Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 1
72SIÐUR B
STOFNAÐ1913
82. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsias
Loftárás Bandaríkja-
manna á Líbýu í nótt
Washington, Haag, Trípóli. AP. ft/
Washington, Haag, Trípóii.
BANDARÍSKl flotinn á
Miðjarðarhafi gerði loft-
árásir á Líbýu skönunu eftir
miðnætti í nótt, á skotmörk
tengd hryðjuverkum, þar á
meðal höfuðstöðvar Khad-
afys í Trípólí, að sögn Larry
Speakes, talsmanns Hvíta
hússins. Ekki var kunnugt
um mannfall eða tjón. Ron-
ald Reagan, forseti Banda-
Verkföllum
aflýst í
Noregi nema
í olíuvinnslu
Osló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara
Morgunblaðsins.
VIKULÖNGU verkfalli járniðnað-
armanna í Noregi er lokið, eftir
að samningar tókust milli þeirra
og viðsemjenda um kvöldmatar-
leytið í gaer og verkbanni á 102
þúsund verkamenn, sem vinna við
rafmagns-, efna- og vefnaðariðn-
að og hótel- og veitingarekstur
hefur verið aflýst. Verkfall er
áfram í gildi á oliuborpöllum og
liggur olíu- og gasvinnsia Norð-
manna þvi niðri. Ekki er sam-
komulag i þeirri deilu í augsýn.
Samkvæmt því samkomulagi sem
náðist eftir að Bjöm Haug, ríkis-
sáttasemjari, hafði lagt fram sátta-
tillögu, styttist vinnuvikan um 2 'h
klukkustund frá 1. janúar 1987,
verður 37'/2 stund í stað 40 áður.
Þá hækkar tímakaupið um 1 norska
krónu eða tæpar 6 krónur íslenskar
frá 1. apríl. Kröfugerð verkalýðs-
félaganna hljóðaði upp á hækkun
tímakaups um 2,60 norskar krónur
og að vinnuvikan stjrttist um 2lh
stund frá og með 1. aprií.
ríkjanna flutti ávarp til þjóð-
arinna. klukkan tvö í nótt
að íslenskum tíma, 21 að
bandarískum tíma, og með
honum voru Shultz, utanrík-
isráðherra og Weinberger,
varnarmálaráðherra. Ekki
höfðu boríst fregnir af efn-
isinnihaldi ávarpsins er
blaðið fór í prentun í nótt.
Fréttamenn í Trípólí sögðust
heyra sprengingar í nágrenni borg-
arinnar, en áttu erfítt með að gera
sér grein fyrir hversu víðtæk árásin
væri. Heimildir í Englandi herma
að talsvert hafi verið um herflutn-
inga Bandaríkjanna til og frá flug-
völlum í Englandi og hin opinbera
líbýska fréttastofa hélt því fram
að bandaríski herinn notaðist við
breskan flugvöll á Kýpur.
Utanríkisráðherrar ríkja Evr-
ópubandalagsins samþykktu f
gærdag takmarkaðar refsiaðgerðir
gegn Líbýu, en hvöttu jafnframt
til þess að aðilar Líbýudeilunnar
sýndu af sér varkámi og leitast
yrði við að finna stjómmálalega
lausn á vandanum. Ekki varð
samkomulag um efnahagsþvingan-
ir gegn Líbýu og líta stjómmála-
skýrendur svo á að um málamiðlun
haJfi verið að ræða, þar sem Bretar
höfðu lagt til að öllum sendiráðum
Líbýu í löndum Evrópubandalags-
ins skyldi lokað. Líbýa sakaði í
gærkveldi Evrópubandalagið um
stjómmálaleg og efnahagsleg
hryðjuverk og þarlendir alþýðu-
fundir tilkynntu að „sjálfsmorðs-
sveitir" víðs vegar um heim væru
tilbúnar til árása, ef af hemaðarað-
gerðum Bandaríkjamanna yrði.
Fregnir hermdu að flugmóðurskip-
in Coral Sea og America væru á
siglingu í átt að ströndum Líbýu.
Reagan fundaði í gærkveldi með
leiðtogum stjómmálaflokkanna í
þinginu og formönnum utanríkis-
málanefnda þess. Þeir sem sátu
fundinn vom þögulir að honum
loknum, en eftir hann bárust út
fregnir um hreyfingar flotans og
ávarp Reagans. Nær allur sjötti
floti Bandaríkjanna er nú staðsett-,
ur undan ströndum-Líbýu, tæp 3Ó
skip og 170 flugvélar.
Utanríkisráðherrar EB sam-
þykktu að fækka í sendiráðum
Líbýu í Evrópubandalagslöndun-
um, takmarka ferðafrelsi þeirra
sem eftir verða og taka upp strang-
ara vegabréfseftirlit með fólki af
líbýsku þjóðemi. Þá var samþykkt
áframhaldandi bann við vopnasöiu
til Líbýu.
I samþykkt fundarins, sem var
birt að honum loknum, kemur fram
að ríkin ieggja mikla áherslu á að
vinna gegn hryðjuverkum með öll-
um ráðum og þeim ríkjum sem
stuðla að þeim, hvort sem þar er
um að ræða Líbýu eða önnur ríki.
Sett verður á stofn nefnd sérfræð-
inga og verður skýrsla hennar rædd
á fiindi ráðherranna, sem fyrir-
hugaður er í næstu viku. Þá var
samþykkt að bjóða arabaríkjunum
til viðræðna um hiyðjuverk og
hvemig megi koma í veg fyrir þau.
Hótanir Líbýu gagnvart Evrópu-
löndum vom fordæmdar.
Vemon Walters, sérlegur sendi-
maður Reagans, hitti ráðamenn í
Evrópu að máli í gær. Bettino
Craxi, forsætisráðherra Ítalíu,
sagði Walters að Bandaríkjamenn
yrðu að taka tiilit til vilja evrópskra
bandamanna sinna f þessu máli.
Hans Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra Vestur-Þýskalands, sagði
að sönnunargögn, sem Walters
hefði sýnt sér varðandi hlut Líbýu
að hryðjuverkum undanfarið, hefðu
ekki sannfært sig um sekt Líbýu-
manna. Genscher fer til Wash-
ington í dag til viðræðna við Reag-
an.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 28.
Frá fundi
15 þúsund stuðningsmanna
Marcosar á sunnudag, þar
sem þess var krafist að for-
setaþjónin fjnrrverandi fenju
að koma heim úr útlegð í
Bandaríkjunum.
AP/Símamynd
í heimsókn
hjá Pétri
Pétur Guðmundsson skoraði 15
stig og átti góðan leik með félagi
sínu, bandaríska meistaraliðinu
Los Angeles Lakers, gegn Dallas
Maverics á sunnudagskvöldið,
þrátt fyrir að liðið hafi tapað
leiknum með 104 stigum gegn
127. Vegur Péturs fer sífellt
vaxandi hjá Lakers, sem er eitt
frægasta körfuboltalið í heimi og
virðist hann nú óðum að tryggja
sæti sitt í liðinu. Morgunblaðið
heimsótti Pétur fyrir leikinn við
Dallas, ræddi við hann um dvölina
vestra og kynni hans af hinum
heimsfrægu samheijum sínum.
Einn þeirra, Magic Johnson, er
með Pétri á myndinni.
Sjá bls. 4 og 5 B.
Stuðningsmenn Marcosar:
Skora á almenning
að vera með andóf
Manila, Fihppseyjum. AP.
FYRRUM þingmenn I stjórnarflokki Marcosar, hins afsetta
forseta Filipseyja, kölluðu þingið saman í gær og skoruðu á
almenning á Filipseyjum að sýna hinum nýju stjómvöldum
óhlýðni í verki. Corazon Aquino, hinn nýi forseti, rauf þingið
fyrir nokkrum vikuin og stjórnar í skjóli neyðarlaga, þar til
stjórnskipuð nefnd færir landinu nýja stjórnarskrá.
Stuðningsmönnum Marcosar og
óeirðalögreglu lenti saman fyrr um
daginn, er fólkið mótmælti brott-
rekstri Joseph Estrada, borgar-
stjóra í San Juan, sem er ein út-
borga Manila. Beitti fólkið skot-
vopnum og öllu tiltæku til að grýta
lögregluna. Særðust 60 manns, þar
af 18 lögreglumenn.
Þingmennimir byijuðu þingfund
sinn með bænarstund fyrir hinum
látnu í átökunum, en þeir segja að
sex manns hafi látist. Lögregla og
sjúkrahúsyfirvöld segja hins vegar
að þeim sé ekki kunnugt um að
neinn hafi látist
Um 2 þúsund manns, sem söfn-
uðust saman fyrir utan hótelið, þar
sem fundurinn var haldinn, hróp-
uðu, „Við viljum Marcos" og þing-
menn fögnuðu áskorun Arturo
Tolentino um andóf við ríkisstjóm-
ina. Skoraði hann á „alþingi göt-
unnar“ að safnast saman og vísaði
þar til áskorunar Aquino til almenn-
ings, er hún vann að því að velta
Marcos úr sessi. Tolentino var vara-
forsetaefni Marcosar i kosningun-
um fyrr á þessu ári, en kosningam-
ar vora almennt fordæmdar fyrir
svik.
Rene Saguisag, talsmaður Aqu-
ino forseta sagði að fundur þing-
mannanna félli undir rétt fólks tii
fundafrelsis og sagði: „Hvað okkur
snertir era þetta bara endurfundir
hjá þeim. Þetta er hávaði lýðræðis-
ins.“
Svetlana til
Vesturlanda
Moskvu. AP.
SVETLANA Alliluyeva, dóttir
Jósefs Stalíns, fyrrum leiðtoga
Sovétríkjanna, sagði í gær að hún
byggist við að yfirgefa Sovétrík-
in og halda til Vesturlanda sfðar
í þessum mánuði. Hún sagði að
bæði hún og dóttir hennar Olga
Peters, sem er 14 ára, hefðu
fengið leyfi til þess að yfirgefa
Sovétríkin.
Svetlana sagðist ekki búast við
að þær mæðgur yrðu samferða úr
landi. Svetlana fluttist aftur til
Sovétríkjanna árið 1984. Hún neit-
aði að svara spurningum um ástæð-
umar fyrir brottförinni.