Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 49
MORGUNN
S9
voru systurnar báðar, Kate og Margaret, í New York, og
Þar framdi Margciret svik og var staðin að þeim. En um
Sa®a leyti héldu þær systumar þó fundi, þar sem tví-
ftiælalaus og með öllu ósvikin fyrirbrigði gerðust hjá
þeim.
Þetta varð vitanlega óskaplegt áfall fyrir spíritismann,
þótt systurnar, einkum Kate, lýstu síðar opinberlega yfir,
^f hverjum rótum svikin hefðu verið runnin. Þær voru í
fjárþröng, en þeim var boðið fé til að fremja svikin, og
hatrið til eldri systurinnar og spíritistanna, sem Kate taldi
hafa brugðizt sér hrapallega, brann í sál hennar. En af
yfirlýsingum hennar um þetta mál síðar er ljóst, að þá
hefir iðrunin brunnið í sál hennar ekki síður en hatrið
áður.
En hvemig gat slíkt orðið, að Margaret greip til þessa
óyndisúrræðis með samþykki Kate, systur sinnar? Skýr-
ingin er sú, að enn, eftir öll þessi starfsár, höfðu systurnar
engan skilning á mikilvægi hinnar nýju hreyfingar fyrir
^nannkynið. Þann skilning átti systir þeirra, Leah Under-
hill, í miklu ríkara mæli. Þessvegna lét hún skrifa, eftir
fyrirsögn sinni, merkileg bók um þetta mál, sem hún
hefndi ,,The missing Link in Modern Spiritualism“, sem
Varpar ským ljósi yfir mörg atriði, sem annars væru
Vafasöm, á þessum árum í sögu hinnar ungu hreyfingar.
Kate og Margaret önduðust báðar fáum árum eftir þessa
3-tburði. Saga þeirra er sorglegt sambland af ljósi og skugg-
óhh Án þess að hafa hugmynd um það sjálfar, urðu þær
frumherjar að hreyfingu, sem átti eftir að fara mikla sig-
Urför um löndin. Þær vom báðar gæddar stórfelldri miðils-
Sáfu, en þær höfðu harla lítinn skilning sjálfar á því máli,
Seru var verið að nota þær til að. hrinda af stað.