Morgunblaðið - 15.04.1986, Síða 30
MORGJJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
"■‘:rr "vr *. •: : ;.n ~.c!r* /*rtt«;Kir‘iT
CIA veitti fé til
Contra-skæruliða
Washington. AP.
HAFT er eftir starfsmönnum
Bandaríkjastjórnar að banda-
ríska leyniþjónustan CIA, sem
bannað er að veita „Contra“
skæruliðum í Nicaragua hernað-
araðstoð, hafi leynilega látið
skæruliðanna fá nokkrar milljón-
ir dollara á síðasta ári.
Sögðu embættismennimir að féð
hefði runnið til hinnar pólitísku
hreyfingar skæruliðanna, Samein-
uðu andspymuhreyfíngarinnar í
ítalskt vín:
Metanól finnst í
300 víntegundum
B«rn, Kaupmannahöfn. AP.
Heilbrigðisráðuneyti Sviss aflétti
í gær viðvörunum, sem gefnar
Kosningar í Súdan:
Mjótt milli hefð-
bundinna f lokka
Khartoum. AP.
FYRSTU tölur er birtar voru í
þingkosningunum í Súdan í gær
bentu til þess að mjótt yrði á
munum milli tveggja hefðbundnu
flokkanna eins og búist hafði
verið við. Aftur á móti var ljóst
að strangtrúarflokkur múham-
eðstrúarmanna myndi gjalda
mikið afhroð í þessum fyrstu
þingkosningum í landinu í átján
ár.
Hassan Turabi, leiðtogi Þjóðemis-
fylkingar múhameðstrúarmanna,
missti þingsæti sitt í höfuðborginni
Khartoum vegna þess að hinir flokk-
amir fimm drógu frambjóðendur
sína til baka og fylktu liði um Hassan
Shibu, frambjóðanda Sameinaðra
lýðræðissinna.
Ekki er ljóst hvaða afleiðingar
ósigur Turabis hefur fyrir flokk hans
á þinginu, sem stofnað var til að
binda enda á sautján ára herfor-
ingjastjóm í Súdan. Stjómmálaskýr-
endur bjuggust margir við því fyrir
kosningamar að Þjóðemisfylkingin
fengi nægt fylgi til að komast í stjóm
með öðrum aðilum næstu ríkisstjóm-
ar.
Kosningamar stóðu í tólf daga
og lauk þeim á laugardag. Ekki er
búist við endanlegum úrslitum fyrr
en í lok vikunnar.
höfðu verið út við neyzlu ítalskra
vína. Ráðuneytið leggst ekki leng-
ur gegn neyzlu ítalskra vína, sem
keypt eru í verzlunum, en varar
Svisslendinga við að kaupa vin á
Italíu og taka með sér heim.
Metanól fannst í sendingu af ít-
ölsku víni í vínbúð í Árósum í gær
og var það umsvifalaust fjarlægt úr
verzluninni. Eitrið, sem valdið getur
blindu og jafnvel dauða, uppgötvað-
ist við rannsókn á vegum innflytj-
enda vínsins.
Rannsókn á Ítalíu hefur leitt í ljós
metanól í 300 ítölskum víntegund-
um. Metanólið reyndist ofar viðun-
andi mörkum. Alls eru 20.466 vín-
framleiðendur á Ítalíu. Vínhneysklið
hefur kostað 22 ítali lífið og 20
menn eru í sjúkrahúsi með einkenni
veikinnar.
Nicaragua, til þess að borga foringj-
um og stuðningsmönnum skæmlið-
anna til að opna skrifstofur í Evrópu
og rómönsku Ameríku og fjár-
magna ferðir til að leita stuðnings
erlendis.
Féð var tekið af heildaifyárveit-
ingu ríkisins til CIA. Ronald Reag-
an, forseti, og William J. Casey,
yfírmaður CLA, ráða hvemig fénu
er varið og hafa rétt til að fara
leynt með. CIA verður að láta tvær
þingnefndir um málefni leyniþjón-
ustunnar vita af slíkum Qárfram-
lögum og var það gert.
Embættismennimir sögðu að
CIA hefði sagt þessi fjárframlög
renna til pólitískra verkefna og
hafí þau numið nokkmm milljónum
dollara. Þessi fjárframlög gera CLA
kleift að beita áhrifum meðal
„Contranna", þrátt fyrir að Banda-
ríkjaþing hafí bannað leyniþjón-
ustunni að eyða fé til beins eða
óbeins stuðnings við aðgerðir gegn
Sandinistastjóminni í Nicaragua,
hvort sem þær væm hemaðarlegs
eða pólitísks eðlis, frá október 1984
fram í endaðan september 1985.
Þessi fjárhagsaðstoð frá CIA nær
ekki yfir þær 27 milljónir dollara,
sem þingið samþykkti að veita
skæmliðum í Nicaragua á síðasta
ári.
Kathy Pherson, talsmaður CLA,
neitaði að segja nokkuð um þetta
mál utan hvað höft þingsins hefðu
ekki verið rofín.
Eldfla ugartrjóna
TRJÓNA hægri hliðarfiaugar geimferjunnar Challcnger náðist
upp af hafsbotni undan Flórídaskaga á dögunum. Talið er að
bilun í hjálparflauginni hafi leitt til Challengerslyssins. Starfs-
maður bandarísku flugslysanefndarinnar (NTSB) er fyrir fram-
an flaugaroddinn og skráir niður athugasemdir sinar.
Indland:
Pílagrímar troðnir
undir við Gangesfliót
Nýju Delhí. AP. ^
N#u Delhí. AP
FJORUTÍU og sex manns tróðust
undir og biðu bana í miklum
þrengslum f röðum pílagríma,
sem ætluðu að baða sig í hinu
heilaga Gangesfljóti i gær. Þijá-
tfu og níu manns slösuðust.
Margar milljónir manna flykktust
til borgarinnar Hardwar á bökkum
Gangesar til þess að baða sig í ánni.
Þessi athöfn er hápunktur Khumbh
Mela, trúarhátíðar hindúa, sem hald-
in er á tólf ára fresti.
Að fréttastofu Indlands varð slys-
ið er lögregla reyndi að halda aftur
af mannfjöldanum nærri brú er ligg-
ur að Har-Ki Pauri, eða þrepum
gfuðs, sem er helgasti baðstaðurinn.
Settur hafði verið upp tálmi og brast
ísraelar spá sér gengi í Eurovision
„Gillon-formúlunni fylgt“ sagði poppskrifari Jerusalem Post
„Ég er reiðubúinn að veðja við hvem sem er, að möguleikar
okkar á þvi að sigra i Eurovision-keppninni f ár em vemlega
miklir," segir Philip Gillion poppsérfræðingur Jemsalem Post í
grein sem birtist í blaðinu fyrir nokkm. „Meginástæðan fyrir þvi
að ég þori að taka heilmikið upp í mig er að vinningslagið Yavo
Yom — Sjá dagur kemur — eftir Motti Giladi var eina lagið í
undanúrslitunum hér sem var samviskusamlega samið samkvæmt
Gillon-formúlunni. Eins og allir vita unnum við söngvakeppnina
tvívegis með því að þessari formúlu var fylgt út í hörgul — með
lögunum Halelujah og A-ba-ni-bi. Það er að vísu misskilningur að
mgla sigri i þessari keppni saman við það að komast á tindinn sem
popp-kóngur/drottning, þaðan af síður getum við gengið út frá
því vísu að sigurlagið komist á topp-20 og í þriðja lagi er ekki
bókað að milljón plötur seljist af verðlaunalaginu.
Þessi keppni er öli upp á meðal-
mennskuna og höfðar einkum til
þeirra, sem gera takmarkaðar og
einhliða kröfur til dægurlaga.
Hljóðfallið verður að vera hæfileg
blanda af poppi-rokki og diskó og
nauðsynlegt er að útsetning bjóði
upp á eins mikinn hávaða og
hægt er. Þá verður textinn að
vera staðlaður og snúast um ást-
ina, og hann verður að vera þann-
ig úr garði gerður, að ekki skiptir
öllu máli hvort sungið er á ensku,
hebresku eða zulumáli.
Níutíu og níu dægurlagatexta
sem hafa verið skrifaðir síðan
Adam beit í eplið hafa snúist um
ástina og textahöfundar í Eurovi-
sion hafa ekki farið inn á nýjar
brautir í þeim efnum."
Philip Gillon heldur áfram:
„Þegar höfundar er að semja lag
sem á að fara í Eurovision verður
að hafa ýmislegt í huga. Meðal
annars að dómaramir eru ekki á
staðnum, heldur dreifðir út um
víðan völl. Auk þess eru dómar-
amir á hveijum stað einnig valdir
með athyglisverðar forsendur í
huga: Þeir mega ekki vera of
gamlir og ekki of ungir. Þeir verða
að standa í þeirri sælutrú að þeir
hafí vit á þessari tegund „tónlist-
ar“ og þeir verða að vera sann-
færðir um að áhorfendur séu dús
við dóma þeirra. Þeir em úr
ákveðnum hópi þjóðfélagsins á
hveijum stað: fólk sem enn telur
að það sé ungt í anda og njóti
ákveðinnar virðingar og trausts
popparanna hver á sínu heimili.
Fyrir þessa dómnefnd sem er sem
sagt með svipað fólk á hveijum
stað — er því höfundur að gera
Iagið sitt og þetta verður hann
endilega að hafa í huga.
Þá er komið að textanum, en
eins og allir vita er Eurovision
keppnin þannig samansett að
aðeins einn fulltrúi sýnir þá skyn-
semi að syngja á hebresku, en
hinir raula á framandlegum tung-
um eins og ensku, frönsku, þýzku,
sænsku, grísku og tyrknesku, svo
að nokkur séu nefnd. Að vísu fá
dómnefndimar í hendur þýðingu
á textanum, en það er náttúrlega
mjög erfitt að gera hvort tveggja
í senn, fylgjast með söngvaranum,
nema lagið og meðtaka boðskap
textans.
Þess vegna leystu ísraelar
þennan vanda á klókindalegan
hátt og með afbragðs góðum
árangri þegar þeir fluttu vinnings-
lög sín. Hvergi þarf að þýða
Hallelujah sem var nánast inn-
blásinn texti og síðar var dóm-
nefndinni sagt að A-Ba-Ni-Bi
væri stafrófssöngur bams og hún
varð alveg himinlifandi. Þótt text-
inn við „Sjá dagur kemur" sé ívið
flóknari en þessir tveir er óhætt
að spá lagi og texta farsæld og
stundarframa í Björgvin eftir
nokkrar vikur," segir poppskrif-
fínnurinn Philip Gillon að lokum.
hann undan þrýstingi mannfjöldans.
„Lögreglan lét stafí sína dynja á
okkur þrátt fyrir að við segðumst
vera að kafna," sagði maður frá
Kalkútta. „Við sögðum: „hleypið
okkur áfram annars deyjum við,“
og þá skyndilega var tálminn tek-
inn.“
Fjölskyldur tveggja, sem létust
hafa þegar lagt fram kæm á hendur
lögreglu fyrir að standa sig ekki í
starfí og missa stjóm á pílagrímun-
um. K.C. Banga, formaður samtaka
sjálfboðaliða, kvaðst hafa varað
lögregluna við hálftíma áður en
troðningurinn varð slíkur að menn
urðu undir, að kalla þyrfti út varalið
vegna þess að lögreglan væri að
missa stjóm á múgnum.
Hann kvað aðeins tuttugu lög-
reglumenn hafa verið á staðnum og
þeir hefðu horft hjálparlavsir á þegar
þúsundir manna féllu hver um ann-
an.
Flytjendur „Sjá dagur kemur“
frá Jsrael í Eurovision. .