Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 130
120
MORGUNN
Pólverjar hafa átt ágæta miðla, en í höfuðborg þeirra var
eitt merkasta ailsherjarþing sálarrannsóknanna háð. Spír-
itisminn hefir aldrei orðið útbreiddur meðal almennings
þar í landi, enda menntun almennings mjög af skornum
skammti fram til síðustu ára. En vísindalegar sálarrann-
sóknir hafa verið reknar þar af miklum myndarskap, eink-
um í Lodz og Varsjá.
Til NorðurlancLa barst hreyfingin einnig snemma á ár-
um, en hefir náð þar minni fótfestu en ætla mætti. Mun
það að verulegu leyti stafa af því, að kirkjur Norðurlanda
hafa yfirleitt verið mjög á valdi rétttrúnaðarins. Vegna
andstöðunnar frá kirkjunnar hendi hafa danskir spírit-
istar hneigzt mjög til þeirrar áttar, að stofna söfnuði með
ákveðnum trúarlegum blæ utan um málefni sitt en það
hefir fjarlægt marga, sem annars hefðu aðhyllzt mál-
efnið á hreinum vísindalegum grundvelli. I Danmörku hefir
starfað um 35 ára skeið miðillinn Einar Nielscn, sem vafa-
laust má telja fremstan allra miðla á Norðurlöndum fyrr
og síðar fyrir líkamleg fyrirbrigði, að undanskildum Indr-
iða heitnum Indriðasyni einum, Hann hefir hvað eftir
annað komið sem gestur til Reykjavíkur, svo að ekki er
ástæða til að rekja feril hans nánara hér. Hann hefir orð-
ið fyrir miklum ofsóknum, og framferði norsku rannsókna-
mannanna í Osló á sínum tíma, var fordæmt þegar í stað
af vísindamönnum í Frakklandi og Englandi. Við ströng-
ustu rannsóknarskilyrði hafa gerzt hjá honum stórfelld
líkamningafyrirbrigði, sem ekki var unnt að draga í efa,
og í margra votta viðurvist eru lyftingafyrirbrigðin hjá
honum svo sterk, að hann svífur sjálfur í lausu lofti í til-
raunaherberginu. Margt er af spíritistum í Danmörku,
mörg félög starfandi og blöð gefin út um málið, en mjög
hefir verið við ramman reip að draga og málefnið hef-ir
á síðari árum ekki átt svo duglega og metna forystumenn,
sem æskilegt hefði verið.
I Noregi var ágætismaðurinn Ludvig Dahl, bæjarfógeti,
um alllangt skeið merkisberi málsins á ritvellinum. Dótt-