Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö.
Stærsti
kvennaflokkurinn
Öryggismál á Noregshafi:
Tekst að halda
spennu í lágrm
Slök útkoma kvenna í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík
vegna borgarstjómarkosning-
anna í vor hefur að vonum vakið
upp umræður innan og utan
Sjálfstæðisflokksins um hlut
kvenna í þessum stærsta stjórn-
málaflokki þjóðarinnar. Þær hafa
ekki sízt orðið í hópi sjálfstæðis-
kvenna, sem að vonum leita skýr-
inga á þessum niðurstöðum. Nýj-
asta skoðanakönnun Hagvangs
gefur sjálfstæðismönnum einnig
tilefni til þess að huga vel að
þætti kvenna í starfi Sjálfstæðis-
flokksins. Þessi könnun sýnir
mun minna fylgi Sjálfstæðis-
flokksins meðal kvenna en karla
og verður forystusveit Sjálfstæð-
isflokksins óhjákvæmilega veru-
legt íhugunarefni. Auðvitað þýðir
ekkert að deila við dómarann.
Svo mikil þátttaka var í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins, að tæpast
er hægt að segja, að þar hafi
fámennur hópur fólks átt hlut að
máli. Hvað sem menn segja um
skoðanakannanir dylst engum að
þær gefa a.m.k. vísbendingu um,
hvert straumarnir liggja. En
niðurstaðan í prófkjörinu og
skoðanakönnun Hagvangs er
þeim mun merkilegri vegna þess,
að staðreynd er, að enginn stjórn-
málaflokkur hefur sýnt konum
jafn mikinn trúnað og Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur gert.
Fyrsta konan, sem kjörin var
á þing, var einn af stofnendum
Sjálfstæðisflokksins. Fyrsta kon-
an, sem gegndi embætti borgar-
stjóra í Reykjavík, var úr Sjálf-
stæðisflokki. Sömuleiðs fyrsta
konan sem gengdi ráðherraemb-
ætti. Sjálfstæðiskona skipar í dag
embætti heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra. Sjálfstæðiskona er
forseti efri deildar Alþingis.
Enginn vinstri flokkanna hefur
sýnt konum sambærilegan trúnað
og Sjálfstæðisflokkurinn.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem
hefur meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur, hefur sýnt í verki
vilja til jafnræðis kynjanna. Áhrif
kvenna í stjórnun borgarinnar
eru veruleg. í fréttaskýringu,
sem birtist í Morgunblaðinu í síð-
ustu vikum var m.a. bent á eftir-
farandi í þessu sambandi:
I borgarráði, sem vegur þyngst
valdastofnana í Reykjavík og fer
með framkvæmdastjórn málefna
borgarinnar, eru fimm fulltrúar.
Tveir af þrem fulltrúm Sjálfstæð-
isflokksins eru konur. Engin kona
á sæti í borgarráði af hálfu
minnihlutaflokkanna.
Konur úr röðum aðal- og vara-
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins hafa á hendi formennsku í
mörgum veigamiklum ráðum og
stjórnum borgarkerfisins. Þær
gegna formennsku í félagsmála-
ráði, hafnarstjóm, heilbrigðis-
ráði, umhverfismálaráði, stjórn
Borgarbókasafns, stjórn dagvista
og stjóm Bláfjallafólkvangs.
Fundir borgarstjórnarflokks
sjálfstæðismanna, sem hefur á
hendi stefnumarkandi umfjöllun
í borgarmálum, sækja bæði aðal-
og varaborgarfulltrúar. Það
vinnulag styrkir stöðu kvenna í
borgarstjórnarflokknum.
Hlutur kvenna í sveitarstjóm-
ar- og þjóðmálum hefur farið
vaxandi og þarf enn að eflast.
Hinsvegar fer afstaða fólks til
meginstefna í stjórnmálum ekki
eftir kynjum. Kona, sem hefur
borgaraleg viðhorf, er ekki sjálfri
sér samkvæm, ef hún greiðir
byltingarsinnuðum marxista at-
kvæði, svo dæmi sé tekið, á þeirri
einu forsendu að kona eigi í hlut.
Konur sem karlar hljóta að fylgja
fram stjórnmálalegri sannfær-
ingu sinni þegar gengið er að
kjörborði.
Það gildir heldur ekki sama
máli um sveitarstjórnarkosningar
og þingkosningar. í sveitarstjóm-
arkosningum vega sérmál við:
komandi sveitarfélags þyngst. í
þeim kosningum er fólk að leggja
línur bæði um stefnumörkun í
bæjar- eða borgarmálum til
næstu fjögurra ára og ekki síður
um vinnulag við heimastjómun
viðkomandi byggðarlags.
Reykvíkingar hafa til dæmis
samanburð í vinnulagi og vinnu-
árangri borgarstjómar næstliðið
kjörtímabil, þegar vinstri flokkar
fóm hér með völd „sællar minn-
ingar“, og markvissri stjómun
sjálfstæðismanna á líðandi kjör-
tímabili. Kjósendur svara þeirri
spurningu, framar öðru, er þeir
ganga að kjörborði í næsta mán-
uði, hvort þeir vilja hverfa aftur
til þess vinnulags er hér ríkti
1978-1982, eða styrkja þá borg-
armálastjórn, sem nú ræður ferð.
Þegar litið er til fenginnar
reynslu af vinnubrögðum sjálf-
stæðismanna í meirihluta borgar-
stjórnar er ljóst, að þær konur,
sem skipa borgarstjórnarlistann
og em fjölmargar, þótt einungis
ein kona sé í átta efstu sætum
listans, munu gegna mikilvægum
störfum á vegum borgarstjórnar
á næsta kjörtímabili alveg eins
og á því, sem nú er að ljúka.
Hlutur kvenna í atvinnulífinu og
raunar á öllum sviðum þjóðlífsins
er fyrir löngu orðinn svo mikill,
að það er meira en tímabært að
sú staðreynd endurspeglist með
eðlilegum hætti í sveitarstjómum
og á Álþingi.
eftirBjörn
Bjarnason
Allir, sem huga að sjóhernaði
og flotastefnu, beina athyglinni
sérstaklega að vexti og mætti
sovéska flotans. Á Kola-skaga
eru ekki aðeins bækistöðvar
fyrir langöflugasta flota Sovét-
manna — heldur einnig fyrir tvo
þriðju hluta af langdrægum eld-
flaugum Sovétmanna um borð í
kafbátum. Árásarkafbátar í sov-
éska Norðurflotanum eru alvar-
leg ógn við lífsnauðsynlegar
siglingaleiðir NATO yfir Átlants-
haf til ríkjanna í Vestur-Evrópu,
þeirra á meðal Noregs. Og það
er jafnt og þétt unnið að því að
auka sóknarmátt Norðurflotans.
Hér hefur verið vitnað í ræðu,
sem Káre Willoch, forsætisráð-
herra Noregs, flutti um öryggis-
mál lands síns mánudaginn 7.
apríl.
Norðmenn meta stöðuna þannig,
að sovéska flotanum sé ekki sér-
staklega beint gegn sér heldur eigi
hann að þjóna sovéskum stórveldis-
draumum um heim allan. En
Willoch benti á, að sagan sýni, að
þjóðir geti auðveldlega notað hern-
aðarmátt sinn með öðrum hætti en
talið hafi verið líklegt. Með hliðsjón
af auknum umsvifum Sovétmanna
hafa Norðmenn því gripið til ýmissa
ráðstafana hin síðari ár, er auðvelda
flutning á liðsauka frá Bandaríkjun-
um, Kanada og Bretlandi til lands-
ins á hættutímum. Og nú er það
yfirlýst stefna norsku stjórnarinnar
að hvetja öflug flotaveldi í hópi
NATO-ríkja til þess að láta meira
til sín taka á Noregshafí, þ.e. haf-
svæðinu fyrir austan og norðan ís-
land.
Um þetta sagði Willoch í fyrr-
greindri ræðu, að norska ríkis-
stjórnin teldi það skref í rétta átt,
að ýmsir bandamenn innan NATO
vildu með flotum sínum láta í ljós
vilja og getu til að staðfesta að
bandalagið hefði öryggishagsmuna
að gæta á Noregshafi. „Þetta er
ekki andstætt þeirri stefnu Nor-
egs,“ sagði forsætisráðherrann, “að
stuðla að stöðugleika, öryggi og ró
á norðurslóðum, þvert á móti. Til
þess að h^lda spennu í lágmarki
er nauðsynlegt að viðhalda jafnvægi
„Hver einstaklingur, þótl
sé, verður að fá að velja s
Spjallað við Alfreð Dam félagsráðgjafa
frá Stórstraumsamti í Danmörku
„KJARNI tnálsins er að hug-
myndafræðin í sambandi við
fatlaða hefur breytzt á undan-
förnum árum. Það er ekki lengur
talin rétt lausn að setja fólk á
stofnun, reynt er að efna til
smærri sambýliseininga og við
höfum almennt unnið eftir þeirri
stefnu að hver einstaklingur fái
notið sín — hversu þroskaheftur
eða fatlaður sem hann er. Því
að í hverjum einasta manni býr
meira en hann nýtir og því er
alveg sérstaklega' mikilvægt að
reyna að nýta þetta sem fram
að þessu hefur verið minni gaum-
ur gefinn, hjá fötluðum."
Þetta sagði Alfreð Dam, fram-
kvæmdastjóri félags og heilbrigðis-
deildar í Stórstraumsamti í Dan-
mörku. Hann var hér í boði Félags-
málaráðuneytisins og Þroskahjálp-
ar. Alfreð Dam skoðaði hér ýmis
sambýli fatlaðra og þroskaheftra
og stofnanir og kynnti einnig hvað
væri að gerast og hvað væri á
döfinni í þessum málum í Dan-
mörku. Hann sagði í stuttu spjalli
við Morgunblaðið að það hlyti að
vera æskilegt hveiju samfélagi,
ekki sízt í fámenm eins og a íslandi
að kraftar hvers fengju að njóta sín
og þótt allar skipulags- og fyrir-
komulagsbreytingar kostuðu pen-
inga hlyti það að skila sér aftur í
ánægðari og nýtari þegnum. — Sú
kenning hefur orðið ofan á að menn
eigi að lifa — ekki bara vera lifandi.
í mínum huga þýðir það einfaldlega
að við eigum ekki að láta duga að
búa til snotra umgjörð, svo sem