Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 41
MORGUNN 31
Var svo komið, að höggin heyrðust alveg eins um hábjart-
an dag sem í myrkri.
Þetta var þá það, sem gerðist í Hydesville 31. marz 1848.
Hér stöndum vér við vöggu spíritisma nútímans. Hér
stöndum vér við ofurlitla uppsprettulind, sem síðan hefir
sifellt breikkað og dýpkað, og er nú eftir hundrað ár orð-
ln að stórfljóti, sem flæðir um allar fimm álfur heims.
En hvað reyndist um þá staðhæfing, að lík myrta manns-
lns væri grafið undir kjallaragólfinu?
Þagar að kveldi dags 1. apríl var farið að grafa í kjall-
aragólfið, en þá kom svo mikið vatn upp úr jörðunni, að
^aetta varð við að grafa. En um sumarið, þegar jörð var
°rðin þur, var tekið til að grafa á ný, en að því stóð David
E°x og nokkurir menn með honum. Þegar þeir höfðu graf-
um fimm fet niður, komu þeir niður á þykka tré-fjöl,
neðar fundu þeir viðarkol og óleskjað kalk, og er þeir
grófu enn dýpra, komu þeir niður á mannshár og bein,
Sem læknar töldu sannanlega vera úr mannslíkama. En
það varð ekki fyrr en 56 árum síðar, að loks fékkst endan-
)eS sönnun fyrir því, að karlmannslík hafði verið grafið
hndir kjallaragólfinu. Þá vo”u skólabörn að leika sér í
þessu húsi, sem þá enn var almennt kallað ,,draugahúsið“.
Eomu þau þá niður á næstum heila beinagrind af manni
a mótum hins fallandi kjallaraveggjar og gólfsins, og þar
fehnst einnig tinkassi, sem umferðasalar höfðu tíðum með-
ferðis, en umferðasali kvaðst óþekkta aflið hafa verið í
þfandi lífi. Þessi tinkassi er varðveittur í aðalstöðvum
amerískra spíritista í Rochester.
En hvernig stóð á því, að beinagrindin fannst úti við
þjallaravegginn en ekki undir miðju gólfinu, eins og ó-
þekkta aflið hafði gefið til kynna? Er ekki sennilegt, að
raaðurinn, sem myrti umferðasalann, hafi fyrst grafið
hann undir mið'ju kjallaragólfinu, þar sem fundust leif-
arnar af mannshári og litlar beinaleifar og hið óleskjaða
halk, en að síðar hafi hann orðið hræddur við að hafa
líkið þarna og flutt það þá á svo afvikinn stað undir kjall-