Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 73
MORGUNN
63
leið norður á Akureyri. Það er bæði gömul saga og ný.
Nokkurum árum síðar, 1884, var önnur rannsóknanefnd
skipuð í Ameríku. Auðmaður, að nafni Henry Seybert,
hafði arfleitt háskólann í Pensylvaníu að 60 þús. dollurum,
Seih m. a. átti að verja til „hlutlausrar rannsóknar“.á spír-
'tismanum. Þessvegna var Seybert-nefndin svokallaða
Sett á laggirnar. Árangurinn af því starfi varð allt annar
°S minni en af starfi nefndarinnar í London. Rann-
s°knarmennirnir voru önnum kafnir og höfðu lítinn
j-ihia til að sinna verkefni sínu, og ekki er unnt að
°hiast hjá að sjá, að þeir hafa fyrir fram verið sann-
asrðir um að enginn jákvæður árangur yrði af starfi
Pomra. Þeir ráku sig á svjikin jfyrirbrigði og gerðu
mikið úr þeim. Ein Fox-systranna, Margaret Fox-
ane, gaf sig undir rannsókn hjá nefndinni, og þegar högg-
heyrðust í kring um hana, eins og áður hafði verið í
ydesville, lýstu hinir vísu menn yfir því, að höggin kæmu
lnhan úr henni sjálfri! Þetta gátu þeir ekki rökstutt, en
®amt var því slegið föstu. Hún sýndi þeim merkilegt fyrir-
riSði, sem oft gerðist hjá henni, hina svo nefndu spegil-
skrift. Hún skrifaði með miklum hraða ósjálfrátt, en allt
etrið var öfugt og varð að lesa það í spegli, en þá komu
Jhargvíslegar orðsendingar fram. Fram hjá þessu fyrir-
rigði gekk nefndin og taldi sig ekki þurfa að rannsaka
t>aO' 1 þessari skrift var m. a. hrein en mjög þung og tor-
skilin latína, en rannsóknanefndinni þótti ekki taka því,
aÖ gefa slíku nokkurn gaum.
Hjá öðrum kvenmiðli, frú Lord, fékk rannsóknanefndin
að heyra beinar raddir sem töluðu fyrir utan miðilinn, en
hofndin rannsakaði það mál ekki nánara, og hinu gáfu þeir
VlsU menn naumast gaum, að eftir að búið var að rann-
Saka miðilinn nákvæmlega og setja honum allar hugsan-
egar varúðarráðstafanir, birtust dularfull ljósafyrirbrigði
1 tilraunaherberginu. 1 hverjum anda þessar rannsóknir
v°ru reknar, verður ljóst af því, að einn af forystu-
’hönnunum talaði háðslega um það, að ekkert minna mundi