Morgunblaðið - 18.12.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER1985
51
Umferðarráð hvetur til
varkárni í jólaumferðinni
UMFERÐARRÁÐ hefur sent frá sér upplýsingar um
nokkur mikilvæg atriði í jólaumferðinni.
Er þar fyrst að nefna að nauðsynlegt er að allir
gangandi vegfarendur noti endurskynsmerki, en þau
fást í apótekum um allt land. Ökumenn ættu einnig
að nota ökuljósin allan sólarhringinn, og verður allur
ljósabúnaður að vera í fullkomnu lagi. Ökumenn ættu
alls ekki að nota bíla sína nema þeir séu með öllum
tilskyldum vetrarbúnaði. Einnig að hjólbarðar séu gróf-
mynstraðir og helst negldir, keðjur þurfa einnig að
vera tiltækar.
1 framhaldi af þessu vill Umferðarráð benda á að
ökumenn ættu að þvo hjólbarða nokkuð oft vegna
saltáburðar á vegi, annars minnka eiginleikar þeirra
ótrúlega fljótt; best sé að nota steinolíu eða olíuhreinsi-
efni.
Nú þegar allra veðra er von ættu menn alls ekki að
fara á nema vel búnum bílum um erfiða fjallvegi, og
ekki án samfylgdar. Sérstaklega á það við um fólk sem
kennir sér einhvers meins og á því erfiðara með að
reyna á sig en annað fólk.
Umferðarráð væntir þess að allir landsmenn stuðli
að slysalausri umferð um jólahátíðina og sýni ýtrustu
varkárni, segir að lokum í frétt frá Umferðarráði.
Komið tU
meginlandsins
frá nokkrum
úteyjum
sögur eftir
Kristján Karlsson
Kristján Karlsson er eitt skarp-
skyggnasta skáld og bókmennta-
maður landsins. Hann sendir nú
frá sér sjö smásögur, sem eru í
senn spennandi og nýstárlegar.
Kristján kafar undir yfirborð
nútímalífs og sögurnar fylgja
manni eins og skuggi að loknum
lestri.
BOK
AUÐMIAÐ
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ. AUSTURSTRÆTl 18. SlMI 25544.
VIÐ ERUM STOLT
því aö í 25 ár, eða frá stofnun
Gunnars Ásgeirssonar hf. hefur
Erla Ásgeirsdóttir sýnt og kennt
á Husqvarna-saumavélar.
Daglega frá kl. 13.00—18.00
býöur Erla upp á sýnikennslu á
allar 9 geröir Husqvarna
saumavéla.
Komiö, sjáiö og sannfærist.
Husqvarna, mest selda
saumavélin á íslandi.
SAGAN ÖLL
Frásagnarlist og stílgáfa Péturs Gunnarssonar
nýtur sín ákaflega vel í þessu verki. Stíllinn er
agaður, en um leið uppátektarsamur og fjörlegur,
lýsingar myndrænar og lifandi. í þessu verki
sameinast bestu kostir fyrri bókanna ...
(iunnlaugur Astgeirsson, Helgarpósturinn.
En þessi saga hefur það einkenni góðra bóka að
hún vekur fólk til umhugsunar, skilur töluvert
eftir ... Eysteinn Sigurðsson, NT.
SAGAN ÖLL
&ókaútgáfan Punktar
ki