Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 143
MORGUNN
133
ákaflega misjafnlega hreinir farvegir. Það er ekki unnt
að komast hjá að sjá, að sumt, sem frá þeim kemur um
þetta efni, er ískyggilega litað af persónulegum hugmynd-
Um þeirra um málið, þótt vitanlega sé engan veginn svo
aevinlega. Hjá fullkomnustu ritmiðlunum er það einkum,
að merkilegar fregnir af næstu tilverusviðunum virðast
hafa komið, og að því er virðist gersamlega óháðar eigin
hugmyndum þeirra og þekkingu. Frægust um þessi efni eru
rit enska sjáandans, Stainton Moses, og hinar miklu bækur,
sem ágætispresturinn enski, Vale Owen, reit ósjálfrátt í
skrúðhúsi kirkjunnar sinnar í Orford. En rit þessara ágæt-
Jsmanna eru mikil að vöxtum og auðug að merkilegum
hugmyndum.
Sá maðurinn, sem einna yfirgripsmestrar þekkingar
aflaði sér á þessum sem öðrum greinum spíritismans, var
Sir A. Conan Doyle, og þessvegna verður hann látinn svara
hér að nokkuru þessari spurningu. En hann segir á þessa
leið:
».Það hefir verið staðhæft, að fregnirnar að handan séu
fullar af mótsögnum. Ekki hefir mér fundizt svo. Eftir að
hafa lesið geysimikið um þetta efni, er ég undrandi yfir
samræminu í hinum fjölmörgu frásögnum. Stundum rekst
úiaður raunar á frásagnir, sem bera á sér greinilegan
stimpii sjálfsblekkingarinnar, stundum á sögur, sem bera
a sér ósennilegan æsifregnasvip, en oftast eru þessar frá-
sagnir látlausar, skynsamlegar og eiga margt sameiginlegt,
hótt sumt beri á milli um aukaatriðin. Það er ekkert und-
arlegt. Lýsingum af lífi voru mundi alls ekki bera sarnan
öll atriði, ef rannsóknamaður frá stjörnunni Mars færi
að spyrja indverskan bónda, grænlenzkan veiðimann og
háskólakennara frá Oxford frétta um hvernig lífinu á jörð-
úrini væri farið. Rannsóknamanninum frá Mars mundi
areiðanlega veitast örðugt að trúa því, að lífið á jörðunni
vcEri svo margvíslegt sem þessum þrem mönnum mundi
Segjast frá. Þessu er ekki á þann hátt farið á næsta tilveru-
Sviðinu fyrir handan gröfina, að því er vér bezt vitum;