Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 21
MQRGUNBLAÐIB, ÞRIÐJUDAQUR KkA*>Rfcli9a6
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi:
Starfshópur kann-
ar öryg'gi við
geymslu ammoníaks
Félagsmálaráðherra hefur
sett á laggimar starfshóp sam-
kvæmt tillögu Vinnueftirlits rík-
isins, sem fjalla á um öryggi við
geymsiu ammoníaks hjá Aburð-
arverksmiðju ríkisins í Gufunesi.
Starfshópinn skipa Eyjólfur
Sæmundsson forstjóri Vinnueftir-
lits ríksins, sem er formaður, Þórður
Þorbjamarson borgarverkfræðing-
ur, Guðjón Petersen forstöðumaður
Almannavama ríkisins, Ólafur Pét-
ursson forstöðumaður mengunar-
vama Hollustuvemdar ríkisins og
Runólfur Þórðarson framkvæmda-
stjóri tæknisviðs Áburðarverksmiðj-
unnar.
Eyjólfur Sæmundsson formaður
starfshópsins sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikið magn af
ammoníaki væri geymt hjá Aburð-
arverksmiðjunni. Hann sagði að það
hefði þótt rétt að kanna þetta mál
út frá fyrirbyggjandi sjónarmiði.
Nú orðið væm menn almennt mun
meira vakandi yfír því að gera
ýmsar fyrirbyggjandi ráðstafanir
við geymslu og meðferð hættulegra
efna.
Eyjólfur sagði að erfítt væri að
segja til um hvenær niðurstöður
fengjust úr athugunum sem gerðar
verða á vegum starfshópsins, en
búast má við að ýmar athuganir
geti tekið nokkuð langan tíma.
Fjármálaráðherra:
Athugar lækkun tolla á
aðföngum til garðyrkju
SAMKOMULAG hefur orðið á
milli Þorsteins Pálssonar fjár-
málaráðherra og forystumanna
garðyrkjubænda að setja á stofn
nefnd til að kanna möguleika á
niðurfellmgu tolla á rekstrarvör-
um garðyrkjunnar.
Fjármálaráðherra sagði að for-
ystumenn Sambands garðyrkju-
bænda hefðu nýlega komið á sinn
fund til að ræða stöðu garðyrkjunn-
ar og í framhaldi af þeim fundi
hefði verið ákveðið að setja niður
nefnd beggja aðila til að kanna
tollamálin. Nefndinni væri ætlað að
athuga möguleika á niðurfellingu
tolla á Qárfestinga- og rekstrarvör-
um, til að koma til móts við innlendu
framleiðsluna í framhaldi af tolla-
lækkunum á innfluttu grænmeti.
Nefndin á að hafa hliðsjón að þeim
tollaívilnunum sem aðrar atvinnu-
greinar hafa fengið og skila tillög-
um til úrbóta.
Pölarlax* Morgunblaðið/Arnór
Milljón seiða stöð rís af grunni
Miklar framkvæmdir standa nú yfír í fískeldisstöð Pólarlax í Straumsvík, en þar er verið að reisa 2300
fermetra skála fyrir eldisker. Húsið sem fyrir er er um 700 fermetrar og er hér því um að ræða rúmlega
þreföldun á húsnæði stöðvarinnar. Eftir stækkunina er gert ráð fyrir að stöðin stækki úr 300 þúsund
seiða stöð í milljón seiða stöð.
Pegar þú greiðir með tékka, fyrir vöru eða veitta
þjónustu, og sýnir Bankakortið þitt, jafngildir það
ábyrgðarskírteini frá viðskiptabankanum eða spari-
sjóðnum þínum, sem ábyrgist innstæðu tékkans
að ákveðinni hámarksupphæð og tryggir þannig
viðtakandanum innlausn hans. Viðskiptineiga
sér þannig stað að um leið og þú afhendir
tékkann, sýnirðu Bankakortið og viðtakandinn
skráir númer kortsins á hann.
Þannig er Bankakortið þitt tákn um trausta
viðskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt
handbært.
Bankakortið
- nauðsynlegt í nútímaviðskiptum
Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþýðubankinn,
Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.
,
AUK hf. X2.1/SÍA