Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 61
MORGUNN
51
Jnnar af skyldi miðillinn vera, og tjald fyrir dyraopinu.
Lannig hófst eitthvert mesta ævintýrið, sem nokkur vis-
indamaður hefir orðið vottur að. Samfleytt í þrjú ár, stund-
Urn kvöld eftir kvöld, stundum með nokkuru millibili, féll
ungfrú Cook í trans í litla herberginu og fram 1 rannsókna-
stofuna gekk líkömuð kvenvera, dvaldist þar lengi, hreyfði
Slg milli rannsóknamannanna, talaði við þá og leyfði þeim
að rannsaka sig með margvíslegu móti. Sumir halda því
fr'ani, að þessi vera hafi verið ungfrú Cook sjálf, dulbúin.
Hvílík fjarstæða það var, sannaði Sir William sjálfur. Hann
tór stundum inn í herbergið til miðilsins og sá þar ver-
Urnar báðar, dularfulla gestinn og miðilinn og f jöldamarg-
ar þósmyndir voru teknar af fyrirbrigðunum. Um mis-
muninn á miðlinum og hinni líkömuðu kvenveru segir Sir
^illiam svo frá,í en veran nefndist Katie King:
>.Líkamshæð Katie var mjög mismunandi. Heima hjá
mer hefi ég séð hana sex þumlungum hærri en miðilinn,
Ungfrú Cook. 1 gærkvöld stóð hún berfætt, sléttum fót-
Um á gólfinu hjá mér og var þá fjórum og hálfum þuml-
Ur*gi hærri en miðillinn, og hálsinn á Katie var ber í gær-
völd. Hörund hennar bæði slétt og mjúkt, að sjá og taka
a> en þessa dagana hefir ungfrú Cook stóra bólgu á háls-
mum, sem er hrjúf og hörð viðkomu. Engin göt eru á
eyrnasneplum Katie, en ungfrú Cook er með eyrnahringi,
aem stungið er í gegn um eyrnasneplana. Katie er mjög
J°s á hörund, en ungfrú Cook mjög dökk. Fingur Katie
°ru lengri en úngfrú Cook og andlit hennar stærra. 1
ramkomu eru þær ólíkar um margt“.
Síðar segir Sir William frá á þessa leið:
>>Nú um nokkurt skeið hefi ég haft tækifæri til að skoða
atle náið og bæta við það, sem ólíkt er með miðlinum
eS henni. Hvað líkamann áhrærir hefi ég algerlega sann-
. rst um, að Katie er önnur vera en ungfrú Cook. Smá-
e*nkenni, sem eru í andliti ungfrú Cook, finnast ekki í and-
Ul Katie. Hár ungfrú Cook er svo dökkbrúnt, að það nálg-
ast að vera svart, en nýlega leyfði Katie mér að skera stór-