Morgunblaðið - 15.04.1986, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Sjónvarps-
mafían
Aðalsteinn Bergdal leikari kom
að máli við undirritaðan og vildi
koma því á framfæri, að sér hefði
ekki tekist að ljúka förðuninni í þætt-
inum Á líðandi stundu vegna þess að
í það minnsta tvisvar sinnum hefði
ekki notið birtu við förðunarborðið.
Þá vitum við það.
Spumingakeppnin
Spumingakeppni framhaldsskól-
anna lauk í sjónvarpssal síðastliðið
laugardagskveld, en þá tókust á lið
Flensborgarskóla og Fjölbrautaskól-
ans á Selfossi, og lauk feikispennandi
keppni með naumum sigri Fjölbrauta-
skólans á Selfossi. Hafi allir málsaðil-
ar þökk fyrir ágæta keppni og þá
sérstaklega Steinar J. Lúðvíksson er
samdi spumingamar og svo náttúru-
lega stjómendumir, þeir Jón Gústafs-
son og Þorgeir Ástvaldsson. Hér var
valinn maður í hveiju rúmi. Nú, en
enda þótt ég hafí haft býsna gaman
af þessu atriði helgardagskrár sjón-
varpsins þá voru ýmis önnur dag-
skráratriði heldur hvimleið, að ekki
sé meira sagt. Eg freista þess nú að
skyggna þessi atriði í þeirri von að
starfsmenn ríkissjónvarpsins vakni af
dvalanum og bæti annars ágæta helg-
ardagskrá.
Bcetum helgar-
dagskrána
Hefjum ferðina á föstudegi klukkan
19.15. Þá er á dagskrá þáttur er
nefnist Á döfmni og bamaefnið hefst
ekki fyrr en klukkan 19.25, eða
næstum hálftíma seinna en venjulega.
Bömin eru vanaföst og því er á flest-
um heimilum lítill friður til að horfa
á listkynningarþáttinn Á döfinni.
Væri ekki nær að vanda svolítið betur
til þessa þáttar og senda hann út
þegar fólk hefir næði. Þá vil ég spyija
hvemig á því standi að bamatíminn
sé skorinn niður um helming er líður
að helgi? Er umsjónarmaður bama-
efnis máski í fríi frá föstudegi til
mánudags? Og þá er komið að laugar-
deginum. Það teygist sífellt úr íþrótta-
þættinum á laugardögum og nú er
svo komið að Bjami og félagar neyð-
ast til að sýna endalaust skautahlaup
eftir klukkan nítján. Verð ég að segja
eins og er að mér líður gjaman eins
og fanga í austrænum fangabúðum
er ég horfi á endalausar sveiflur hinna
austrænu skautapara með bömin mín
í fanginu að bíða eftir bamatímanum.
Ég hef stundum spurt sjálfan mig
þeirrar spumingar hvort tregðulög-
málið hljóti að vera allsráðandi þar
sem ríkið á í hlut, í það minnsta sit
ég oft orðlaus yfir þessum dauða-
teygjum íþróttaþáttarins á laugardög-
um. Þá er ég kominn að sunnudegin-
um. Margt var vel gert í Stundinni
okkar að þessu sinni, til dæmis bama-
leikritið vestfirska, en þegar helgar-
hálftíma bamanna var lokið þá tók
menningarmafían, eða eigum við
heldur að segja tónlistarmafían, við
af íþróttamafíunni: Endursýnt efni
var á dagskrá — Það eru komnir
gestir... „Bara fólk“ eins og lítill
drengur orðaði það, og náttúrulega
voru gestimir hámenningarlegir
svona rétt fyrir kvöldmatinn, óperu-
söngvarar, minna mátti ekki gagn
gera þar sem Óperukvöld í Múnchen
var á dagskrá síðar um kvöldið. En
ég er ekki bara óánægður með hvem-
ig hlutur barnanna er fyrir borð bor-
inn í helgardagskrá sjónvarpsins, en
þess í stað troðið inn ýmsum dag-
skráratriðum, er eiga nánast ekkert
erindi til hins almenna sjónvarps-
áhorfanda á síðdegisstundu; ég er
einnig býsna óánægður með sumar
kvikmyndir sem sýndar eru á laugar-
dagskveldi, sérstaklega söngvamynd-
ir á borð við Summer Holiday. Væri
ekki nær að hafa á dagskránni eina
afar vandaða mynd í stað þess að
hefja kveldið á hallærislegum söngva-
myndum, þannig að menn sofni áður
en síðari myndin hefír göngu sína?
Ólafur M.
Jóhannesson
Leiðin til lýðhylli
■■■■ Tólfti og næst
Cyf\40 síðasti þáttur
heimildamynda-
flokksins um sjónvarpið er
á dagskrá sjónvarps í kvöld
og nefnist þessi þáttur
Leiðin til lýðhylli. Fjallað
er um hvemig sjónvarpið
hefur gerbreytt stjónmála-
baráttu um allan heim og
úrslit kosninga ráðast oft
af því hvernig til tekst með
málaflutning í sjónvarpi.
Sjónvarpið hefur orðið
ýmsum stjómmálaleiðtog-
um til framdráttar eða falls
og þekktustu dæmi þess
eru líklega John F.
Kennedy og Richard Nix-
on.
John F. Kennedy
Richard Nixon
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
15. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Katrín og Skvetta"
eftir Katarinu Taikon. Einar
Bragi lýkur lestri þýðingar
sinnar(13).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulurvelur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.05 Oaglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Örn Ólafsson flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tíð." Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.10 Úr söguskjóöunni -
Þegar Englendingum
bauðst landið. Umsjón: Árni
Daníel Júlíusson. Lesari:
Sigrún Ásta Jónsdóttir.
11.40 Morguntónleikar.
Þjóðleg tónlist frá ýmsum
löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Heilsu-
vernd.
Umsjón: Jónína Benedikts-
dóttir.
14.00 Miðdegissagan:
„Skáldalíf i Reykjavík" eftir
Jón Óskar. Höfundur byrjar
lestur annarrar bókar:
„Hernámsáraskáld".
14.30 Miðdegistónleikar.
a. Svíta fyrir tvær fiðlur og
píanó eftir Moritz Moszkow-
ski. Itzhak Perlman, Pinchas
Zukerman og Samuel Sand-
ersleika.
b. „Valses noble et senti-
mentales" eftir Maurice
Ravel og Sónata nr. 3 op.
28 eftir Sergej Prokofjeff.
Philip Jenkins leikur á píanó.
15.15 Bariöaödyrum.
Einar Georg Einarsson sér
um þátt frá Djúpavogi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér -
Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri.)
17.00 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristín Helgadóttir.
17.40 Úr atvinnulifinu - lönaö-
ur. Umsjón: Sverrir Alberts-
son og Vilborg Harðardóttir.
18.00 Neytendamál. Umsjón:
Sturla Sigurjónsson.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb
Sigurður G. T ómasson flytur
þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb.
Þórður Ingvi Guömundsson
talar.
20.00 Áframandislóðum
Oddný Thorsteinsson segir
frá Kína og kynnir þarlenda
tónlist. Síðari hluti. (Áður
útvarpaö 1982).
20.30 Grúsk
Fyrsti þáttur af tíu. fjallaö
um tilurð og framgang esp-
eranto, alþjóðlegs hjálpar-
máls. Umsjón: Lárus Jón
Guömundsson. (Frá Akur-
eyri).
20.55 „Augu í draumi" Þóra
Jónsdóttir les úr þýðingu
sinni á Ijóöabók eftirÁgnetu
Pleijel.
21.05 Tónlist eftir Áskel Más-
son
a. „Konsertþáttur fyrir litla
trommu og hljómsveit.
Roger Cerlsson leikur með
Sinfóníuhljómsveit l'slands,
Guðmundur Emilsson
stjórnar.
b. „Októ-nóvember", tón-
verk fyrir strengjasveit. ís-
lenska hljómsveitin leikur;
Guðmundur Emilsson
stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Ævi-
saga Mikjáls K." eftir J.M.
Coetzee. Sigurlína Davíðs-
dóttir les þýðingu sína (5).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Kvöldtónleikar.
a. Tríó í d-moll op. 49 eftir
Felix Mendelssohn. Hans-
heinz Schneeberger, Guy
Fallot og Karl Engel leika á
fiðlu, selló og píanó.
b. „Let the People Sing”,
kórakeppni Evrópubanda-
lags útvarpsstöðva EBU
1985. sigurvegarar i hverj-
um keppnisflokki syngja úr-
slitalög sín. Umsjón: Guð-
mundurGilsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
19.00 Aftanstund
Endursýndur þáttur frá 7.
apríl.
19.20 Fjársjóösleitin
Annar þáttur. (The Story of
the Treasure Seekers)
Breskur myndaflokkur í sex
þáttum, geröur eftir sígildri
barna- og unglingabók eftir
Edith Nesbit. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
ÞRIÐJUDAGUR
15. apríl
20.40 Sjónvarpið(Television)
12. Leiðin til lýðhylli. Bresk-
ur heimildamyndaflokkur í
þrettán þáttum um sögu
sjónvarps, áhrif þess og
umsvif um víöa veröld og
einstaka efnisflokka. I þess-
um þætti er fjallað um það
hvernig sjónvarpið hefur
gjörbreytt stjórnmálabaráttu
víða um heim og ráðið úrslit-
um í kosningum. Sjónvarpið
hefur orðið ýmsum stjórn-
málaleiðtogum til framdrátt-
ar eða falls á liðnum árum
þótt þekktust dæmi um það
séu Bandaríkjaforsetarnir
John F. Kennedy og Richard
Nixon. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.35 í vargaklóm (Bird of Prey
II)
Lokaþáttur. Breskur saka-
málamyndaflokkur í fjórum
þáttum. Aöalhlutverk Ric-
hard Griffths. Þýðandi Bogi
Arnar Finnbogason.
22.30 Umræðuþáttur
23.25 Fréttir i dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
15. apríl
10.00 Kátirkrakkar
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna i umsjá Guðríðar
Haraldsdóttur.
10.30 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
12.00 Hlé
14.00 Blöndun á staðnum
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Söguraf sviðinu
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr söngleikjum
og kvikmyndum.
17.00 Hringiðan
Þáttur í umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
18.00 Hlé
20.00 Evrópukeppni landsliða
í körfuknattleik, C-riöill
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson
kynna keppnina og lýsa síö
an leik Islendinga og Ira i
Laugardalshöll.
22.30 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar i þrjár
minútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SVÆÐISUTVORP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
Á dagskrá rásar eitt i kvöld er flutningur íslensku hljómsveitannnar á „Okto-
november“ eftir Áskel Másson.
Tónlist
eftir Áskel Másson
Alþjóðamálið
esperanto
WH GRUSK, fyrsti
OA30 þáttur af níu, er
Ci\3— á dagskrá rásar
eitt í kvöld. í þessum þætti
verður fjallað um tilurð og
framgang alþjóðlega hjálp-
armálsins esperanto. „Eg
leika nokkur lög sem
sungin eru á esperanto í
þættinum", sagði Lárus
Jón Guðmundsson stjóm-
andi þáttarins í samtali við
Mbl. „Síðan tek ég viðtal
við Jón Hafstein Jónsson,
menntaskólakennara á
Akureyri, sem hefur kennt
esperanto við Menntaskól-
ann á Akureyri og er vel
að sér í þessu tungumáli.
Þá ræði ég einnig við einn
nemanda hans. í þættinum
rek ég sögu esperanto sem
fyrst var kynnt í Varsjá
árið 1887 og einnig sögu
mannsins sem samdi það,
pólska augnlæknisins L.L.
Zamenhofs.
Efni þessara Grúsk-
þátta er mismunandi og
allt mögulegt tekið fyrir
og er hver þáttur sjálfstæð-
ur hvað efnisval snertir",
sagði Láms.
■■■■ Tónlist eftir
01 05 Áskel Másson er
£ í — á dagskrá rásar
eitt í kvöld. Leikin verður
Konsertþáttur fyrir litla
trommu og hljómsveit og
er það Roger Carlsson sem
leikur með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Guðmundur
Emilsson stjómar. Þá verð-
ur leikið tónverk fyrir
strengjasveit, „Októ-
nóvember“. íslenska hljóm-
sveitin leikur undir stiórn
Guðmundar Emilssonar.