Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 46
36
MORGUNN
nú kallaðist frú Fox-Kane, það einkennilega spor, að hún
gerðist kaþólsk og lofaði að fást ekki við miðilsstarfið
framar. í „Ástabréfum Elisha Kane, læknis“ finnst eng-
inn snefill af sönnunum fyrir svikum af hendi Margaret,
en vissulega hafði hún enga hugmynd um mikilvægi þeirr-
ar gáfu, sem hún var gædd, notaði hana oft mjög barna-
lega fyrir fólk, sem hún hefði ekki átt að halda fundi fyr-
ir. Hún var miðill, en hafði enga löngun til að afla sér al-
varlegrar þekkingar á málinu, og flestir, sem til hennar
leituðu, komu af forvitni einni saman og oft af enn verri
hvötum. Margaret Fox-Kane fann ekki lengi skjól í skauti
hinnar rómversku kirkju og tók aftur upp starfsemi sína
sem miðill.
Kate Fox hafði lengi starfað vestan hafs, þegar henni
var boðið að koma til London, árið 1871, og halda fundi
þar. Aðalhvatamaður þess var alkunnur bankastjóri í
New York, sem lagði fram fé til ferðarinnar í þakklætis-
skyni fyrir þá huggun, sem hann hafði hlotið í spíritisman-
um. Mr. Livermore, sem um skeið hafði starfað í hreyf-
ingu spíritista fyrir vestan haf og var alkunnugur starfi
Kate Fox, skrifaði um hana, er hún fór til London, í
bréfi til Mr. B. Coleman, á þessa leið:
„Ungfrú Fox er, þegar á allt ér litið, dásamlegur mið-
ill. 1 dagfari sínu er hún grandvör og hrein. Um tíu ára
skeið hefi ég notið miðilsgáfu hennar og hlotið mikla hugg-
un, leiðbeiningar og furðulega reynslu. Ég stend í mikilli
þakkarskuld við hana og vona, að þið látið að öllu leyti
fara vel um hana, meðan hún er að heiman hjá ókunnugu
fólki“. Hann segir síðan frá, hverjar sannanir hann hafi
fengið fyrir miðilsgáfu hennar, að látin kona hans hafi
notað hana sem millilið og komið í gegn orðsendingum á
hreinni frönsku og ítölsku, sem ungfrú Fox kunni ekkert í.
Hann segir, að hún muni ekki gefa fundi sem atvinnu-
miðill, en muni vinna fyrir málefnið í kyrþey allt, sem hún
geti, meðan hún sé í Englandi.
Þegar, er komið var til London, tók Kate Fox að halda