Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 42
32
MORGUNN
aranum, sem unnt var og komið því niður úti í horni, úti
við vegg? Hafi svo verið, hefur það auðvitað verið mikið
flaustursverk og leifar af likinu óvart orðið eftir, þar sem
því hafði fyrst verið komið fyrir.
Nokkuru Ijósi varpar yfir málið umsögn stúlku einnar,
ungfrú Lucretia Pulver, sem var vinnustúlka hjá Bell-
hjónunum, sem bjuggu í þessu húsi, þegar glæpurinn átti
að hafa verið framinn. Frásögn hennar var rituð upp eft-
ir henni. Hún segir frá því, að um þetta leyti hafi komið
umferðasali til Bell-hjónanna og gist þar, en um kvöldið
sendu hjónin hana heim til hennar og gáfu henni frí í þrjá
daga. Hún kvaðst hafa ætlað að kaupa eitthvað smádót
af umferðasaianum, en hann hafi verið farinn burt, þegar
Bell-hjónin sendu eftir henni í vistina, þrem dögum síðar.
Hún segir, að umferðasalinn hafi verið maður um þrítugt
og lýsti útliti hans. Og hún segir frá þvi, að h. u. b. einni
viku eftir að hún kom aftur úr þessu þriggja daga fríi,
hafi húsmóðirin sent sig að kveldi niður í kjallara til þess
að loka útidyrunum, en þá hafi hún dottið á miðju kjall-
aragólfinu um einhverja mishæð, og þegar húsmóðirin
hafi spurt sig um, hversvegna hún hefði rekið upp hljóð
í kjallaranum, og Lucretia hafði sagt henni orsök þess,
hefði húsmóðurin sagt, að þetta væri sjálfsagt eftir rott-
urnar. Hún segir, að fáeinum dögum síðar hafi Mr. Beil
flutt talsvert af mold og drasli inn í kjallarann og verið
þar að einhverju verki í nokkur kvöld, en húsmóðirin hefði
sagt sér, að hann væri að fylla upp í rottugöt. Einnig
kvað hún húsmóður sína hafa átt smáhluti, sem hún hefði
sagst hafa keypt af umferðasalanum.
Þetta hefir komið í dagsljósið í sambandi við fyrstu
höggin í heimili Fox-fjölskyldunnar í Hydesville.
Svo mikið gekk á i húsinu fyrstu dagana í apríl 1848,
að frú Fox varð gráhærð á einni viku. Enginn friður var í
húsinu, hvorki fyrir hinum dularfullu höggum né gestun-
um, sem streymdu að úr öllum áttum, unz heimilið var að
nokkuru leyst upp. Margaret fór til bróður síns, David