Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 129
MORGUNN
119
verið mjög glæsilegur, og hinir ágætustu menn hafa gerst
þar frumherjar og merkisberar málefnisins. Hinn frægi
stjórnmálamaður Itala, Mazzini, gerðist snemma spíritisti,
°g þjóðhetja Ganbaldi var forseti sálarrannsóknafélagsins.
1 Italíu hefir hver stór-miðillinn komið fram á fætur
öðrum, og hinir ágætustu vísindamenn hafa rannsakað
þessa miðla. Vísindamennirnir hafa raunar ekki allir sann-
færzt um að fyrirbrigðin sönnuðu framhaldslíf mannssál-
arinnar, en þeir sannfærðust um raunveruleik fyrirbrigð-
anna og ruddu veginn fyrir meiri skilningi á þeim en áður
hafði þekkzt. Meðal þeirra ítalskra manna, sem að þessu
hafa unnið eru menn eins og stjörnufræðingurinn frægi,
Schiaparelli, geðveikralæknirinn, prófessor Lombroso, próf.
Morselli og próf. Bozzano, sem allir voru frægir menn,
auk margra annarra, sem hér eru ekki nefndir.
Próf. Lombroso var frábær vísindamaður og hreinn
efnishyggjumaður lengi ævinnar, en fór að rannsaka miðl-
ana á miðjum aldri. Hann var afarvarfærinn og gætinn,
rannsakaði árum og árum saman, án þess að komast að
n°kkurrri niðurstöðu um, hvaðan fyrirbrigðin stöfuðu, en
að lokum varð sannanamagnið svo mikið, að hann gerð-
lst sannfærður spíritisti. Auk hans hefir Bozzano unnið
þrekvirki á sviði sálarrannsóknanna, en þeir höfðu ein-
hverja beztu miðla, sem uppi hafa verið, til að gera til-
raunir sínar með.
. Vegna þess, hve rómversk-kaþólska kirkjan er voldug
^ Italíu hefir spíritisminn verið lokaður heimur fyrir öllum
P°rra manna þar í landi. Allmörg félög hafa verið þar
starfandi eigi að síður og margt af kunnu fólki fylgt hreyf-
lr>gunni. Þegar einræði Mussolinis hófst þar í landi, bjarg-
a^i það spíritismanum nokkuð, að bróðir einræðisherrans
^ar mikill áhangandi Bozzanos og neytti áhrifa sinna til
Þess að halda hlífiskildi yfir hi’eyfingunni. En af eðlileg-
ástæðum hafa fáar fréttir borizt af spíritismanum í
talíu á síðustu árum.
í Póllandi hafa starfað merkir sálarrannsóknamenn og