Morgunblaðið - 15.04.1986, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR15. APRÍL1986
Um uppeldi, kennslu og vísindi — I. grein
4
Skálkaskjól fyr-
ir skólaspeki
eftir Guðmund
Magnússon
Hin svonefnda „uppeldis-
fræði“ eða „uppeldis- og kennslu-
fræði“ við Háskóla Islands, og-
sambærileg fræði við Kennara-
háskólann, eru fyrst og fremst
skálkaskjól vafasamrar skóla-
speki eða skólastefnu. Þau eru
vettvangur fyrir innrætingu
hugmynda, sem geta valdið og
hafa þegar valdið upplausn víða
í skólum landsins og dregið úr
menntun barna og unglinga.
Þetta álit mitt, sem ég ætla að
ræða og rökstyðja í þremur greinum
hér í blaðinu, er önnur höfuðástæð-
an fyrir því, að ég er eindregið á
móti því að uppeldis- og kennslu-
fræðingar (hvort sem þeir hafa
lokið prófi frá Háskóla íslands eða
sambærilegu námi við Kennarahá-
skólann) fái einkaleyfi á kennslu
barna og unglinga, eins og lagt er
til í frumvarpi menntamálaráð-
herra, sem liggur fyrir Alþingi.
Hina ástæðuna hef ég áður rætt,
en hún er sú, að einokun á tilteknum
störfum er í senn óhagkvæm (vilji
menn á annað borð fara vel með
fé og njóta góðrar þjónustu) og
siðferðilega ranglát. Eg fagna því,
að efasemdir um lögvemdunar-
stefnuna hafa loks náð inn á Al-
þingi, en þar hafa forystumenn úr
öllum þingflokkum (nema Kvenna-
listanum) lagt fram tillögu til
þingsályktunar „um könnun á
áhrifum lögbundinna forréttinda til
atvinnurekstrar og vinnu.“ Þar
segir orðrétt: „Alþingi ályktar, að
fela ríkisstjóminni að kanna áhrif
lögbundinna forréttinda, m.a.
einkaréttar, til tiltekinna starfa eða
atvinnurekstrar. í könnun þessari
„Þær getgátur um
þroska barna og náms-
hæfni sem í mesturn
hávegum eru hafðar í
f élagsvísindadeildinni
og Kennaraháskólan-
um, og boðaðar, að því
er virðist, sem vísindi
eða a.m.k. leiðarljós í
skóla- og uppeldis-
starfi, eru ekki annað
en brigðul skólaspeki
og að minni hyggju í
meira lagi vafasamar
og sumar alrangar“
skal einkum leitast við að varpa ljósi
á þýðingu einkaréttar eða lög-
bundinna forréttinda á stöðu þeirra,
er slíks réttar njóta, áhrif þess á
verðlag og hagsmuni neytenda yfír-
leitt, svo og á kostnað í rekstri,
jafnt opinberum rekstri sem einka-
rekstri. Þá skal könnuninni einnig
ætlað að leiða í ljós áhrif lögbund-
inna takmarkana af þessu tagi á
tækniþróun, hagvöxt og atvinnu-
stig. Skýrsla um niðurstöður könn-
unarinnar skal lögð fyrir Alþingi.“
Mér virðist sjálfsagt, að þingið
samþykki þessa tillögu (annað væri
í rauninni mikið vantraust á hina
áhrifamiklu flutningsmenn) og fylgi
hugsuninni á bak við hana til enda
með því að afgreiða engin frumvörp
um lögvemdun starfsréttinda, þar
til rannsókninni á áhrifum lög-
verndunar er lokið.
Iðkun „félagsvísinda“
Uppeldisfræði er ein greinin á
meiði svonefndra „félagsvísinda“.
Um það eru skiptar skoðanir hvað
félagsvísindi eru, einnig meðal
þeirra, sem telja sig iðka þau. Á
síðustu öld og fyrstu áratugum
þessarar aldar höfðu margir há-
sk.ólamenn tröllatrú á því, að unnt
væri að gera svipaðar uppgötvanir
um sálarlíf fólks og samfélagslíf,
og vísindamenn höfðu gert um nátt-
úruna. Þeir trúðu því, að finna
mætti sams konar eða áþekk or-
sakalögmál mannlegrar breytni og
við höfum nú fyrir satt, að náttúran
lúti. Af þessu er hugmyndasaga,
sem er fróðleg (og á köflum mjög
fyndin), en því miður tengist hún
líka sorglegustu atburðum mann-
kynssögunnar, hinum skelfilegu
tilraunum með „vísindalegt upp-
eldi“ og „vísindalegt þjóðfélag."
Bemskuhugmyndir félagsvísinda
lifa enn góðu lífi við háskóla um
allan heim, en yfirleitt hafa félags-
vísindamenn þó dregið í land og
þykjast ekki lengur hafa höndlað
eða vera að höndla sannleika, sem
menn ná tæpast nokkru sinni tökum
á.
Ég held því fram, og hef m.a.
sagt það í kennslufyrirlestrum við
heimspekideild háskólans, að iðkun
félagsvísinda við háskóla megi rétt-
læta á sama hátt og ástundan heim-
speki, sagnfræði og bókmennta.
Allt eru þetta menntagreinar; rann-
sóknir og viðræður um rök mannlífs
og mannfélags. Það er auðvitað
ailtaf álitamál, þótt ekki væri nema
frá fjárhagslegu sjónarmiði, hversu
mörgum menntagreinum fámennt
þjóðfélag getur sinnt, og það getur
vissulega verið skynsamlegt að
fækka þeim eitthvað, fremur en
fjölga, og renna þá styrkari stoðum
undir þær, sem eftir verða. Ég vil
hins vegar taka það skýrt fram, að
einkaskoðanir mínar um þetta efni,
sem ég ætla ekki að viðra hér, koma
gagnrýni minni á uppeldisfræðina
og sambærilegar greinar við Kenn-
araháskólann ekkert við. Og að-
finnslur mínar um uppeldisfræði hér
á landi eru ekki nauðsynleg gagn-
rýni á þessi fræði sem slík, enda
er „uppeldisfræði" aðeins safnheiti
viðfangsefna, sem geta verið mikl-
um breytingum háð frá ári til árs,
frá einu landi til annars og einum
skóla til annars. Ég vil líka benda
á, að ýmislegt, sem skrifað hefur
verið í nafni uppeldisfræði, er prýði-
leg lesning. Þar má t.d. nefna Lýð-
menntun Guðmundar heitins Finn-
bogasonar (1903), sem enn er í
góðu gildi.
Hugsunarvillan
Uppeldisfræði er ekki vísindi í
sama skilningi og t.a.m. náttúruvís-
indi. Þetta stafar af því að við-
fangsefnið, sem við skulum segja
að sé sálarlíf og félagslíf barna og
unglinga, er svo margbrotið og
breytilegt meðal einstaklinga, að
almennum og algildum konningum,
sem eiga að vera annað og meira
en tómar getgátur, verður ekki við
komið. Hugmyndir uppeldisfræð-
inga eru sjaldnast prófanlegar og
þar með hrekjanlegar og jafnvel
þær, sem það eru, hafa svo tak-
'I
Landað úr togaranum Björgvin
Dalvík:
Góður þorskur berst á land
Dalvik.
í dag kom togarinn Baldur inn góðri veðráttu til sjósóknar fram Magnús 7,2 10
til löndunar með 100 tn. af stór- að páskastoppi netabáta. Sindri 2,5 3
um og góðum þorski en afla Afli báta og togara sem landað Sveinn 6,5 7
þennan fékk togarinn á fjórum hefur verið á Dalvik fyrstu 3 Dragnót:
sólarhringum á svokölluðum mánuði ársins er: Hrönn 79,6 16
Vesturkanti. Þá kom einnig í dag Rækja:
rækjutogarinn Dalborg með rúm Netabátar Afli í tn. Landanir Björgúlfur 47,5 2
30 tn. eftir fjögurra daga veiði- Búi 19,3 18 Bliki 242,2 13
ferð. Frá Dalvík eru gerðir út 7 Haraldur 233,8 35 Dalborg 309,0 10
netabátar á þessari vertíð auk Heiðrún 160,1 19 Sólfell 18,5 4
þess sem 4 smábátar frá Akur- Kristján 26,7 20 Togarar:
eyri hafa róið héðan í marsmán- Njörður 69,1 23 Baldur 510,5 7
uði. Netabátar lögðu fyrst net Otur 232,5 38 Björgúlfur 571,3 7
sin um mánaðamótin janúar- Stefán Rögnv. 165,5 37 Björgvin 706,8 7
febrúar og hefur aflinn verið Sæljón 153,5 37
góður og má þakka það að hluta Sænes 149,5 28 Fréttaritarar
Danmörk:
Norrænn friðar-
háskóli á Fjóni
Jónshúsi.
SÍÐUSTU viku marsmánaðar
voru norrænir fréttaritarar boð-
aðir til fundar með stofnendum
norræns friðarháskóla í Brend-
erup á Fjóni. Fluttu þar 4 ungir
Danir ávörp og sátu fyrir svör-
um.
í fundarboði sendu forráðamenn
hins nýja lýðháskóla plaköt og
auglýsingar skólans og möppu með
upplýsingum um hin mörgu nám-
skeið, sem halda á í sumar fyrir fólk
á öllum aldri, en skólinn verður
vígður 3. maí nk. í meðfylgjandi
bréfi er minnt á, að SÞ hafa nefnt
árið 1986 friðarár sitt og mun þar
af leiðandi verða enn meira um
friðarumræðu og friðarkennslu um
allan heim, fræðslunámskeið um
afvopnun, um bætt lífskjör í þriðja
heiminum og raunhæfar tilraunir
til að koma í veg fyrir mannrétt-
indabrot. Það er skrifað um ábyrgð
og skyldur Norðurlandanna í friðar-
málum, ekki sízt nú eftir dauða
Olofs Palme. Best verður minningu
hans og hinna mikilvægu starfa
hans á loft haldið með því að ganga
óhikað áfram sömu braut og þróa
anda friðar og réttlætis með norr-
ænum þjóðum. Friðarháskólinn
mun starfa á grundvelli Grund-
tvígsku lýðháskólanna og fara eftir
leiðbeiningum UNESCO um
kennslu í þágu friðar.
Fyrsta ávarpið á blaðamanna-
fundinum flutti Jens Magnild,
eand.jur., stjómarformaður hins
nýja lýðháskóla, en hann hefur
unnið mikið að undirbúningi stofn-
unar hans. Sagði hann friðarháskól-
ann í Brenderup vera fyrsta sinnar
tegundar á Norðurlöndum og jafn-
vel í öllum heiminum og hefði hann
fengið fulla viðurkenningu kennslu-
yfirvalda og góðar móttökur heima-
manna á Fjóni. Er háskólabygging-
in frá 1913, að Stationsvej 54, 5464
Brenderup, og stendur í fallegum
garði nálægt skógi og baðströnd.
Hafa margir aðilar lagt fram fé til
endurbóta á húsnæðinu, t.d. Friðar-
samtök lækna og Friðarsjóðurinn,
og sveitarfélagið, sem er Ejby
kommune, gengið í ábyrgð vegna
lána. Rúmar skólinn 30 nemendur
í fyrstu, en síðar getur hann tekið
við 45 nemendum í senn. Lagði
Magnild áherzlu á, að skólinn væri
óháður öllum stjórnmálaflokkum.
Næstur talaði Jan Oberg, dr.
phil., sem er stjómandi friðarrann-
sókna háskólans í Lundi og í stjórn
hins nýja friðarháskóla. Óskaði
hann undirbúningsnefnd til ham-