Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 80
70
MORGUNN
nokkur hluti líkama hennar hvarf, varð ósýnilegur, meðan
hún var í transinum. William Oxley segir frá því m. a. í
hinu stóra fimm binda riti sínu, Angelic Revelations,
hvernig Yolande líkamaðist og færði fundarmönnum 27
lifandi rósir í einu. Hann segir ennfremur frá, að Yolande
hafi flutt inn í tilraunaherbergið fágæta austræna plöntu,
Ixora Crocata. Oxley tók mynd af plöntunni næsta morg-
un, fór með hana heim til sín og lét garðyrkjumanninn
annast hana. Hún lifði í þrjá mánuði. I viðurvist Aksakofs
og próf. Butlerofs í St. Pétursborg líkamaðist gull-lit lilja
7 feta há. Sex myndir voru teknar af henni í þá sjö daga,
sem hún liföi, þá leystist hún upp og hvarf.
Líkömuðu verurnar á fundum Madame d’ Esperance
sýndu sig fundarmönnum á marga lund, töluðu við þá og
létu þá fá tækifæri til að athuga, hvernig þær leystust
aftur upp. Oxley segir frá merkilegu fyrirbrigði á þessa
leið:
„Meðan Yolande stóð líkömuð hjá okkur og var að tala
við konu eina, sem var á fundinum, „féll niður slæðan,
sem huldi höfuð hennar og efri líkamshlutann svo að sá
hluti líkamsmyndarinnar varð nakinn. Þá sá ég, að líkams-
byggingunni var mjög ábótavant, brjóstið var eins og ó-
fullgert og mittið á sömu leið.“ Slík frásögn gætinna rann-
sóknamanna sannar, að það er fásinna að segja, að miðill-
inn sé að blekkja og leika þessa furðulega manngerfinga“.
1 hinni merkilegu bók sinni segir Madame d’Esperance
frá ástandi sínu meðan líkamningarnir eru að koma fram,
og varpar ljósi yfir hið einkennilega samband, sem er á
milli miðilsins og líkömuðu veranna. Hún segir frá ein-
um líkamningafundi, þegar hún sat sjálf fyrir utan byrg-
ið, á þessa leið:
„Og nú kemur í ljós önnur lítil, fínbyggð vera, sem teyg-
ir fram litlu handleggina sína. Einhver fundarmanna aftast
í herberginu, rís úr sæti sínu og gengur að verunni, og þær
faðmast. Ég heyri ógreinilega eins og grátandi rödd segja:
„Anna, ó, Anna, barnið mitt, elsku barnið mitt!“ Þá rís