábæra miðils, að vax-
mót fengust af höndum og fótum hinna líkömuðu gesta,
en opin á þessum vaxmótum reyndust miklu minni en svo,
að unnt hefði verið að koma mannlegri hönd eða fæti í
gegn um þau.
Síðari hluta ævinnar dvaldist Madame d’Esperance að
mestu leyti í Svíþjóð, og var löngum mikið þjáð af sjúk-
dómi, sem hún hafði fengið af taugaáfalli á tilraunafundi,
þegar efagjarn maður, sem hélt, að um svik væri að ræða,
réðst að líkamningnum Yolande í Helsingfors árið 1893.
Slíku verði varð þessi ágæta kona að gjalda heimsku og
tortryggni mannanna. Þegar hún reit æviminningar sínar
á efri árum, kvað hún það huggun sína, að hún hefði varð-
að svo veginn fyrir nýrri þekkingu á þessum efnum, að
aðrir miðlar þyrftu ekki eftir sinn dag að bera þær þján-
ingar, sem hún varð að bera.
Samtímis þessum tveim konum voru uppi nokkurir á-
gætir karl-miðlar og var William Eglinton einna fremstur
þeirra.
Um ævi hans hefir J. S. Farmer einna bezt skráð í bók-
inni „Twixt Two Worlds.“ Hann var fæddur árið 1857 og
var enskur að ætt eins og Madame d’Esperance. Þegar í
æsku bar í sálrænum hæfileikum hans, og brátt fór af
honum mikið orð. Um hann stóðu lengi miklar deilur, en
víst er, að sumar ákærurnar um svik af hendi hans voru
fráleitar, og að fyrirbrigði hans voru staðfest og vottuð
af mörgum alkunnum og merkum rannsóknarnönnum-
Oftast hélt hann fundi sína í björtu Ijósi, og hann var jafn-
an fús á að leggja sig undir allar þær varúðarráðstafanir
gegn svikum, sem rannsóknamennirnir kröfðust. Hann
ferðaðist mikið um dagana, fór um mörg lönd Evrópu,