Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL1986 23
læknismenntaðra manna á undan-
förnum árum var ekki farin að hafa
veruleg áhrif á landlæknisárum
Sigurðar.
Á embættisárum hans var
landinu skipt í 57 læknishéruð, og
sat einn héraðslæknir í hverju.
Læknar þessir voru í senn heil-
brigðisyfírvald og heimilislæknar
héraðsbúa. Við þessa lækna átti
Sigurður mikil og góð samskipti
með heimsóknum, bréfaskiptum og
ekki síst símtölum. Varði hann
miklum tíma til að leysa úr vanda-
málum þeirra, svara fyrirspurnum,
gefa út fyrirmæli og veita þeim
ýmsa fyrirgreiðslu.
Allt frá því er Sigurður Sigurðs-
son hóf berklavarnarstarfsemi sína
stóð hann í fylkingarbrjósti þeirra
manna, sem mestan skerf lögðu til
heilbrigðismála landsmanna, og
hann átti sæti í fjölda nefnda og
ráða, er um heilbrigðismál fjölluðu.
Hann hefur reist sér óbrotgjarnan
minnisvarða í heilbrigðismálasögu
þjóðarinnar og skipar virðulegan
sess við hlið fyrri landlækna.
Eg votta hinum látnu landlæknis-
hjonum, Sigurði Sigurðssyni og
Bryndísi Ásgeirsdóttur, virðingu og
þakklæti. Dætrunum þremur, Sig-
rúnu, Svanhildi og Guðrúnu, mök-
um þeirra og börnum sendi ég
samúðarkveðjur okkar hjóna.
Benedikt Tóinasson
Við fráfall tengdaföður okkar,
Sigurðar Sigurðssonar, er margs
að minnast. Framarlega stendur
mynd hins mikilhæfa, farsæla
manns, sem vann þjóð sinni stór-
virki og skilaði löngum, erilsömum
vinnudegi af fágætri trúmennsku.
Okkur eru þó efst í huga minningar
um fjölskylduföðurinn, félagann,
vininn.
Sigurður Sigurðsson vann störf
sín af ótrúlegri kostgæfni og sam-
viskusemi. Af þeim sökum hlóðst á
hann ijöldi tímafrekra trúnaðar-
starfa. Eigi að síður virtist hann
alltaf hafa tíma til að sinna fjöl-
skyldu sinni. Þau hjónin voru ákaf-
lega samhent og lögðu mikla alúð
við uppeldi dætranna þriggja. Sú
umhyggja dvínaði ekki þótt ungarn-
ir flygju úr hreiðri og barnabörnin
nutu ástar afa og ömmu í ríkum
mæli.
Það var ekki vandalaust að vera
tengdasonur Sigurðar Sigurðsson-
ar. Sterkur persónuleiki hans stóð
að baki dótturinni vakandi yfir
velferð hennar — þegjandi hvatning
til að reynast henni vel. Síðar lærð-
ist að elska manninn og meta sem
vin, góðan félaga og vitran ráð-
gjafa.
Þeim duldist mörgum, sem
kynntust hinum alvarlega, ná-
kvæma og samviskusama embætt-
ismanni, að bakvið það viðmót
leyndist viðkvæmur maður fullur
ástríkis, sem átti ómælda blíðu ást-
vinum sínum til handa. Glaðværð
hans og græskulaus stríðni á góðum
stundum hefði sjálfsagt einnig
komið ýmsum á óvart.
Sigurður var listelskur maður og
þróaði með sér næman smekk fyrir
myndlist og tónlist. Myndir Ásgríms
og Kjarvals prýddu heimili hans,
enda var Sigurður góðvinur þeirra
listamanna beggja. Tónlistarsmekk
sinn ræktaði Sigurður af alúð og
er trúlegt, að Bryndís, kona hans
hafi átt þar hlut að máli enda hafði
hún góða tónlistargáfu og var
ágætur píanóleikari. Einkum voru
það hinir klassísku jöfrar Bach,
Mozart og Beethoven, sem áttu
uppá pallborðið hjá Sigurði. Hann
var einn hvatamanna að stofnun
Sinfóníuhljómsveitar íslands og
sótti tónleika hennar frá upphafi
svo lengi sem hann gat. Um alllangt
árabil sat hann í stjórn Tónlistar-
skólans í Reykjavík.
Bókmenntaáhugi Sigurðar var
mikill og ber gott bókasafn hans
þeim áhuga vitni. Einkum las hann
bækur og tímarit er lutu að sögu
og háttum lands og þjóðar. Sigurður
var sjóður af fróðleik og miðlaði
honum gjarnan til annarra. Sögu-
maður var hann góður og sagði ítar-
lega og skipulega frá. Að sögn
þeirra læknanema, sem nutu tíma-
bundinnar kennslu hans, var hann
afbragðskennari.
Ást Sigurðar á heimahögunum í
Húnaþingi dvfnaði aldroi Hann
hafði unun af heimsóknum þangað
til að hitta frændfólk sitt, reika um
æskustöðvarnar eða renna í Laxá
á Ásum. Slíkar heimsóknir urðu
því miður allt of fáar sakir annríkis
hans. Það var gaman að fylgja
Sigurði í slíkum ferðum. Hann varð
sem ungur á ný og miðlaði þrotlaust
af fróðleik sínum um héraðið og
íbúa þess.
Sumarbústaður þeirra hjóna í
Laugarási í Biskupstungum var
þeim mikill yndisauki, einkum
meðan dæturnar voru enn á barns-
aldri. Eftir alllangt hlé var þráður-
inn tekinn upp að nýu, bústaðurinn
stækkaður og búið í haginn fyrir
stækkandi fjölskyldu. Vaxandi
veikindi Bryndísar og ófyrirsjáanleg
óhöpp tóku síðar fyrir drauma
Sigurðar um þennan sælureit fjöl-
skyldunnar, sem öll saknar Ijúfra
stunda í Laugarási.
Sigurður fór nokkuð dult með
afstöðu sína til trúmála. Hann var
fús til að ræða þau mál, þegar til-
efni gafst til, og þá kom í ljós
rökhyggja hins vísindalega mennt-
aða manns, sem gerir skýran grein-
armun á trú og þeirri þekkingu, sem
aflað verður með aðferðum raun-
vísinda. En einlægur trúmaður var
hann engu að síður. Trú hans birtist
ekki síst í lotningu fyrir lífinu,
alvöru þess og ábyrgð, og í mikil-
vægi þess, að menn virði í hvívetna
þau lögmál, sem skapari lífsins
hefur sett. Siðgæðislögmál krist-
innar trúar var honum þannig sem
óskrifuð lög. í trúarefnum bar
Sigurður fagurt vitni þeirri trú, sem
birtist í því fyrst og fremst, „að
gjöra vilja föður míns, sem er á
himnum". { víngarði drottins eijaði
hann langan starfsdag af stakri
trúmennsku við Guð og menn.
Þegar nú leiðir skilja, þá er efst
í huga þakklæti til þeirra hjóna,
Sigurðar og Bryndísar, fyrir ástríki
þeirra og göfuglyndi. Lífsferill
þeirra var blessaður af góðum Guði,
og frá þeim streymdi blessun í rík-
um mæli til ættingja og vina, en
einnig til fjölmargra vandalausra.
Þökk sé Guði.
Björn Björnsson,
Páll Ásmundsson.
Hann afi er dáinn. Það er skrítið
til þess að hugsa. Við afi vorum
góðir vinir. Það eru fáir sem ég hef
virt jafnmikils og hann.
Hann var mjög ákveðinn í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur. Það
sem honum þótti rétt að gera fram-
kvæmdi hann án nokkurs hiks. Afi
var mjög fróður. Það var næstum
sama hvar var borið niður, alltaf
hafði hann svo mikið til málanna
að leggja. Betri leiðsögumenn var
ekki hægt að hugsa sér á ferðalög-
um. Auk örnefna og bæjanafna
kunni hann ógrynnin öll af sögum
og hafði sjálfur ferðast svo mikið
á sínum starfsferli.
Afi var mjög barngóður. Hann
vildi alltaf allt fyrir okkur barna-
börnin gera og var mjög umhugað
um allt það sem okkur varðaði. Ég
Framh. á bls. 50.
“tT* ■-ateá.............. \
STOR-
AFMÆU
Afmælisnefnd Reykjavíkur hefur gefið út
vandaða minnispeninga í tilefni 200 ára
afmælisins.
Þetta er falleg slátta í sterlingsilfur og kopar. í
vandaðri öskju, ein sér eða báðar saman.
Minnispeningamir eru eigulegir gripir, tilval-
in gjöf. Til vina, kunningja eða einfaldlega til
þinnar eigin eigu.
Framleiðandi minnispeninganna er ísspor hf.
Um er að ræða takmarkað upplag.
Útsölustaðir: Bankar, sparisjóðir og minja-
gripaverslanir.
Þvermál: 5cm.
Þykkt: 5mm.
Viðmiðunarþyngd: 90 gr. Hönnuður: Tryggvi T. Tryggvason.
Afmælisnefnd Reykjavíkur
Verð: Sterlingsilfurpeningur í öskju kr. 2.750,-
Koparpeningur í öskju kr. 950,-
Settið í öskju kr. 3.500,-