Morgunblaðið - 15.04.1986, Síða 3
MQRG VNBLAÐB, ^R{Ð#JDAGIjfl IfrAPRfLJð&e
Sáttafundur í veitingahúsadeilunni á morgun:
Á von á að deil-
an fari harðnandi
— segir leiðtogi verkfallsmanna
BOÐAÐ hefur veríð tíl sáttafundar í vinnudeilu Félags starfsfólks
f veitingahúsum og Sambands veitinga- og gistihúsa (SVG) hjá
rikissáttasemjara kl. 13 á morgun. Síðast var haidinn fundur á
fimmtudaginn og stóð hann fram á föstudagsmorgun. Upp úr
honum slitnaði þegar kom að umræðum um eiginlegar kaupkröfur
samninganef ndar hins ófaglærða starfsfólks veitingahúsanna.
Af hálfu SVG hefur ekki verið
ljáð máls á meiri kauphækkunum
en felast í samningum verkalýðs-
hreyfingarinnar og atvinnurek-
enda frá því í lok febrúar. Sá
samningur var felldur á félags-
fundi í Félagi starfsfólks i veitinga-
húsum í byijun mars.
Sólarhrings verkfall félags-
manna á veitinga- og gistihúsum
á höfuðborgarsvæðinu um síðustu
helgi hafði ekki teljandi áhrif á
starfsemi húsanna. Félagið hefur
boðað til tveggja daga verkfalls
frá næsta fostudagsmorgni og ekki
er útilokað að boðað verði til ótíma-
bundins verkfalls frá 1. maí takist
ekki samningar fyrir þann tíma.
Ólafur Laufdal, veitingamaður í
Broadway, Hollywood og Hótel
Borg, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær að starfsemi
staðanna yrði með eðlilegum hætti
um næstu helgi þrátt fyrir boðað
verkfall. í Broadway verður banda-
ríski söngvarinn Fats Domino
ásamt hljómsveit með sex skemmt-
anir og kvað Ólafur enga breytingu
fyrirhugaða á þeirri dagskrá. „Við
leysum hugsanleg vandkvæði sjálf
með mökum okkar og bömum,"
sagði hann.
Sigurður Guðmundsson, for-
maður Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum, sagðist eiga von á að
deilan færi harðnandi frekar en
hitt. „Það hafa engar þreifingar
farið fram frá síðasta sáttafundi,"
sagði hann. „Við munum beita
okkur enn frekar um næstu helgi
- við vitum hvar voru framin verk-
fallsbrot í sólarhrings verkfallinu
og munum að sjálfsögðu gera það,
sem í okkar valdi stendur, til að
koma í veg fyrir að slíkt endurtaki
sig.“
Hressir hestamenn
Nú þegar daginn lengir eru hestamenn viða á ferð með hesta sína. Þessi mynd var tekin fyrir
skömmu við Flóaveginn en þar voru hressir Selfyssingar á ferð.
Uppsagnir lögreglumanna:
Viðræðufundur á
FORYSTUSVEIT Landsam-
bands lögreglumanna og emb-
ættismenn úr dómsmáJaráðu-
neytinu munu hittast siðdegis á
morgun til að ræða kjaramál og
réttarstöðu lögreglumanna. A
þríðja hundrað lögreglumanna
hefur sagt upp störfum á undan-
förnum vikum vegna óánægju
með stöðu sína að þessu leyti og
fleira, sem tilgreint hefur verið.
Flestar uppsagnimar eiga að
taka gildi frá 1. júlí næstkomandi.
Ekki er útilokað að dómsmálaráð-
herra nýti sér heimild í lögum um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna og framlengi uppsagnar-
frest lögreglumannanna um þijá
mánuði, takist ekki samkomulag
ríkisvaldsins og lögreglumannanna
morsfun
í tæka tíð.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, vildi
í gær engu spá um hvort ráðherra
gripi til þessa ráðs, sagði aðeins
að lögin heimiluðu slíkt ef svo
margir segðu upp I einu, að til
auðnar horfði í starfsgreininni.
BANKAWONUSTA AL
Hvað er Hraðbankinn og hvar?
Hraöbankinn er heiti á nýju sameiginlegu þjónustukerfi Alþýöubankans, Búnaðar
bankans, Landsbankans, Samvinnubankans, Útvegsbankans, Verzlunarbankans og Spari
sjóöanna. Hraöbankinn er sjálfsafgreiðslubanki sem þú opnar þegar þér hentar og
getur þú notað hvaða afgreiðslustað Hraðbankans sem er, svo fremi að þú sért í við-
skiptum hjá einhverjum aðildarbankanna.
Hraðbankaþjónustan
Þegar þú hefur stofnað tékkareikning og/eða sparireikning í
Hraðbankanum getur þú hvenær sem er sólarhringsins í hvaða Hraðbanka
sem er: • tekið út fé • lagt inn • greitt reikninga
• millifært • fengið upplýsingar um stöðu.
Afgreiðslustaðir
Hraðbankans verða í byrjun á eftirtöldum stöðum:
Borgarspítalanum • Landsbankanum Breiðholti • Lands-
bankanum Akureyri • Landsspítalanum • Búnaðarbankanum Austurstræti •
Búnaðarbankanum við Hlemm • Búnaðarbankanum Garðabæ •
Sparisjóði vélstjóra • Samvinnubankanum Háaleitisbraut • Útvegs-
bankanum Hafnarfirði.
Leitaðu upplýsinga í viðskiptabankanum þínum eða sparisjóði.
Hraðbankinn - hagkvæm samvinna í þína þágu
Alþýðubankinn, Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Samvinnubankinn,
Útvegsbankinn, Verzlunarbankinn og Sparisjóðirnir.
SOLARHRINGINN
AUK h(. X2.2/SIA