Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 74
64
MORGUNN
sannfæra sig en það, að einhver kerúbinn frá himnum
kæmi og settist á höfuðið á sér og engill á brjóstið!
Enginn vafi er á því, að starf þessarar nefndar tafði um
skeið mjög fyrir framgangi spíritismans í Vesturheimi, og
árangurinn varð litlu merkilegri, þegar ný Seybertsnefnd
var sett á stofn þar vestra árið 1920.
Fleiri nefndir hafa verið settar á laggirnar til að rann-
saka fyrirbrigðin, hin merkasta þeirra í París með öðr-
um eins þátttakendum og próf. Richet, heimspekingnum
fræga, Henry Bergson, og Cune-hjónunum, en langmerk-
ustu niðurstöðurnar hafa fengizt af rannsóknum einstakra
vísindcimanna, sem ráku tilraunir sínar áratugum saman,
sumir hverjir, og völdu sér samstarfsmenn, er þekktu mál-
ið. Þannig ráku þau rannsóknir sínar, er síðar verður get-
ið, hinn mikilhæfi, franski vísindamaður, læknirinn dr.
Géley og Madame Bisson. Þannig starfaði þýzki læknirinn
barón von Schrench-Nótzing, lifeðlisfræðingurinn Richet,
próf. við háskólann í Sorbonne, og Wickland læknir í Los
Angelos. Allar rannsóknamefndir, sem skipaðar hafa ver-
ið, önnur en hin fyrsta, sem Vísindafélagið í London setti
á laggimar, hafa að miklu leyti verið skipaðar mönnum,
sem litla þekking höfðu á málinu og minni löngun til að
komast að jákvæðum niðurstöðum. Auk þess eru miðl-
arnir viðkvæmir, það fylgir sérgáfu þeirra, og ósanngimi
vísindamannanna í garð þeirra hefir oft orðið þrándur í
götu þess, að þeir fengju nokkur fyrirbrigði að sjá. Miðils-
gáfa Eusapíu Palladino, markaði merkileg spor í sögu sál-
arrannsóknanna, því að hún var rannsökuð og staðfest af
mörgum mikilhæfum visindamönnum.
Saga þessarar konu er merkileg. Hún fæddist í Suður-
Italíu árið 1854 og andaðist árið 1918. Þegar í bernsku
hennar tóku að gerast furðulegir hlutir í návist hennar,
sem margir urðu vottar að. En þegar hún var rúmlega
tvítug bar svo við, að ensk hefðarkona í Neapel, sem var
gift Signor Damiani, aðalsbomum ítölskum manni, var að
fást við borðtilraunir. Þá var henni sagt að fara í ákveð-