Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 58
48
MORGUNN
um sýnast hafa verið mjög sannfærandi um, að hér væru
ákveðnir framliðnir menn að verki. Lytfingafyrirbrigði
gerðust og bræðumir svifu í lausu lofti yfir höfðum fund-
armanna. Blýantur reis upp á borðinu í björtu Ijósi, án
þess nokkiu’ mannleg hönd snerti hann og ritaði kveðjur
frá látnum mönnum. Dularfull Ijós birtust í fundarher-
berginu, og létt hljóðfæri svifu um loftið meðan leikið var
á þau ósýnilegum höndum. Beinar raddir heyrðust tala
utan við miðilinn og önnur fyrirbrigði gerðust. Þeir höfðu
enn meir áhrif á almenning í Bretlandi en D. D. Home,
því að þeir seldu almenningi aðgang að fundum sínum.
En auk þess rannsökuðu margir málsmetandi menn í Bret-
landi fyrirbrigðin, sem hjá þcim gerðust. Þeir ferðuðust
til Þýzkalands, Belgíu, Rússlands, Póllands og Svíþjóðar og
vöktu geysilega athygli, og að lokum. fóru þeir alla leið til
Ástralíu. Vitanlega urðu þeir fyrir ofsóknum og mættu
harðri mótspymu, en þeir gáfu á sér meiri höggstað en
D. D. Home hafði gert. Fjöldi fólks sannfærðist um sann-
leiksgildi spíritismans fyrir starf þeirra, og þeir urðu ein-
hverjir öflugustu boðberar málefnisins á byrjunarárunum
í Bretlandi.
RANNSÓKNIR SIR WILLIAMS CROOKES.
Fram til ársins 1870 höfðu raunar margir stórmerkir og
frægir menn rannsakað miðlafyrirbrigðin, en segja má
þó, að í þeim efnum verði tímamót, þegar hinn mikils-
virti vísindamaður Sir William Crooltes, byrjar rannsóknir
sínar. Enda hafði hann hin ákjósanlegustu skilyrði til slíkra
rannsókna, þar sem til rannsókpanna buðust tveir af mik-
ilhæfustu miðlunuih, sem uppi hafa verið, þeir D. D. Home
og síðar ungfrú Cook.
Próf. W Crookes hafði hlotnast einhver mesti vísinda-
heiður aldarinnar. Vísindaféi^gin kepptust um að gera