Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 139
MORGUNN
129
NIÐURLAGSORÐ.
Hundrað ár eru liðin síðan vagga spíritisma nútímans
stóð í smábænum Hydesville í Bandaríkjunum. 1 fáum
óráttum hefir aldarsagan verið rakin hér og þeir menn
Oefndir, sem mest hafa við sögu komið, þótt fjöldamargra
hafi verið sleppt að geta, sem ástæða hefði verið til að
^innast. Hreyfingin er fyrir löngu orðin alheimshreyfing,
svo að við sögu hennar hafa vitanlega komið margir frá-
bærir menn, sem ekki var rúm í þessari ritgerð til að
fiefna, en þeir verða nefndir, því að um víða veröld fara
fram minningarathafnir um starf þeirra og mikil hátíða-
höld þessa dagana. Milljónir, já, sennilega tugir milljóna
^anna koma saman til þess að minnast þeirra atburða,
er gerðust fyrir einni öld, voru þá eins og örlítil uppsprettu-
en eru nú orðnir að stórflóði, sem sendir kvíslar sínar
1:11 allra menningarlanda jarðarinnar.
En á hverju byggja milljónirnar þá staðhæfing sína,
aÖ framhaldslíf mannssálarinnar hafi sannazt?
1. Draumlíf manna er mjög litið rannsakað enn, en
þó hefir sannazt, að látnir menn hafa komið til
jarðneskra manna í svefni og sagt þeim það, sem
engum jarðneskum manni var kunnugt en fram-
liðni maðurinn vissi einn.
2. Með skyggnihæfileikann hafa verið gerðar margs-
konar tilraunir, og sannazt hefir, að skyggnir
menn hafa séð látinn mann, sem þeir vissu ekki
að var látinn og birti þeim atvik, t. d. í sambandi
við andlát sitt, sem hinum skyggnu mönnum gat
ekki verið kunnugt um.
3. Rannsóknir og tilraunir hafa verið gerðar með
ósjálfráða skrift og það sannazt, að hjá skrifmiðli
hefir skrifazt nafn og heimilisfang manns, sem
enginn viðstaddur vissi, að hafði verið til, og gefið
hefir nákvæmar upplýsingar úr ævi sinni, sem allt
9