Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 118
108
MORGUNN
síðar hafa komið fram á sjónarsviðið, er hægt að leita til
blaða og tímarita spíritistanna, einkum hinna ensku.
Nú eru miklu fleiri miðlar uppi en nokkru sinni fyrr,
og stafar það vitanlega af því, að þekkingin á þessum furðu-
legu hæfileikum er að aukast en hleypidómarnir að minnka.
En hjá fyrstu miklu miðlunum komu fram allar þær hliðar
miðilshæfileikans, sem enn eru þekktar, svo að það væri
óþörf endurtekning, að fara ýtarlega út í nýjustu fyrir-
brigðin í jafn stuttri greinargerð og hér er um að ræða.
SPÍRITISMINN BREIÐIST t’T UM LÖNDIN.
Þess er þegar getið, að vagga spíritismans stóð í Banda-
r'ikjunum, og þegar á fyrstu árutugunum breiddist hann
mjög út um álfuna alla. Frægir menn í heimi visindanna þar
í landi og öðrum starfsgreinum þjóðfélagsins urðu áhrifa-
mestir tU að útbreiða. hann, og hefir sumra þeirra verið
hér að nokkru getið, einkum þeirra þremenninganna, próf-
Hyslops, dr. Hodgsons og próf WiUiam James, sem allir
voru menn , sem alheimsorð iiöfðu á sér fyrir vitsmuni
sína og lærdóm. Á síðustu árum hafa verið gerðar mjög
merkilegar rannsóknir þar vestra við Duke-háskólann á
fjarhrifum, telepathie, en afburðamenn á borð við þá, sem
þegar hafa verið nefndir, hafa ekki haft forystu um málið
þar vestra á síðustu árum, að því fráskildu, að læknis-
hjónin í Boston, Crandon og kona hans, sem áður segir
frá, hafa unnið merkilegt afrek um sálarrannsóknir, en
þau eru bæði látin fyrir fáum árum, og dr. Hamilton í
Winnipeg, sem leysti af hendi merkilegt starf.
Það er ógerningur að vita nákvæmlega um tölu spírit-
istanna í Vesturheimi, bæði er það, að mikill fjöldi þeirra
er ekki búndinn neinum föstum félagsskap og eins haf<‘
félögin ekki fast samband sin á milli, svo að til allra félag-
anna í landinu nái. En nú fyrir skömmu skrifaði mér ritarx
spíritistasambandsins í Bandaríkjunum, að ekki væri unrxt