Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 96
86
MORGUNN
niðurstöðu, að þetta efni notuðu hinir framliðnu til þess
að birtast jarðneskum mönnum á tilraunafundunum, en
enn var eftir að sanna það mál.
Hjá miðlinum dr. Monck hafði vísindamaðurinn dr. A-
R. Wallace séð „hvítan skýstólpa.“ Hjá D. D . Home hafði
Sir William Crookes séð „ljómandi ský,“ sem breyttist
síðan og varð að fullmótaðri mannshendi. Madame d'
Esperance staðhæfði, að hún fyndi hárfína þræði eins og
dregna út úr líkama sínum, og líkamningurinn Katie King
var oft tengd miðlinum, ungfrú Cook, hárfínum lýsandi
þræði. Menn höfðu ennfremur orðið vottar þess þrásinnis,
að úr þessu efni byggðust upp hinar dularfullu holdguðh
verur hjá líkamningamiðlunum.
Með miðlinum Evu C.— ráku vísindamenn langar og
merkilegar rannsóknir um margra ára skeið, og hjá henrn
var þetta dularfulla efni, útfrymið, rannsakað vísindalega-
Frá þeim rannsóknum segir lífeðlisfræðingurinn fræg1,
próf. Ricliet, í hinni stórmerku bók sinni, Thirty YearS
of Psychical Research. Hann var ákaflega efagjarn og oft
ákaflega ósanngjarn í garð miðlanna, en þó náði hanh
miklum árangri. 1 fyrstu skýrslum sínum um rannsókn-
irnar segir hann frá merkilegri, líkamaðri veru, sem nefndi
sig „Bien Boa.“ „Bien Boa“ gekk um meðal rannsókamann-
anna, talaði við þá og lét þá gera ýmiskonar athuganir &
sér. Og Richet sannfærðist um, að þessi vera væri engan
veginn miðillinn sjálfur. Veran féll skyndilega saman 1
hrúgu á gólfinu, en reis jafnharðan upp aftur með fullrJ
líkamsmynd, og á meðan þetta gerðist horfði annar rann-
sóknamaður stöðugt á miðilinn. Með því að láta líkarnn-
inginn anda frá sér í baryta-vatn, var sannanlegt að hann
andaði frá sér sama efni og mennsk vera. Þeir tóku margaf
myndir af „Bien Boa,“ sem Sir Oliver Lodge telur einhverj&r
þær beztu sinnar tegundar, sem nokkru sinni hafi náðst.
Frá öðru líkamningafyrirbrigði segir próf. Richet þann-
ig: „Nær samstundis og tjöldin höfðu verið dregin fyPr
byrgið var þeim lyft aftur frá, og í opinu kom í ljós andltt