Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 104
94
MORGUNN
lét eigi á sig fá. Árum saman lagði hún sig þolinmóð undir
hin ströngustu rannsóknarskilyrði, og árum saman vann
dr. Crawford með samstarfsmönnum sínum. Hann reit siðan
þrjár merkar bækur um málið, The Reality of Psychic
Phenomena, Experiments in Psychical Science og The
Psychic Structures in the Goligher Circle. Hann andaðist
árið 1920.
Til þess að fá fulla hugmynd um þessar merkilegu rann-
sóknir er nauðsynlegt að lesa þessar bækur, sem ekki eru
stórar og frá bærlega Ijóst ritaðar um merkilegt mál.
Einkum eru stórathyglisverðar rannsóknir hans á lyft-
ingarfyrirbrigðunum: að í návist sumra miðla hefjast hlut-
ir í loft upp án þess mannlegar hendur snerti þá, og skýr-
ingar hans á því, hvernig þessi fyrirbæri gerist. Hann sýndi
fram á, að borðlyftingar, högg í tilraunaherberginu og
hreyfingar hluta í herberginu framkvæma hinir ósýnilegu
gestir með „ectoplasmastöngum." Með rannsókn sinni tókst
honum að sanna, að úr útfryminu, ectoplasmanu, sem geng-
ur út frá miðlinum, myndast stöng, sem er föst við miðil-
inn, og lyftir hlutunum eða hreyfir þá. Meðan lyftingarfyr-
irbrigðin gerðust lét dr. Crawford miðilinn sitja á vog og
sýndi vogin, að miðillinn þyngdist merkilega, þegar hlut-
irnir hófust upp eða hreyfðust.
Skoðun sinni á því, hvemig ectoplasmað myndast á fund-
unum lýsir dr. Crawford þannig:
„Hinir ósýnilegu starfsmenn verka á heila fundarmanna
og þaðan á taugakerfið á þann hátt, að'smáagnir, eða ör-
eindir sogast út úr líkama fundarmanna, út um úlnliði
þeirra, hendur, fingur eða aðra líkamshluta. Þessar öreindir
hafa nú talsverðan skerf af hulinni orku í sér fólginn, orku,
sem getur verkað á tugakerfi hvers þess manns, er hún
kemst í snertingu við. Þessar öreindir mynda straum, sem
rennur um hring fundarmanna, sennilega utan á líkömum
þeirra. Þessi sálræni straumur fær nú viðbót frá fundar-
mönnum og smáeykst, magnast, nær miðlinum, magnar
hann og fær aukinn kraft frá honum, og heldur áfram hring-