Menntamál - 01.12.1964, Blaðsíða 76
218
MENNTAMÁL
HELGI ELÍASSON
19. norræna skólamótið til umræðu á for-
mannaráðstefnu í Kaupmannahöfn.
Um alllangt árabil hafa formenn og ritarar sambanda þeirra kennara-
félaga á Norðurlöndum — utan íslands, sem fjaiia um málefni skóla á
skyldunámsstigi, komið saman einu sinni á ári til þess að ræða og fræðast
um hið helzta, sem efst hefur verið á baugi hverju sinni í hvcrju landi
fyrir sig. Ritstjórar tímarita hlutaðeigandi samtaka hafa setið þessa fundi,
svo og fieiri framámenn kennarasamtaka þess lands, sem fundurinn var
haldinn í.
Fundur þessa árs var haldinn að Skarrildhus á Jótlandi dagana 4.—6.
desember, og þar eð aðalviðfangsefni fundarins var viðvíkjandi norræna
skólamótinu, sem ákveðið hafði verið á síðasta skóiamóti í Khöfn að halda
í Reykjavík 1965, var þess óskað, að Helgi Elíasson fræðslumálastjóri og
formaður Sambands ísl. bamakennara kæmu á fundinn til skrafs og ráða-
gerða. Að athuguöu máii varð það að ráði, að Helgi Elíasson sótti fund
þennan einn, og fól stjórn S.I.B. honum jafnframt umboð sitt til þátttöku
sín vcgna.
Skarrildhus er í Miðvestur-Jótlandi (nál. Herning), all-
stór „herragarður", byggður 1918, sem Danmarks lærerfor-
ening keypti fyrir U/2 ári og lagfærði talsvert til þess að geta
rúmað 40 manns með góðu móti til fundahalda og nám-
skeiða. Aðstaða öll til dvalar og starfa er hin vistlegasta.
Því var mjög fagnað af fundarmönnum, að nú sat í fyrsta
sinn fulltrúi frá Islandi fund norrænu kennarasamtakanna
og þá einkum, er ég greindi frá því, að stjórn S.Í.B. hefði í
hyggju að senda fulltrúa framvegis á slíka ársfundi.
Að þessu sinni skal eigi greint lrá öðrum málum, sem
rædd voru á fundinum, en því helzta varðandi 19. norræna
skólamótið í Reykjavík.
Stinus Nielsen, formaður Danmarks lærerforening hafði