Morgunblaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
• r.i. i—r;.-r.; ,i .í——— -i—- ■' ■ f— ---
Amór Benediktsson, þátttakandi I dorgkeppninni Sverrir Tryggvason í Víðihlíð gerir gat á ísinn með
á Mývatni, með einn vænan á lofti. Amór fékk þartilgerðum bor. ísinn var þaraaum 70 senti
þrjá silunga í keppninni. metrar á þykkt.
Dorefað í dásamlesfu veðri
Akureyri. '—* '—7
„ÞAÐ VAR fiskur í vatninu,
menn sáu hann og urðu varir
en hann vildi ekki bíta á. Annars
vom allir nokkuð ánægðir.
Keppnin sjálf gekk snurðulaust
fyrir sig - allir fóm heim með
brúnku og freknur og enginn
blotnaði," sagði Bjöm Bjöms-
son, einn af aðalmönnunum á
bak við dorgkeppnina á Mývatni
á laugardag, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Dorgkeppnin var nú haldin í
fyrsta skipti en stefnt er að því
að þetta verði árlegur viðburður.
Dásamlegt veður var meðan
keppnin stóð yfir - blankalogn og
sól, og kenndu menn einmitt góða
— áMývatni
á laugardag
veðrinu um hversu illa fiskaðist.
Ekki komu á land nema rúmlega
tíu silungar og eitthvað slæddist
af homsílum með. Bjöm sagði það
sýna vel dagamuninn að tveimur
dögum fyrir keppnina hefði einn
fengið dorgkvótann - 15 silunga.
„Eg fór svo í gær (sunnudag) og
fékk vel í matinn," sagði Bjöm.
„Það vantaði straum í vatnið á
laugardaginn. Ef hann hefði blásið
örlítið hefði komið straumur í
vatnið og þá hefði fiskurinn hreyft
sig.“ Mývetningar sögðu einnig
slæmt að snjór lá ofan á ísnum á
laugardaginn - það skemmdi ætíð
fyrir veiðinni.
38 keppendur mættu til leiks á
laugardagsmorgun kl. 11 og dorg-
að var til kl. 16. Helstu verðlaun
vom þessi: Birgir Steingrímsson úr
Mývatnssveit fékk íjöldaverðlaun
og einnig verðlaun fyrir flestar
tegundir, Gylfi Garðarsson frá
Akureyri fékk verðlaun fyrir
stærsta fisk og einnig fyrir besta
gæðamat. I verðlaun vom ýmsar
veiðigræjur, ísbor, flugustöng,
hjól, rotari, veiðitöskur og fleira -
og drógu menn sér verðlaun.
Morgunblaðið/Skapti
Jón Aðalsteinsson frá Vindbelg og Jóhannes Pétur Héðinsson frá
Geiteyjarströnd (t.h.). Ekki er annað að sjá en þeim félögum hafi
líkað lífið í veðurblíðunni þó aflinn væri rýr.
SÍMA
NAMSKEIÐ
NVTT NÁMSKEIÐ
SEM ÖLL FVRIRTÆKI
HAFA NOT FYRIR
Markmið: íslendingar nota síma mest allra þjóða. íslensk
fyrirtæki og stofnanir leggja ( vaxandi mæli áherslu á góða
símaþjónustu. Á þessu námskeiði er lögð höfuðáhersla á að
fræða þátttakendur um þau atriði sem góð símaþjónusta
byggist á og gera þeim grein fyrir mikilvægi starfsins.
Efni:
• Símaháttvísl
• Mannleg samsklptl
• Æflngar I símsvörun
• HJálpartækl I starfl símsvarans
• Ymsar nýjungar I símtæknl, sem koma að góðu gagnl
I starfl
Þátttakendur: Námskéið þetta er aðgengilegt fyrir allt
starfsfólk, hvort sem um er að ræða simsvara, eða aðra þá,
sem nota síma meira og minna í starfi sínu. Þá er þetta tilvalið
námskeið fyrir þá sem eru aö halda út á vinnumarkaðinn.
Leiðbeinendur: Helgi Hallsson, deildarstjóri á skrifstofu
símstöðvarinnar í Reykjavík og Þorsteinn Óskarsson, deildar-
stjóri hússtöðvardeildar Pósts og síma í Reykjavík.
Tíml: 28.-30. aprll kl. 9.00-12.00.
Stiórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Gistiheimil-
ið Hótel
Jörð opnar
kaffistofu
HÓTEL Jörð opnaði kaffistofu á
jarðhæð gistiheimilisins á Skóla-
vörðustíg 13a sl. föstudag. Kaffi-
stofan hefur hlotið nafnið Sólar-
kaffi og verður opin almenningi
frá 9—18 alla daga nema sunnu-
daga.
Að sögn annars eiganda gisti-
heimilisins, Sigrúnar Grímsdóttur
er boðið upp á hefðbundin morgun-
mat, súpur og langlokur í hádeginu
og eftirmiðdagskaffi. Ennfremur
býður starfsfólk Sólarkaffis þá
þjónustu að smyija nestispakka og
útbúa snittur fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Hótel Jörð var opnað í
desember sl., en í gistiheimilinu eru
níu herbergi, eins og tveggja
manna.
A myndinni eru eigendur og
starfsfólk Sólarkaffis. Staðurinn er
í eigu Birgis Aspars og Sigrúnar
Grímsdóttur, sem stendur við hlið
hans. Starfsstúlkumar þrjár heita
Guðlaug Bryngeirsdóttir, stand-
andi, Alda Jónsdóttir, t.v. og Guð-
rún Alfreðsdóttir.