Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 86
76
MORGUNN
BREZKA SÁLARRANNSÓKNAFÉLAGIÐ.
34 ár höfðu liðið frá því, er fyrstu fyrirbrigðin gerðust
í húsi Fox-fjölskyldunnar í Hydesville, baráttan hafði ver-
ið hörð og á ýmsu hafði gengið, en sú stórkostlega breyt-
ing var orðin á, að allmargir af mestu vitringum aidarinn-
ar töldu sig ekki lengur geta gengið þegjandi fram hjá mál-
inu, og nokkurir af mestu vísindamönnum veraldarinnar
tóku sig saman og stofnuðu Brezka Sálarrannsóknafélagið
árið 1882.
Fyrsti forseti þess var hinn skarpgáfaði gagnrýnandi
vísindamaður prófessor Henry Sidgwick. 1 fyrstu forseta-
ræðu sinni, 17. júlí s. á., fórust honum orð á þessa leið:
„Vér erum allir sammála um það, að það ástand, sem
nú ríkir í þessum efnum, er til skammar upplýstum heimi-
Að það er smánarblettur á oss, að þurfa enn að ræða um
hvort raunveruleg séu þessi undursamlegu fyrirbrigði. Það
er ómögulegt að gera of mikið úr vísindalegu gildi þeirra,
jafnvel þótt ekki væri nema tíundi hluti þess sannur, sem
trúverðug vitni bera að þau hafi reynt. Ég segi, að það sé
oss til skammar, að vera að .ræða um það enn, hvort þessi
fyrirbrigði gerist raunverulega, eftir að svo margir dóm-
bærir vottar hafa lýst yfir sannfæring sinni um þau og svo
margir aðrir hafa fengið hinn mesta áhuga fyrir þeim, að
enn skuli megnið af hinum menntaða heimi vera í fullkomn-
um vafa um þau.“
Þessi orð hins merka vísindamanns sýna, hvert verkeefni
Brezka Sálarrannsóknafélagið taldi einkum bíða sín, en
það var að fá raunverulega staðfest, hvort fyrirbrigðin gerð-
Oss sýnist nú, sem slíks hefði ekki verið þörf, þar sem
miðlafyrirbrigðin voru þá þegar rækilega vottfest af vís-
indamönnum, sem að frægð og lærdómi stóðu þeim mönn-
um engan veginn að baki, sem stofnuðu hið nýja sálarrann-
sóknafélag. En þessar rannsóknir voru þá enn svo ungaf
og viðfangsefnið enn svo gersamlega nýstárlegt vísinda-
mönnunum, að markmið félagsins var í alla staði réttmætt.