Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 57
MORGUNN
47
á Hkama hans. Líkamaðar hendur birtust í návist hans,
Þær tóku ritblý og skrifuðu á blað, sem á borðinu lá, orð-
sendingar til viðstaddra manna, skrifuðu með rithönd lát-
inna vina þeirra og sönnuðu sig með endurminningum frá
jarðlífi sínu. Svo undarlegar breytingar urðu á líkama
hans í transinum, að þar sem hann stóð við dyrustaf lengd-
lst líkami hans um marga þumlunga og var nákvæmlega
Wiældur. Raddir heyrðust tala í návist hans, og með dul-
skyggni sinni og dulheym lýsti hann látnum mönnum svo
nákvæmlega, að jafnvel allra efagjörnustu menn urðu að
hljóðna. Einn af forystumönnum efnishyggjuvísandanna
með Bretum á þeirri tíð var hinn fraegi dr. Elliotson. Hann
hynntist Home, fékk að vera vottur að fyrirbrigðum hans,
°§ lýsti því yfir á eftir, að hann hefði fram til þess tíma
gengið í þeirri villu, að ekkert væri til nema hið jarðnéska,
hann hefði fengið ný sjónarmið, nýja von. Tilflutninga-
fyrirbrigði hans vom furðuleg, inni í forsiglað og lokað
hlraunaherbergið bárust með óskiljanlegum hætti alls-
honar hlutir, og jafnvel lifandi fuglar. Þau fyrirbrigði
gerðust meðal annars í viðurvist þýzku vísindamannanna
°S segir próf. Zöllner í Leipzig frá þeim í hinni mcrkilegu
hólc sinni (Transcc-ndental Physics).
^Efistarf þessa merkilega manns varð þeim mun áhrifa-
meina, að fjöldi af merkustu mönnum samtíðarinnar urðu
vottar að fyrirbrigðum hans, en þrátt fyrir það sýndu flest
blöðin honum lítilsvirðingu til æviloka, og fáfróðir menn,
Sem aldrei höfðu komið nálægt fyrirbrigðum hans, nefndu
hann svikara, og ævi þessa frábæra og göfuga manns
varð að sumu leyti mikið píslarvætti.
En málið breiddist óðfluga út, staðreyndirnar urðu ekki
þ^ggaðar niður, og jafnhliða Home voru ýmsir ágætir
miðlar uppi. Meðal þeirra vom Davenport-bræðurnir.
Þeir komu frá Ameríku til Englands. Þeir gerðu sér
miðilsstarfið að atvinnugrein og hæfileikar þeirra vom
miklir. Þeir lögðu hendur sínar á borðplötu, og óðara dundu
höggin í borðplötuna og stöfuðu orðsendingar, sem stund-