Morgunblaðið - 15.04.1986, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
m ________________
Hættum við allt
láti Khadafy af
hry ðj u ver kum
segir talsmaður Bandaríkjastjórnar
Washington, AP.
Bandaríkjamenn myndu hætta
við allar aðgerðir gegn Líbýu,
ef Moammar Khadafy breytti
afstöðu sinni og hætti að skipu-
leggja hryðjuverk um allan heim.
Skýrði John C. Whitehead, tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins frá þessu í dag.
Hans-Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýzkalands
átti í morgun fund með Richard
Burt, sendiherra Bandaríkjanna í
Bonn um afstöðuna til Líbýu. Síðar
í dag varaði Herbert Schmiilling,
talsmaður vestur-þýzku stjórnar-
innar, við því, að gripið yrði til
hernaðaraðgerða gegn Líbýu. Skor-
aði hann á þjóðir Evrópu og á araba
að vinna saman að því markmiði
að binda enda á hryðjuverk í heim-
inum.
Georgi Kornienko, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði
í dag, að Sovétmenn og Bandaríkja-
menn hefðu haft samband sín í
milli varðandi Líbýu. Það væri hins
vegar ekki „til neins gagns" að
skýra frá því, hvort Sovétríkin
hefðu sent aðvörun til stjómvalda
í Washington varðandi hemaðarað-
gerðir gagn Líbýu.
Sergei Akhromeyev, fyrsti að-
stoðarvamarmálaráðherra Sovét-
ríkjanna, sagði í dag, að það væru
Sovétmenn við störf í Líbýu og
margir væru uggandi um öryggi
þeirra vegna hótana Bandaríkja-
manna.
Reagan
hrífst af
áformum
Nakasone
Thurmont, Maryland. AP.
YASUHIRO Nakasone, forsætis-
ráðherra Japans, skýrði Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseta, frá
því að hann væri staðráðinn í að
breyta lífsmáta Japana og menn-
ingu á þann veg að Japan opnað-
ist meira fyrir vestrænum út-
flutningsvörum. Nakasone er nú
í Bandaríkjunum og var fyrsti
fundur hans með Reagan á
sveitasetri forsetans í Camp
David í gær.
Reagan er sagður hafa hrifíst
af ákveðni Nakasone, sem hefur
þó ekki tímasett áform, sem ætlað
er að stuðla að meiri jöfnuði í við-
skiptum Japana annars vegar og
Bandarílqanna og annarra vest-
rænna ríkja hins vegar. Hefur stjóm
Nakasone í hyggju að stytta vinnu-
vikuna úr sex dögum í fímm, hækka
kaup og letja menn til spamaðar,
en spamaður einstaklinga mun
hvergi meiri í iðnvæddu ríki en í
Japan.
Nakasone auðsýndi samúð sína
AP/Símamynd
Reagan Bandaríkjaforseti og
Nakasone forsætisráðherra Jap-
ans faðmast við komu þess síðar-
nefnda í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna. Myndin var tekin
á sveitarsetri Reagans í Camp
David á sunnudag.
vegna hryðjuverka, sem beinst hafa
gegn Bandaríkjamönnum. Leið-
togamir ræddu mikið um hryðju-
verkastarfsemi og létu báðir í ljós
áhuga og vonir um aukna alþjóð-
lega samvinnu til að reyna að hindra
hryðjuverk. Reagan mun ekki hafa
óskað eftir stuðningi Japana við
hugsanlegar refsiaðgerðir gegn
Líbýu.
Asamt Reagan tóku George
Bush, varaforseti, og George
Shultz, utanríkisráðherra, þátt í
fundunum með Nakasone.
Námsmenn frá Nígeríu og verkamenn frá Indlandi og Pakistan, þar af margar konur, söfnuðust saman
í Trípoli í Líbýu i gærmorgun til þess að sýna stuðning sinn við Khadafy en andstöðu sína við Banda-
ríkjamenn.
Eftirlit með banni við
kjarnorkuvopnatilraunum
Olafur Ragnar Grímsson gekk á fund Shevardnandze
og kynnti honum nýjar tillögur samtakanna PGA
ÓLAFUR Ragnar Grímsson gekk
í siðustu viku ásamt nokkrum
helztu mönnum samtakanna
Parlamentarians Global Action á
fund Shevardnadze, utanrikis-
ráðherra Sovétríkjanna, og
kynntu þeir honum tillögur
samtakanna um framkvæmd
eftirlits með banni við tilraunum
með kjamorkuvopn, sem ýmsir
bandariskir sérfræðingar hafa
Carlsson
í Moskvu
Moskvu. AP.
INGVAR Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, kom til Moskvu
f gær og tók á móti honum Nik-
olai I. Ryzhkov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna.
Carlsson er fyrsti sænski leið-
toginn, sem heimsækir Sovétríkin
í áratug. Búist er við að Carlsson
hitti Mikhail Gorbachev, leiðtoga
Sovétríkjanna, áður en hann heldur
aftur til Svíþjóðar á fímmtudag, en
hann mun aðallega ræða við Ryzh-
kov.
mótað á vegum samtakanna.
Kom þetta fram á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var í Moskvu
sl. föstudag.
í þessum viðræðum lýsti utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna því yfír í
fyrsta sinn, að Sovétríkin væru
reiðubúin að fallast á, að erlendir
sérfræðingar, þeirra á meðal banda-
rískir eftirlitsmenn, gætu komið
fyrir mælitækjum í námunda við
tilraunastöðvar Sovétríkjanna og
haft aðsetur í Sovétríkjunum til að
fylgjast með mælitækjunum.
I sendinefnd samtakanna PGA
voru auk Ólafs Ragnars Grímssonar
þeir Relus ter Beek, formaður utan-
ríkismálanefndar hollenzka þingsins,
Nicholas Dunlop, framkvæmdastjóri
samtakanna og Frank von Hippel,
prófessor við Princeton-háskóla í
Bandaríkjunum, sem ásamt öðrum
bandariskum vísindamönnum hefur
veitt samtökunum sérfræðiaðstoð á
sviði kjamorkuvígbúnaðar.
Viðræðumar í Moskvu fóm fram
10. til 11. apríl. Meðal þeirra fulltrúa
sovézka utanríkisráðuneytisins og
vamarmálaráðuneytisins, sem tóku
þátt í viðræðunum, vom þeir Vlad-
imir Petrovsky, yfírmaður alþjóða-
deildarinnar, Evgueni Batenin hers-
höfðingi og Vladimir Lomeiko, aðal-
talsmaður utanríkisráðuneytisins.
Á blaðamannafundinum skýrði
Ólafur Ragnar Grímsson einnig frá
því, að fulltrúar PGA hefðu kynnt
Shevardnadze ítarlega greinargerð
um alþjóðlega eftirlitsstofnun, sem
Jerome Wiesner, er var vísindaráð-
gjafí Kennedys Bandaríkjaforseta,
samdi á vegum samtakanna.
Enn eitt meginatriðið í viðræðun-
um við Shevardnadze var að kanna
nýjar leiðir til að koma á formlegum
samningi um allsheijarbann við öll-
um tilraunum með kjamorkuvopn.
Seinni hluta ársins 1985 unnu
PGA-samtökin að mótun tillagna um
hvemig nota mætti ákvæði í samn-
ingi um takmörkun kjamorkuvopna-
tilrauna, sem gerður var 1963, til
að kalla saman formlega samninga-
ráðstefnu allra ríkja, sem staðfest
hafa samninginn, en þau eru alls
114. í viðræðunum í Moskvu nú lýsti
Shevardnadze því yfir, að Sovétríkin
væru reiðubúin að ræða þessa nýju
aðferð á ítarlegan hátt.
Auk viðræðnanna við Shev-
ardnadze átti sendinefnd PGA við-
ræður við Evgueni Velikov og Sergei
Kapitza, stjómendur Vísindaaka-
demíu Sovétríkjanna, en Velikov er
meðal helstu ráðgjafa sovézkra
stjómvalda í afvopnunarmálum.
Simone deBeauvoir
látin á á ttræðisaldri
París. AP.
FRANSKI rithöfundurinn Simone de Beauvoir lést í gær í
sjúkrahúsi í París 78 ára að aldri. Beauvoir var félagi,
ástkona og ævisöguritari franska heimspekingsins Jean-
Paul Sartre heitins. Dánarorsök Beauvoir er ekki kunn.
Ein frægasta bók Beauvoir er
„Hitt kynið" sem talin er tíma-
mótarit í kvennabókmenntum.
Aðrar bækur hennar eru „Mand-
arínamir" og „Kveðjuathöfn" sem
segir frá síðustu árum Sartre og
þótti mörgum að hún hefði betur
látið ógert að ákrifa þá bók vegna
þess hversu nákvæmlega sagt frá
hvemig heilsu heimspekingsins
hrakaði.
Simone de Beauvoir var einn
metnaðarfyllsti kvenrithöfundur
Frakka á þessari öld og grundvall-
arhugsuður kvennahreyfíngarinn-
ar. Stuðningur hennar við kvenna-
hreyfínguna er rauði þráðurinn í
skrifum hennar, sem mestan part
vom af sjálfsævisögulegum toga.
Og baráttan mótaði líf hennar
allt frá bamæsku til dauðadags.
Hún giftist aldrei Sartre, en
þrátt fyrir mörg ástarævintýri,
sem oft og tíðum var slegið upp
í Qölmiðlum, dvínaði djúpstæð ást
þeiira og gagnkvæm virðing aldr-
ei. í bókinni „Hitt kynið“, sem út
kom 1949, lýsir de Beauvoir
hjónabandinu sem „viðurstyggi-
legri borgaralegri stofnun". Áð
hennar hyggju var hjónabandið
með reglum sínum og skylduboð-
um niðurlæging á sambandi
tveggja aðilja reistu á jafnrétti
og gagnkvæmri og sjálfkvæmri
hrifningu. Þetta rit er nú talið
biflía alþjóðlegra kvennahreyf-
inga.
Gagnrýnendur de Beauvoirs
sökuðu hana um að vera fjarlæga,
vitsmunalega og sneydda skop-
skyni í skrifum sínum um málefni
kvenna. Og bækur hennar báru
vissum tepmskap vitni, einkum
þegar hún skrifaöi um kynferðis-
mál. Þetta var arfleifð uppvaxtar
í velmegandi millistétt. Faðir
hennar var trúleysingi, en móðirin
kaþólsk og heimtaði að dóttir sín
yrði alin upp í trúarlegum anda.
Hún eignaðist ekki böm og gagn-
rýndu konur hana á þeirri for-
sendu að hún þekkti ekki grund-
vallaratriði þess að vera kona.
Beauvoir sagði í heimildakvik-
mynd, sem gerð var um hana
Simone de Beauvoir lést í gær.
1979, að hún hafí alls ekki verið
femfnisti þegar hún skrifaði „Hitt
kynið". Óllu heldur hafí hún
hvorki getað haldið áfram að
skrifa skáldsögur né hafíð ritun
sjálfsævisögu sinnar án þess að
gera áður fræðilega úttekt á því
að vera kona. Hún hafí fyrst orðið
femínisti skömmu áður en myndin
var gerð og löngu eftir að bókin
vakti konur um heim allan til
meðvitundar.
Hún kvaðst aftur á móti aldrei
hafa sætt sig við femínisma eins
og hann var skilgreindur á sjö-
unda og áttunda áratugnum. Hún
hefði fyrst og fremst alið í bijósti
hugsjón um fjölræði, kommúnískt
þjóðfélag, sem hún þekkti engin
fordæmi fyrir.
Sartre og de Beauvoir bjuggu
í sitt hvorri íbúðinni á sömu slóð-
um í París þau 50 ár, sem þau
áttu samleið. Þau fyrirlitu flestar
þjóðfélagslegar hefðir og hunds-
uðu samkundur rithöfunda og
annað félagslíf fína fólksins í
París. Þau umgengust aðeins
þröngan vinahóp á þekktum veit-
ingastöðum á vinstri bakka Signu.
Þar má nefna Cafe Flore og La
Coupole.
Þau stóðu hlið við hlið í mót-
mælaaðgerðum og voru marg-
sinnis handtekin af lögreglu fyrir
ólögleg mótmæli. Saman ritstýrðu
Sartre og de Beauvoir ritum
lengst til vinstri, sem yfírvöld
bönnuðu og sögðu að hvettu til
ofbeldis.