Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR15. APRÍL1986
Æsispennandi loka-
umferð í New York
Skák
Margeir Pétursson
STÓRA opna skákmótinu í New
York lauk á mánudaginn eftir
æsispennandi keppni um verð-
laun, sem verða væntanlega
þau hæstu á opnu móti á þessu
ári. Fjórir íslendingar voru á
mótinu og megum við þokka-
lega una við árangurinn, sér-
staklega Helgi Ólafsson sem
varð i 3.-6. sæti og Ieiddi mótið
í fimm umferðum. Það var ekki
fyrr en í síðustu umferð að
tveimur austantjaldsstór-
meisturum tókst að komast
fram úr Helga. Það voru þeir
Jan Smejkal frá Tékkóslóvakíu
og Gyula Sax frá Ungveija-
landi.
Þeir Smejkal og Sax tefldu síð-
an léttar skákir því Ameríku-
mennimir heimtuðu hrein úrslit.
Það var ekki fyrr en búið var að
minnka tímann niður í fimm mín-
útur að Smejkal sigraði. Hann var
vel að sigrinum kominn, lét það
ekki koma sér úr jafnvægi að í
boði voru margfold árslaun í
heimalandi hans.
Spennan fyrir síðustu umferð
var rafmögnuð. Pyrir hana voru
átta skákmenn efstir og jafnir.
Þeir tefldu allir innbyrðis og urðu
úrslit þannig:
Smejkal — Murey (ísarei) 1—0
Sax — Benkö (Bandar.) 1—0
Helgi — Djuric (Júgósl.) V2—V2
Barlov (Júgósl.) — Federowicz V2
—V2
Fyrstu skákinni til að ljúka var
viðureign þeirra Helga og Djuric,
en þar var samið eftir aðeins átta
leiki. Þar með tryggði Helgi sér
góð verðlaun, en lagði það í hend-
ur andstæðinga sinna hversu há
þau yrðu. Bezt hefði verið að öll-
um skákunum hefði lokið með
jafntefli, en þeir Murey og Benkö
áttu ekki upp á pallborðið hjá
heiliadfsunum. Murey þurfti jafn-
tefli til að ná stórmeistaraáfanga
en taugamar voru greiniiega ekki
í lagi. Hann valdi vafasama byrj-
un, sá aldrei til sólar og tapaði í
36 leikjum. Sennilega mikilvæg-
asta skák sem vesalings Murey
hefur teflt.
Viðureign Sax og Benkö var
einnig dramatísk. I miðtaflinu
fómaði Ungveijinn manni en trú
hans á fómina var þó ekki meiri
en svo að hann bauð jafntefli um
leið. Benkö ákvað að tefla áfram,
en réði ekki við flækjumar í fram-
haldinu og varð að lokum að játa
sig sigraðan eftir langt og strangt
endatafl.
Það var hins vegar létt þungu
fargi af bandaríska alþjóðlega
meistaranaum Federowicz eftir
skák hans við Barlov, nýbakaðan
skákmeistara Júgóslava. Banda-
ríkjamaðurinn var í krappri vöm
alla skákina og marði að lokum
jafntefli með því að Barlov áttaði
sig ekki á því að sama staðan kom
upp þrisvar. Þar með krækti
Federowicz sér í góð verðlaun og
stórmeistaraáfanga.
Lokastaðan á mótinu varð
því þessi:
1. Smejkal (Tékkóslóvakíu)
7 v. (13.500 dalir).
2. Sax (Ungvetjalandi) 7 v.
(12.500 dalir).
3.-6. Helgi Ólafsson, Fed-
erowicz, Barlov og Djuric
6V2 v. (2.875 dalir hver).
7.—19. Jón L. Ámason, Adoij-
an (Ungveijalandi),
Ftacnik (Tékkóslóvakíu),
Greenfeld (ísrael),
Gheorghiu (Rúmeníu),
Hulak (Júgóslavíu),
Lobron (V-Þýzkalandi),
Murey (Israel), Garcia
(Kolumbíu), Benkö,
Benjamin, DeFirmian og
Dlugy (allir Bandaríkjun-
um) 6 v., (269 dalir hver).
Margeir Pétursson hlaut 5'/2
vinning og Karl Þorsteins 5.
Það sézt af verðlaununum að
það munaði um hvem hálfan
vinninginn. Fyrstu verðlaunin em
með þeim albeztu sem þekkjast í
skákinni, að heimsmeistaraein-
vígjum undanskildum. Þau þættu
þó ekki umtalsverð í öðrum
bandarískum keppnisgreinum svo
sem golfí eða tennis. Jafnvel
spumingakeppnir í bandaríska
sjónvarpinu sem við dunduðum
okkur einstaka sinnum við að
horfa á, gefa af sér betri fúlgur.
Skýringin er vafalaust sú sem
mótshaldarinn, Jose A. Cuchi,
spánskættaður viðskiptajöfur,
benti mér á, að skák á mjög undir
högg að sækja í íjölmiðlum vestra
og stórmót draga að sér fáa áhorf-
endur. Samt er roksaia í skáktölv-
um og ekki óalgengt að tafli
bregði fyrir í kvikmyndum. Cuchi
er því allbjartsýnn á framtíðina
og telur að skákin muni hægt og
bítandi vinna sér ömggan sess í
Bandaríkjunum sem keppnis-
grein. Sennilega gerist það þó
ekki fyrr en bandarísk æska sér
fram á að hægt sé að vinna sér
inn stórfúlgur með talfsnilld.
Um árangur okkar íslending-
anna er það að segja að hann
verður að teljast vel viðunandi,
mótið var afar sterkt, breiddin
mikil, Elo-stiga-viðskiptajöfnuð-
urinn kom hagstætt út. Frammi-
staða Helga var afar góð, hann
tefldi af öiyggi og fékk aldrei
lakari stöðu. Eftir óskabyijun,
fímm vinninga úr fyrstu sex skák-
unum og óskipt efsta sæti hefði
honum dugað tveir vinningar úr
síðustu þremur skákunum til að
verða efstur, en hann lét öryggið
ráða ferðinni.
Slíkt er auðvitað ávallt umdeil-
anlegt, það varð ekki bæði sleppt
og haldið. Mikil verðlaun voru í
boði en einnig herfilegt að eyði-
leggja gott mót með fífldirfsku í
lokin.
Við hinir byijuðum mun verr
en Helgi og tókst ekki að vinna
okkur upp á blátoppinn í lokin.
Jón náði þó ágætu sæti með hörku
í síðustu tveimur umferðunum. Ég
stóð vel að vígi er fjórar umferðir
voru eftir en ölium skákum mínum
eftir það lauk með jafntefli, þrátt
fyrir ítrekaðar vinningstilraunir.
Það sýnir hversu tilviljanakennd
opnu mótin eru að Karl var sá
okkar sem fékk erfiðasta and-
stæðinga í síðustu umferðunum,
stórmeistarana Adoijan og Al-
burt. Endaspretturinn er það sem
skiptir mestu máli og þessi
óheppni kom því í veg fyrir hærri
vinningatölu hjá honum.
Við skulum nú líta á beztu
vinningsskák Helga á mótinu, sem
hann tefldi gegn bandaríska stór-
meistaranum Andy Soltis.
Hvítt: Soltis (Bandaríkjunum)
Svart: Helgi Ólafsson Sikileyj-
arvörn
1. e4 - c56, 2. Rc3 — Rc6, 3.
Rge2 — e6,4. g3
Lokaða afbrigðið sem nú til
dags þykir ekki gefa miklar vonir
um stöðuyfírburði. Spassky þrá-
ast þó enn við, með litlum árangri
og Karpov bregður því einstöku
sinnum fyrir sig. Hér á landi
beitti Guðmundur heitinn Ágústs-
son því ávallt er færi gafst og
Helgi svarar með leikaðferð sem
hann notaði gegn Guðmundi í
aragrúa hraðskáka fyrir 10—15
árum.
4. — d5, 5. exd5 — exd5, 6. d3
- Rf6, 7. Bg5
Öllu venjulegri leikaðferð er að
ieyfa þessum biskup að lifa og
leika 7. Bg2 — d4,8. Re4
7. - d4, 8. Re4 - Be7, 9. Bxf6
- Bxf6, 10. Bg2 - 0-0, 11. 0-0
- Be7,12. Rf4 - Bf5,13. Rd5
Soltis teflir fyrir augað því
hugmyndin er auðvitað að svara
13. - Dxd5? með 14. Rf6+. Leik-
urinn truflar svart þó ekkert við
að þróa stöðu sína.
13. - Hc8, 14. Hel - Bd6, 15.
Dd2 — b6!, 16. He2?
Svartur hefur náð að jafna
taflið og nú hefði hvítur átt að
sætta sig við orðinn hlut og leika
16. Rxd6 - Dxd6, 17. Dg5 og
stendur þá a.m.k. ekki lakar. Eftir
hróksleikinn nær svartur að halda
biskupaparinu og stökkva Rd5 á
flótta.
16. - Bb8!, 17. h3 - Kh8, 18.
Rf4 - Re5,19. Khl - Hc6!
Smekklegur leikur sem tryggir
svörtum yfírburðastöðu. Hann
hótar nú 20. — Hh6 með kóngs-
sókn. Soltis kemst ekki hjá því
að veikja kóngsstöðu sína.
20. g4 - Bd7, 21. Rg3 - Rg6!,
22. Rxg6 — fxg6,23. Hf 1
Eftir 23. Bxc6? — Bxc6+ ræður
hvítur ekkert við hina langdrægu
biskupa á b8 og c6. T.d. 24. Re4
- Dh4, 25. Kg2 - h5, 26. Hhl
- Kg8, eða 25. Kh2 - Dh4, 26.
Hgl — h5 með óstöðvandi sókn
í báðum tilvikum. Soltis á því
ekki annarra kosta völ en draga
sig enn frekar f vörn.
23. - Dh4, 24. Del - Hcf6, 25.
Kgl — H6f7
Svartur hefur náð óskastöðu
og hvítur getur sig hvergi hrært.
Næstu leiki fer Helgi sér að engu
óðslega til að vinna tíma, enda
liggur ekkert á.
26. He4 - Bc6, 27. He6 - Bd7,
28. He4 — h6!
í mörgum afbrigðum skiptir
miklu máli að hvítur eigi ekki
hróks- eða drottningarskák á
8-reitaröðinni þegar svörtu hrók-
amir fara úr vöminni.
29. b3 — Kh7,30. Re2
Svartur hótaði 30. — Hxf2 þar
sem kóngur hans stendur ekki
iengur á 8.-línunni.
30. - Bc6, 31. He6 - Bxg2, 32.
Kxg2 — Hf3,33. Rgl
Eða 33. Rg3 - Hxf2, 34. Hxf2
- Dxg3+, 35. Kfl - Dxh3+, 36.
Ke2 - Dxg4+, 37. Kfl - Dh3+,
38. Ke2 - Dh5+, 39. Kfl -
Dhl+, 40. Ke2 — Dxel+, 41.
Kxel — Bg3, svo ein vinningsleið
sé rakin.
33. — Hxh3! og hvftur gafst upp.
Háskóli íslands:
Fyrirlestur um
siðferði ástarinnar
JOHN V. Hagopian, prófessor í
enskum og almennum bókmennt-
um við New York State Univers-
ity í Binghamton í Bandaríkjun-
um, flytur opinberan fyrirlestur
í boði heimspekideildar Hásóla
íslands miðvikudaginn 16. aprU
1986 kl. 20.30 í stofu 101 í Odda,
hinu nýja hugvísindahúsi háskól-
ans.
Ifyrirlesturinn nefnist: The Love
Ethic of William Faulkner, og verð-
urflutturáensku.
Prófessor Hagopian er þekktur
fræðimaður á sínu sviði og hefur
gefið út þijár bækur, Inside I og
Inside II sem Qalla um amerískar
bókmenntir og nútímabókmenntir í
Bretlandi, og bók um ameríska rit-
höfundinn J.F. Powers. Auk þess
hefur birst eftir hann fjöldi greina
í bókmenntatfmaritum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fréttatilkynnini;