Nýtt og gamalt - 01.01.1914, Blaðsíða 5
Biblíuþýðingin 1912.
Það stóð nýlega í einhverju blað-
inu, að mentamenn væru farnir að
hugsa miklu meira um trúmál en
að undanförnu, og mun það satt
vera um mentamenn í öðrum lönd-
um, en jeg er hræddur um, að það
eigi ekki vel heima hjá oss íslend-
ingum — ennþá. Að minsta kosti
væri það þá óskiljanlegt, hvað lítið
er talað um trúmálabækur í blöð-
unum.
Sje gefið út eitthvert æfisögukver,
verða fjöldamargir til að skrifa um
það, en þegar Kristnisaga Jóns pró-
fessors Helgasonar kom út í haust,
sem leið, þögðu allir sögumenn vorir
og þegja enn, að jeg ætla, nema hvað
Sunnanfari gat um, að Kristnisagan
væri prentuð á vandaðan pappír!
Þetta 1. bindi Kristnisögunnar,
sem nær yfir fornöldina, er þó ekk-
ert smákver, heldur 320 bls., og
skortir þar hvorki hugðarefni fyrir