Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 72
62
MORGUNN
að „málið verðskuldaði alvarlegri athugun og samvizku-
samlegri rannsókn en áður“. Vísindafélagið í London
hafði búizt við allt annarri niðurstöðu, þegar það skipaði
nefndina, og neitaði að birta opinberlega niðurstöður henn-
ar, en nefndin vildi ekki sætta sig við þau málalok og birti
sjálf almenningi skýrslumar um störf sín og rannsóknir.
Þegar þess er gætt, hve skammt málið var enn á veg
komið, gegnir furðu, hve merkilegt verk þessi fyrsta opin-
bera rannsóknanefnd leysti af hendi. Nefndin gerði tilraun-
ir sjálf með miðla og safnaði fjölda af skýrslum frá merk-
um og áreiðanlegum mönnum, sem reynslu höfðu fengið
af málinu. Eins og áður getur gekk meiri hluti nefndar-
innar í byrjun að störfum með það fyrir augum, að af-
hjúpa þær blekkingar, sem þessir menn héldu að væru hér
á ferðinni. En þetta voru hleypidómalausir menn, þegar
á hólminn kom og þeir fóru að kynnast hinum merkilegu
staðreyndum. Þeim var ljóst, að þeir höfðu ekki leyfi til
að láta hleypidóma, trúarlega eða vísindalega, blinda sig,
enda varð árangurinn af starfi þeirra merkilegur. En al-
menningsálitið var andvígt málinu og flest blaðanna gerðu
lítið úr rannsókninni, og geta þó allir skyni bomir menn
sagt sér sjálfir, hvorir munu hafa haft meiri skilyrði til
að dæma málið, skriffinnar og fréttaritarar blaðanna, eða
kunnir og merkilegir menn, sem vísindafélagið hafði kosið
til að annast rannsóknirnar. En mikill meiri hluti þjóðar-
innar tók vitanlega meira mark á því, sem blaðasnápar
sögðu, en menn eins og dr. Alfred Russel Wallace, einhver
skarpgáfaðasti vísindamaður aldarinner, og hans líkar.
Sama máli gegndi um Sir William Crookes og rannsóknir
hans á líkamningnum Katie King, og 60 árum siðar tók
almenningur enn meira mark á greinum blaðamannanna
um þetta mál en hávísindalegum rannsóknum Sir Olivers
Lodge. Gáfaður Reykvikingur sagði fyrir allmörgum ár-
um, að svo væri lygin miklu fljótari en sannleikurinn, að
þegar sannleikurinn væri ekki kominn lengra en inn á
Hlemm (ekki upp úr Reykjavík) væri lygin komin alla