Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 54
44
MÖRGUNN
Á þessum árum kom fram hver miðillinn á fætur öðr-
um. Einna frægust þeirra hefir orðið frú Meinard, eða
Nettie Colburn, eins og hún hét áður en hún giftist. 1 bók
sinni um Abraham Lincoln segir hún frá samfundum
þeirra. Forsetafrúin hafði áhuga fyrir spíritismanum og
fékk því til leiðar komið, að Lincoln bauð Nettie Colbum
til sín í Hvíta húsið og sat með henni transfundi, sem vafa-
laust höfðu mikil áhrif á forsetann, og jafnvel í ákvörð-
unum, sem hann tók um mikilvæg atriði borgarstyrjald-
arinnar. Er það mál allt hið merkasta.
SPlRITISMINN RERST TIL ENGLANDS.
Til Englands kom spíritisminn frá Vesturheimi laust eft-
ir árið 1850, en fyrsti boðberi hans þar var frú Hayden,
merk kona að gáfum og lærdómi og auk þess gædd mið-
ilsgáfu. Ilún tók síðar doctorsgráðu í læknisfræði, og sak-
ir lærdómsorðs, sem af henni .fór, var henni boðin háskóla-
kennarastaða í Bandaríkjunum. Er hún kom til Englands
og fór að kynna málið þar árið 1852, réðust blöðin gegn
henni af miklum ruddaskap, og ótrúlegar árásir voru gerð-
ar á hana bæði af almenningi, menntamönnum og frá
kirkjunnar hálfu, en einstakir þjóðkunnir menn tóku máli
hennar opinberlega og reyndu að sýna fram á, að hér
væri merkilegt mál á ferðinni, sem hugsandi fólki bæri
skylda til að athuga með rólegri skynsemi í stað þess að
láta hleypidómana og vitleysuna fara með sig í gönur.
Meðal þeirra, sem máli hennar tóku var sjálfur hinn kon-
unglegi læknir, dr. Ashbumer, og Sir. Charles Isham, en
mikilhæfasti maðurinn, sem auga kom á hin nýju sann-
indi þegar í byrjun var hinn heimsfrægi stærðfræðingur
og heimspekingur, próf. De. Morgan. Hann sat fyrstu fund-
ina með frú Hayden og gerði með hana margháttaðar til-
raunir, sem sannfærðu hann um mikilvægi málsins. Kona
De Morgans var orðlögð lærdóms- og gáfukona. Hún rit-