Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 36
26
MÓRGUNN
í Gautaborg. Og hann hafði samband við sálir látinna
manna og reit í stórar bækur þær opinberanir, sem hann
fékk. Þá kom fram austurríski læknirinn Justinus Kerner,
einhver merkasti maður sinnar aldar, og rannsakaði hrein
nútímafyrirbrigði, sem gerðust hjá miðlinum frú Hauffé,
sem síðar er fræg undir heitinu „Sjáandinn frá Prevorst".
Hann birti niðurstöðurnar af rannsóknum sínum í bókum,
sem geysilega athygli vöktu fyrir miðja 19. öldina, þótt
enginn kynni þá að nefna nöfn eins og „sálarrannsóknir“
eða „spíritismi“, og frú Frederikka Hauffé var aðeins tal-
in sjúklingur dr. J. Kerners, þótt hún væri jafnhliða stór-
kostlegur miðill, en það nafn kunni enginn þá að nefna.
Og enn má nefna hinn síðasta af raunverulegum fyrir-
rennurum spíritisma nútímans, en það er hinn merkilegi
maður Andrew Jackson Davies, sem raunar lifði marga
áratugi eftir að spíritisminn var farinn að ná mikilli út-
breiðslu, en kom þó fram með hinar furðulegu vitranir
sínar og aðra sálræna reynslu nokkuru áður en spíritismi
nútímans kom fram.
Þannig var jarðvegurinn undirbúinn, þegar þau undur
gerðust, að vér teljum oss standa.
VIÐ VÖGGU SPÍRITISMANS.
1 smábænum Hydesville í Bandaríkjunum kvöldið 31.
marz árið 1848.
1 litlu húsi, sem síðar var flutt til borgarinnar Rochester,
skammt frá Hydesville, og er geymt þar í höfuðstöðvum
spíritismans í Ameríku til minja, bjó fátækur maður, að
nafni Fox, ásamt konu sinni og tveim dætrum, Margaret,
14 ára, og Kate, 11 ára. Börnin voru fleiri, sem farin voru
að heiman, en við sögu spíritismans kemur ekkert þeirra
nema dóttirin Leah, sem farin v£ir að vinna fyrir sér með
hljómlistarkennslu í borginni Rochester. Fjölskyldan. var
methodista-trúar og virðist hafa haft á sér gott orð, og