Morgunblaðið - 15.04.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
Hermann
Björ^vins-
son mrinn
af landi brott
HERMANN Björgvinsson, sem
sætir ákæru i okurmálinu, fór af
landi brott til Bandaríkjanna síð-
astliðinn laugardag. Engar upp-
lýsingar liggja fyrir um það hvort
Hermann hyggst dvelja erlendis
um lengri eða skemmri tíma en
fyrirhugað var að að þingfesta
mál hans og birta honum ákæruna
í Sakadómi Kópavogs á næstunni.
Hermanni var gert að sæta far-
banni á meðan á rannókn okurmáls-
ins stóð, en það rann út hinn 12.
mars síðastliðinn. Hermann er því
samkvæmt lögum frjáls ferða sinna,
þótt áhöld séu um hvort ástæða hefði
verið til að skerða ferðafrelsi hans
eins og á stendur. Auk þess að sæta
ákæru í okurmálinu er hann aðalvitni
ákæruvaldsins á hendur 123 mönn-
um öðrum, sem ákærðir hafa verið
í þessu máli.
17 árapilts
saknað
LEIT að sautján ára gömlum pilti,
Hermanni Guðmundssyni, til
heimilis að Sjónarhóli í Gríndavik,
hefur staðið yfir síðan á sunnu-
dag. Leitin hafði ekki boríð árang-
ur er Morgunblaðið fregnaði síð-
ast í gærkvöldi.
Hermann sást síðast við skemmti-
staðinn Gjána í Grindavík um klukk-
an 1.00 aðfaranótt sunnudagsins.
Síðan hefur ekkert til hans spurst.
Leitarmenn úr slysavamadeildinni
Þorbimi í Grindavík hófu leit að
Hermanni á sunnudag og var leit
haldið áfram á mánudag. Hermann
er 1.80 metrar á hæð, grannvaxinn,
með skolleit hár. Hann var klæddur
í gráar terlínbuxur, gráan rúskinns-
jakka, drapplita skyrtu og svarta skó.
MorgunDiaoio/Jullus.
Lögreglumenn á gúmmíbáti koma að ísjakanum, sem piltarnir þrir komust upp á þegar þeirra eigin bátur varð vindlaus í norðan-
strekkingi á Rauðavatni á sunnudagskvöldið.
Þrír piltar hætt komnir á Rauðavatni:
Bjargað hröktum af ísjaka
— eftir að gúmmíbátur þeirra sökk undir þeim
ÞRÍR piltar á aldrínum 13-15 ára — tveir bræður og kunningi
þeirra — voru hætt komnir á Rauðavatni austast í Reykjavík á
sunnudagskvöldið þegar gúmmíbátur, sem þeir voru á, varð
vindlaus og þeir hröktust upp á ísjaka. Vegfarendur sáu til pilt-
anna og létu lögregluna vita. Voru þeir sóttir á bát lögreglunnar
og fengu að fara heim eftir stutta viðdvöl á slysadeild Borgarspít-
alans.
Piltamir fóm að heiman síð-
degis á sunnudaginn með gúmmí-
bát, sem einn þeirra á. Þeir voru
með björgunarvesti og ágætlega
búnir að öðra leyti. Fljótlega eftir
að þeir vora komnir út á vatnið,
þar sem er mikið íshröngl en ekki
mikill fastur ís, fór að hvessa af
norðri og um svipað leyti urðu
piltamir þess varir, að loft var
tekið að leka úr bátnum. Telja
þeir helst að báturinn hafi rekist
utan í gaddavfrsdræsu, sem hékk
utan í girðingarstaur í vatninu.
En þá var orðið of seint að snúa
við enda lét gúmmíbáturinn illa
að stjóm svo vindlítiil.
Bárast þeir undan vindinum að
ísskörinni við vatnið sunnanvert
og komust upp á hana. Hrópuðu
þeir á hjálp og aðeins örfáum
mínútum síðar barst tilkynning
um atburðinn til lögreglunnar í
Árbæ. Fóra lögreglumenn á stað-
inn og kölluðu til piltanna að
liggja kyrrir þar til hjálp bærist,
að því er Júlíus Armann, lögreglu-
maður, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær. Þurfti að
sækja gúmmfbát lögreglunnar
niður á aðalstöð við Hverfísgötu
en síðan sigldu tveir lögreglu-
mannanna út til piltanna. Þegar
þeir komu að fsröndinni var krap-
inn svo mikill að þeir þurftu að
bijóta sér leið þar í gegn og þegar
piltamir vora komnir um borð
þurftu lögreglumennimir að
bijóta sér leið aftur út úr íshröngl-
inu.
„Þá vora strákamir orðnir bæði
kaldir og hraktir," sagði Júlíus,
„og ekki tók betra við á leiðinni
í Iand því þá var kominn talsverð-
ur strekkingur svo gaf jrfír bátinn
og við voram allir orðnir hund-
blautir þegar komið var í land.“
Piltamir — og lögreglumenn-
imir sömuleiðis — hresstust eftir
að hafa farið í heitt bað og þurr
fot.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra:
Legg ekki til að
kvótinn verði aukinn
Arnarflug;
Akvörðun um hluta-
fjáraukningu í dag
„Ég mun ekki leggja til aukn-
ingu á þorskkvótanum fyrir
þetta ár. Það er ekkert í niður-
stöðum Hafrannsóknastofnunar,
sem réttlætir aukningu. Auk þess
hafa mjög margir ákveðið veiðar
eftir sóknarmarki eftir að
ákvörðun um heildarafla var
tekin um áramót og það þýðir
aukningu, haldi fiskurínn áfram
að gefa sig,“ sagði Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra,
í samtali við Morgunblaðið.
Um áramót var lagt til að þorsk-
afli ársins miðaðist við 300.000
lestir eins og fiskifræðingar lögðu
til að veitt yrði, en vegna heimilda
til færslu frá öðram tegundum,
10%, yfír í þorsk og mikillar aukn-
ingar skipa á sóknarmarki, er talið
að heildarþorskaflinn verði um
340.000 lestir að minnsta kosti.
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa
ekki óskað aukningar.
Hafrannsóknastofnun kynnti
niðurstöður sínar á stofnstærðar-
mælingum á þorski fyrir ráðherra
og hagsmunaaðilum í gær og taldi
stofnunin ekki ástæðu til að breyta
fyrri tillögum um veiðar á árinu.
Heildarstærð þorskstofnsins er í
ijölda físka metin nánast óbreytt
frá niðurstöðum rannsókna í sept-
ember á síðasta ári, en vaxandi
meðalþyngd hefur hins vegar í för
með sér stærri stofn í lestum talið.
Veiðistofn er nú áætlaður 890.000
lestir í ársbyijun í stað 850.000
lesta við síðasta stofnmat. Talið er
að árgangurinn frá 1980 sé lítið
eitt stærri en áður var talið, en
árgangurinn frá 1979 eitthvað lak-
ari.
Sjá á bls. 4 Veiðistofninn
hefur vaxið um 40.000 lestir.
ÞAÐ skýríst i dag hvort þeir níu
aðilar sem undanfaríð hafa sýnt
áhuga á að kaupa ný hlutabréf í
Amarflugi fyrir a.m.k. 60 milljón-
ir króna láti verða af kaupunum
eða ekki, en ákvörðunarfrestur
rennur út í dag.
Að sögn Agnars Friðrikssonar
forstióra Amarflugs eru nokkrar lík-
ur á að af hlutafláraukningunni
verði. Eitt þeirra skilyrða sem þessir
aðilar settu fyrir hlutabréfakaupun-
um var að núverandi hluthafar
færðu niður eða seldu þeim hluta-
bréf sín á 10% af nafnverði. Á fundi
fulltrúa stærstu' hluthafa Amarflugs
í gær kom fram vilji þeirra til að
selja bréfín, en ekki var tekin afstaða
til þess við hvaða verði þau yrðu seld.
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða sat fundinn. Hann sagði að
Flugleiðir hefðu fyrir sitt leyti ákveð-
ið að selja bréfin, en frekari upplýs-
ingar um stöðu Amarflugs þyrftu
að liggja fyrir áður en afstaða yrði
tekin til þess hvað raunhæft væri
að fara fram á fyrir bréfin. Sagði
Sigurður að á fundinum hefði komið
fram svipað viðhorf hjá öðram hlut-
höfum.
Auk Sigurðar Helgasonar for-
stjóra sátu þeir Sigurður Helgason
stjómarformaður og Bjöm Theó-
dórsson framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs fundinn fyrir hönd Flugleiða,
en félagið á um 40% í Amarflugi.
Fyrir Sambandið vora þeir Vilhjálm-
ur Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf.
og Axel Gíslason aðstoðarforstjóri
SIS. Tvö fyrirtæki Sambandsins,
Olíustöðin í Hvalfírði og Regin hf.
eiga samtals um 20% hlutabréfa
Amarflugs. Fulltrúi starfsmannafé-
lags Amarflugs, sem á einnig um
20% í félaginu, var Ómar Ólafsson
flugstjóri. Auk þess sátu fundinn
Haukur Bjömsson stjómarformaður
Amarflugs, sem á um 5%, og Agnar
Friðriksson forstjóri Amarflugs.
Þjóðarátak gegn krabbameini:
Rúmlega 20 milljónír
komnar inn á mánudag
„Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð með þennan góða árang-
ur, sem hefur faríð langt fram úr þeim vonum sem menn gerðu
sér í upphafi," sagði Árni Gunnarsson, framkvæmdastjórí söfnun-
arinnar „Þjóðarátak gegn krabbameini" er Morgunblaðið ræddi
við hann síðdegis á mánudag. Þá voru rúmar 20 milljónir króna
komnar inn í söfnuninni, og átti þó eftir bætast við.
Ámi sagði að endanleg tala lægi
ekki fyrir þar sem söfnunarfé úr
einstökum sveitahreppum hefðu
ekki borist og endanlegri talningu
ekki lokið í sumum landshlutum.
Á mánudag var búið að bóka um
7 milljónir úr Reykjavík, 3,3 millj-
ónir frá Norðurlandi, 1,7 frá Aust-
urlandi, 2,1 frá Suðurlandi, 2 millj-
ónir frá Vesturlandi og 4,5 milljón-
ir úr Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Auk þess hefði skrifstofunni í
Reykjavík borist talsverðar fjár-
hæðir og hefði enn verið að berast
þangað fé á mánudag. Þá vora
ótaldir gíróseðlar sem væntanlega
berast næstu daga og fyrirtækja-
söfnun er eftir.
„Þetta hefur farið fram úr björt-
ustu vonum manna," sagði Ámi.
„Þeir sem vora kjarkmestir sögðu
um 20 milljónir, en við voram að
gæla við ná 15 milljónum. Bæði
er það að tíminn var ekki vel
heppilegur fyrir okkur þar sem nú
er tími ferminga hér á landi, auk
þess sem fólk fer mikið á skíði á
þessum árstíma og margir því ekki
heima um helgar. Við urðum líka
varir við það á laugardaginn að
fólk var að heiman í um helmingi
þeirra íbúða sem við komum í. En
við náðum þó þessum ótrúlega
góða árangri, og ef þetta fer upp
í 24 til 25 milljónir, er það um 100
krónur á mann, sem er ekki svo
lítið.“
Ámi sagði að þáttakendur í
söfnuninni hefðu lagt ótrúlega
mikið af mörkum margir hveijir
og nefndi sem dæmi 83 ára gamla
konu sem var að báða dagana frá
morgni til kvölds og safnaði um
70 þúsund krónum. Alls tóku um
1.700 manns þátt í starfínu við
söfnunina.