Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 140
130
MORGUNN
reyndist vera rétt, þegar skrifað var eftir heimilis-
fanginu, sem upp var gefið ókunnugu fólki í ósjálf-
ráðu skriftinni. Áður hefir verið minnzt á víxl-
skeytin svonefndu í ósjálfráðri skrift, sem sann-
færðu suma af ströngustu efasemdamönnunum um
að hér stæðu framliðnir menn að baki fyrirbrigð-
unum.
4. Sálrænar Ijósmyndir voru teknar við ströng rann-
sóknaskilyrði, gesturinn kom ókunnur miðlinum
með öllu með sínar eigin Ijósmyndaplötur, sleppti
ekki af þeim augum og framkallaði plötumar
sjálfur án þess að miðillinn snerti þær, en á plöt-
unum komu fram myndir, sem báru allan svip
látinna manna, og stundum manna, sem enginn
viðstaddur hafði þekkt, en þekktust síðar, er aðr-
ir sáu þær.
5. Fullkomnustu líkamningafyrirbrigðin, sem athug-
uð hafa verið, hafa haft alla eiginleika mannlegs
vitundarlífs og borið náinn svip þeirra framliðnu
manna, sem þeir kváðust vera.
6. Endurminningasannanirnar, sem fram hafa komið
hjá trans-miðlunum, hafa sannfært langsamlega
flesta. Mikinn fjölda þeirra er engan veginn unnt
að skýra sem fjarhrif eða hugsanaflutning frá
fundargestum til miðilsins, þvi að oft er það sagt
af vörum miðlanna, sem engum viðstöddum getur
verið kunnugt um, en framliðni maðurinn vissl
og er að sanna nærveru sína með því að minn-
ast nú á.
Á þessum fyrirbrigðum byggja spíritistar sannfæring
sína um, að látinn lifi, og að látnir menn hafa sannað tilverU
sína fyrir handan gröf og dauða fyrir jarðneskum vinurn
sínum. En um sannanamagnið, sem í þessum fyrirbrigðum
felst, vil ég að lokum leyfa mér að vitna til orða Einars