Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 15
markað gildi, áð þær hafá í reynd
verið ákaflega lítils virði. Um þetta
er kenningar Svisslendingsins Jean
Piaget, páfa íslenskrar uppeldis-
fræði og nútíma skólaspeki, eitt
ljósasta dæmið, en af þeim má heita
að standi ekki steinn yfir steini
lengur. Það var þetta, sem ég átti
við þegar ég sagði í grein hér í
blaðinu 18. mars s.l., að röklegur
grundvöllur uppeldisfræðinnar væri
veikur.
Höfuðgallinn við uppeldisfræðina
hér á landi er sá, að hún er rekin
sem starfsmenntun fyrir þá, sem
ætla að leggja fyrir sig kennslu og
„uppeldisstörf". Þetta hlutverk
hennar er áréttað í frumvarpinu um
starfsréttindi kennara og einmitt í
hugmyndinni að uppeldisfræði, sem
forsendu kennsluréttinda, felst
hugsunarvillan, sem ég hef mestar
áhyggjur af. Það virðist vera mjög
algengt, að þeir sem lokið hafa
prófi í uppeldis- og kennslufræði
frá Háskóla íslands eða lagt stund
á sambærileg fræði við Kennarahá-
skólann telji sig hafa mikla þekk-
ingu og djúpstæðan skilning á sál-
ar- og félagslífi barna og unglinga,
sem t.a.m. foreldrar hafi ekki og
að sjálfsögðu ekki heldur hinir
„réttindalausu kennarar", sem svo
eru nefndir. Þetta viðhorf rek ég
til kennslunnar og námsefnisins.
Staðreyndin er sú, að þær getgátur
um þroska barna og námshæfni,
sem í mestum hávegum eru hafðar
í félagsvísindadeildinni og Kennara-
háskólanum, og boðaðar, að því er
virðist, sem vísindi eða a.m.k. leið-
arljós í skóla- og uppeldisstarfí, eru
ekki annað en brigðul skólaspeki
og að minni hyggju í meira lagi
vafasamar og sumar alrangar, eins
og ég ætla að ræða í næstu grein.
Uppeldis- og kennslufræðingar, nú
eða sálfræðingar, eru ekki „fag-
menn“ á sama hátt og t.d. bifvéla-
virkjar, sem geta haft fullkomna
og óbrigðula þekkingu á því „kerfi",
sem þeir fást við. Mannlífið er til
allrar hamingju ekki vélgengt eða
neitt í líkingu við það og þess vegna
þurfum við ekki á „vélfræðingum"
að halda til að koma börnum til
þroska eða miðla þekkingu til þeirra
og kveikja skilning þeirra á henni.
Höfundur cr blaðamaður á Morg-
unblaðinu.
ingju með hinn góða árangur, sem
náðst hefði þrátt fyrir hrakspár.
Sagði hann ótrúlega mikla þörf fyrir
slíkan skóla og talaði um hina
mörgu þætti friðar- og afvopnunar-
umræða, sem þar yrði fjallað um í
baráttunni fyrir aukinni virðingu
fyrir öllu lífí á jörðinni.
Björn Förde, cand.phil. og rit-
stjóri „Mellemfolkeligt samvirke",
ræddi einkum um vandamál þriðja
heimsins, sem fræðsluefni yrði flutt
um í háskólanum, og um hin ýmsu
fög, sem þar yrðu kennd, svo sem
skapandi greinar og tónlist. Kvað
hann athyglisvert, að skólinn vekti
mesta umræðu hjá venjulegu fólki,
en ekki hjá áberandi hópum, ekki
síst í kringum skólann á Fjóni, þar
sem velvilji og gestrisni hefði reynst
einstök.
Einn tilvonandi kennara friðar-
háskólans, Mogens Godballe, cand.
scient., talaði síðastur og sagði frá
því, er hann og Flemming Petersen,
sem nú verður forstöðumaður há-
skólans, hittust í Kungálv í Svíþjóð
1981 og einmitt þar, sem Grundtvig
hafði áætlað að norrænn háskóli
skyldi rísa, fæddist hugmyndin að
friðarháskólanum. Godballe er frið-
arfræðingur að mennt og stundaði
nám sitt m.a. í Uppsölum. Hann
bindur miklar vonir við stofnun
háskólans, sem hægt hefur verið
að búa vel úr garði vegna góðra
undirtekta heimamanna og ann-
arra. Vonar hann, að í fögru um-
hverfi Brenderup megi þessi fyrsti
friðarskóli vaxa og dafna og sam-
eina fólk á öllum aldri og úr öllum
þjóðfélagshópum í friðarumræðu og
baráttu fyrir betri og fegurri mann-
heimi.
— G.L.Ásg.
M0RGUNBLABlÐ,rÞRIÐJUDÁGUR15.APRtL1986
m
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
Seinni námskeið vorannar hefjast mánudag 21.
apríl. 8 vikna námskeið. Kennt verður á öllum
stigum. Bókmenntaklúbbur (10 vikur)
Innritun fer fram á Bókasafni Alliance Francaise
alla virka daga frá kl. 3-7 og hefst fimmtudag
10. apríl. Nánari upplýsingar í sfma 23870.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15%
staðgreiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
PAG ^
SÓLBEKKIRJ^
fyrirliggjandi.
8 mismunandi gerdir,
6 m á lengd.
Hringið eftir nónari upplýsingum
eða lítið inn í verslun okkar.
L.L. SENDUM í PÓSTKRÖFU
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 • Reykjavik • sími 38640
bAÐ ER EKKERT
MÁL AÐ HLEYPA
BIRTUNNIINN
Áratuga reynsla hefur kennt okkur að
bregðast skjótt við séróskum og
óvenjulegum hugmyndum með
hagkvæmni í huga. Margvísleg form,
kringlótt, ferköntuð, kúpt eða
píramídalaga af mismunandi stærðum
gefa kost á óteljandi lausnum.
Hafðu samband við okkur með
ÞÍNAR hugmyndir.
QE4GKKNÍ
LÁGMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, S 68-50-03
MÚ ER ÞAÐ 10 ARA
^BYRGÐ A SUTLAGl
á hinum margviður-
kenndu KORK O
PLAST gólfflísum
Þegar þú kaupir KORK
O PLAST þá færðu
SLITÁBYRGÐAR-
skírteini.
ÁBYRGÐIN GILDIR
YFIR 14 GERÐIR KO P.
HRINGIÐ EFTIR
FREKARI UPPLÝSIINIGUM.
Wicanders Kork-o^Plast
Sœnsk gœðavara í 25 ár.
KORK O PLAST er með slitsterka vinylhúð og notað á gólf sem mikið
mæðir á, svo sem á flugstöðvum og á sjúkrahúsum.
KORK O PLAST er auðvelt að prífa og þægilegt er að ganga á því.
Sérlega hentugt fyrir vinnustaði, banka og opinberar skrifstofur.
KORK O PLAST byggir ekki upp spennu og er mikið notað í
tölvuherbergjum.
KORK O PLAST fæst í 13 mismunandi korkmynstrum.
EF ÞU BYRÐ UTI A LAIMDI ÞA SEIMDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS
SÝNISHORN OG BÆKLING.
Einkaumboð á Islandi.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Armúla 16 • Reykjavik • sími 38640
4