Morgunblaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
SALÍ:
Rammíslenskt skemmtí-
kvöld á Hótel Borg
SAMSTARF listaskólanema á ís-
landi (SALI) mun standa fyrir
kvöldskemmtun á Hótel Borg
miðvikudaginn 16. apríl nk.
undir yfirskriftinni „Ég vil elska
mitt land“.
I fréttatilkynningu frá SALÍ
segir: „Eins og yfirskrift þessarar
skemmtunar bendir til, þá verður
öll dagskráin með íslensku sniði,
enda kannski vel við hæfi að enda
vetrarstarfið með einni allsheijar,
glæsilegri, rammíslenskri dagskrá.
Sem fyrr verður dagskráin mjög
fjölbreytt, enda fá þar vel flestar
listgreinar að njóta sín til fulls."
Á dagskrá er frumflutningur á
nýju íslensku dansverki, leikur,
söngur, ljóðalestur og nýtt íslenskt
tónverk auk þess sem salurinn
verður skreyttur íslenskum mynd-
verkum. A eftir verður dansleikur.
Kynnir verður Valgeir Skagfjörð.
Aðgöngumiðar kosta 200 krónur.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
(Fréttatilkynning)
:shannon:
: datastor :
Allt á sínum stað
með : shannon :
:datastor:
:ma!A5iw=k:
skjalaskáp
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband við okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
ShflHHOH skjalaskápur hefur „allt á sínum staö".
ÚtsöJustaðir:
REYKJAVÍK, Penninn Hallarmúla. KEFLAVÍK, Bókabúd Keflavíkur. AKRANES, Bókaversl., Andrós
Nielsson HF. ÍSAFJÖRÐUR, Bókaverslun Jónasar Tómassonar. AKUREYRI, Bókaval, bóka- og
ritfangaverslun. HÚSAVÍK, Bókaverslun Þórarins Stefánssonar. ESKIFJÖRÐUR, Elís Guönason.
verslun. VESTMANNAEYJAR, Bókabúðin. EGILSSTAÐIR, Bókabúöin Hlööum.
ÖlAfUR OlSlASOW 4 CO. ilf.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
Hvíta stellið
8 M. matar- og kaffistell (45 stk)
13.610,—
Útborgun kr. 4.000
og eftirstöðvar á víxlum
til þriggja mánaða.
UIU
s. 685411
Höfðabakki 9
Reykjavik
*
Islenska hljómsveitin og Kór Langholtskirkju:
Messías í
vetrarlok
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
ÍSLENSKA hljómsveitin og Kór
Langholtskirkju flytja nú í vetr-
arlok tónverkið Messías eftir
George Friedrich Handel undir
stjórn Jóns Stefánssonar. Um
áttatíu manns taka þátt í flutn-
ingi verksins, þar á meðal ein-
söngvaramir Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir, Sólveig Björling, Garð-
ar Cortes og Halldór Vilhelms-
son. Verkið verður flutt á Akra-
nesi, Selfossi, í Keflavík og
Reykjavík.
Með tónleikum þessum hefur ís-
lenska hljómsveitin haldið á fjórða
tug tónleika á starfsárinu, sem er
hið fjórða í röðinni, eða helmingi
fleiri tónleika en árið á undan.
Tónverkið Messías hefur alloft
verið flutt á íslandi: í fréttatilkynn-
ingu frá íslensku hljómsveitinni
segir: „Hándel samdi verkið af
eldmóði árið 1742 á aðeins tuttugu
og fimm dögum. I því skiptast á
tilkomumiklar aríur og undurfagrir
hljómsveitarþættir og kórar, og er
óhætt að fullyrða, að ekkert tónverk
njóti jafn almennra vinsælda og
þetta verk Hándels. Það er í fímm-
tíu „atriðum" sem mynda þijá viða-
mikla þætti, og stytt tekur verkið
um tvær stundir í flutningi. Fjallað
er um komu hins mikla spámanns
Messíasar, píslardauða hans og
upprisu. Söngtextinn er allur sóttur
í Heilaga ritningu."
Verkið verður flutt fjórum sinn-
um sem hér segir: í íþróttahúsinu
á Akranesi laugardaginn■ 19. apríl
kl. 14, í Selfosskirkju þriðjudaginn
22. apríl kl. 20.30, í íþróttahúsinu
í Keflavík miðvikudaginn 23. apríl
kl. 20.30 og í Langholtskirkju í
Reykjavík fímmtudaginn 24. apríl
kl. 20.30.
Aðgöngumiðar að tónleikunum í
Reykjavík verða seldir í Bókaversl-
un Sigfúsar Eymundssonar, Bóka-
verslun Lárusar Blöndal og í ístóni
við Freyjugötu og stendur forsala
nú yfir. Miðar verða einnig seldir
við innganginn á meðan húsrúm
leyfir.
f----------------------------------------------------------
Terylenebuxur nýkomnar. Mittismál 80—120 cm
kr. 1.195,-. Einnig margar aðrar gerðir af buxum
fyrirliggjandi. Bíljakkar kr. 1.150,-. Skyrtur, nærföt
o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustfg 22 a,
sími 18250.
SENDUM GEGN POSTKROFU
VALHÓSGÖGN
ÁRMÚLI 4 SÍMI82275
Stílhrein og ódýr sófasett
Verð 21.900.- Kjör sem allir ráða við.
Stakur stóll kr. 3.600.-
Tveggja sæta sófi kr. 7.100.-
Þriggja sæta sófi kr. 11.200.-
Stóll m. háu baki kr. 4.300.-
Borð kr. 3.200.- (60x100 cm).
Hornborð kr. 2.200.- (60x60 cm).
Norræiia húsið:
Síðustu háskóla-
tónleikarnir
SÍÐUSTU háskólatónleikarnir á
þessum vetri verða haldnir mið-
vikudaginn 16. apríl.
Carmel Russill leikur á selló og
Stephen J. Yates á píanó, þijú lög
eftir Stephen J. Yates, Aria, Im-
promptu og Cantabile og eftir L.v.
Beethoven sónötu op. 102 nr. 1 í
C-dúr. Tónleikamir eru í Norræna
húsinu og hefjast kl. 12.30 og
standa u.þ.b. hálftíma.
(Fréttatilkynning.)