Morgunblaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDÁGUR 15. APRÍL1986
Verkamenn hjá Hafnarfjarðarbæ:
Allir fá des-
emberuppbótina
EINU orði var ofaukið i frétt af
kröfugerð Verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði á bls. 2 í
blaðinu sl. föstudag, 11. apríl,
þar sem sagði frá ósk félagsins
um viðræður við bæjaryfirvöld
um svonefnt „Bolungarvikur-
samkomulag". Þetta eina orð,
„ekki“, gjörbreytti merkingu
málsgreinarinnar.
Þar sagði að ekkihefði tekist að
ná samkomulagi um lækkun aidurs-
marks fyrir desemberuppbót. Þetta
er rangt - samkomulag tókst um
að lækka aldursmarkið, þannig að
nú njóta allir verkamenn hjá Hafn-
arfjarðarbæ desemberuppbótar.
Hún nemur 35% af mánaðarlaunum
í 18. launaflokki. Eftir fímmtán ára
starf hækkar uppbótin um 1% ár-
lega, þannig að eftir 20 ára starf
er desemberuppbót verkamanna
hjá Hafnarfjarðarbæ 40% af áður-
nefndum mánaðarlaunum.
Sólberg seldi
í Cuxhaven
SÓLBERG ÓF seldi í Cuxhaven
á mánudag. Verð var heldur í
lægri kantinum, en mikið fisk-
framboð hefur verið i Þýzka-
landi að undanfömu.
Sólbergið seldi alls 195,2 lestir,
mestmegnis karfa. Heildarverð var
6.440.900 krónur, meðalverð 32,99.
Selfoss:
Listi Alþýðuf lokksins við
bæj ar stj órnarkosning*arnar
Selfossi:
Alþýðuflokksfélag Selfoss
býður fram A-Iistann til bæjar-
stjómarkosninganna á Selfossi í
vor. Listinn er þannig skipaður:
1. Steingrímur Ingvarsson verk-
fræðingur, 2. Eygló Lilja Gránz
bankaritari, 3. Sigutjón Bergsson
rafeindavirki, 4. Katrín Bjama-
dóttir hárgreiðslukona, 5. Júlíus
Hólm Baldvinsson sölumaður,
6. Erla Eyjólfsdóttir póstmaður,
7. Sigurður Guðjónsson pípulagn-
ingamaður, 8. Asgrímur Kristó-
fersson verkamaður, 9. Sigríður
A. Jónsdóttir húsmóðir, 10. Heiðar
Snær Engilbertsson mælingamður,
11. Laufey Kjartansdóttir skrif-
stofumaður, 12. Jakobína Óskars-
dóttir meðferðarf., 13. Sigríður
Bergsteinsdóttir nemi, 14. Hreinn
Erlendsson verkamaður, 15. Sigur-
björg Gísladóttir afgreiðslumaður,
16. Jón I. Sigurmundsson yfír-
kennari, 17. Jónas Magnússon
framkvæmdastjóri, 18. Guðmund-
ur Jónsson skósmiður.
Alþýðuflokkurinn á einn fulltrúa
í núverandi bæjarstjóm, Steingrím
Ingvarsson verkfræðing, sem skip-
ar efsta sæti listans.
Sicr. Jóns.
Iðnaðarráðherra
á fundum erlendis
Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði við að koma „slösuðum** fyrir á slysstöðum og flytja björgun-
armenn.
Umfangsmikil björgnnaræfing í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum:
Um 250 manns unnu
að björgun 140 slasaðra
UM 400 manns af suðvestur
horni landsins tóku þátt i björg-
unaræfingu á vegum Landsam-
bands hjálparsveita skáta í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslum
um síðustu helgi. Hjálparsveit
skáta í Kópavogi stjórnaði æf-
ingunni, sem er einhver um-
fangsmesta björgunaræfing
sem efnt hefur verið til á
landinu.
Æfingin hófst á miðnætti á
föstudagskvöld með því að verk-
efnum var útdeilt til björgunar-
sveita og „sjúklinga". Klukkan
sex að morgni laugardags hófust
svo sjálfar björgunaræfíngamar.
Slys höfðu þá verið sviðsett á
tæplega 30 stöðum í sýslunum
tveimur með þátttöku um 50
„sjúklinga". Björgunarmönnum
var skipt í 20 manna hópa sem
ferðuðust milli „slysstaða" eftir
fyrirfram ákveðinni leið. Að sögn
Jóns Grétars Sigurðssonar for-
manns Hjálparsveitar skáta í
Kópavogi tókst æfingin í alla staði
mjög vel. „Verkefnin voru mjög
íjölbreytt, enda var hugmyndin
að æfa björgun við allar möguleg-
ar aðstæður, í byggð, fjalllendi
og ám,“ sagði hann.
Á sunnudeginum var sett á
svið á svið stórslys á um það bil
7 ferkflómetra svæði í Varma-
landi. Jón Grétar sagði að reynt
hefði verið að líkja eftir mann-
skæðum jarðskjálfta. Tæplega
140 manns lágu í valnum, og
unnu um 250 manns við björgun
þeirra. Jón Grétar sagði að
skyndihjálpin hefði komið mjög
vel út úr æfíngunni. Gefín var
einkunn samkvæmt sérstöku kerfí
og hlaut skyndihjálpin 4,8 stig af
6 mögulegum.
-*
m
Morgunblaðið/Kristmn Ulatsson
Um 140 manns léku slasað fólk f Varmalandi sl. sunnudag. Á
myndinni má sjá björgunarmenn flytja einn „sjúklinginn“ til
byggða.
ALBERT Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra er um þessar mundir í
Norræna húsið:
Sænska
grafík-
sýningin
framlengd
SÝNINGIN á sænskri grafík,
sem staðið hefur yfir í anddyri
Norræna hússins, hefur verið
framlengd um eina viku og lýkur
sunnudaginn 20. april næstkom-
andi.
Á sýningunni sýna 8 grafíklista-
menn, Lisa Andrén, Urban Engs-
tröm Ragnar von Holten, Sven-Erik
Johansson, Franco Leidi, Stefan
Sjöberg, Jukka Vánttinen og Gösta
Gierow. Á sýningunni eru 30 verk,
unnin með mismunandi tækni og
gefa góða mynd af sænskri nútíma-
grafík að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Norræna húsinu.
erindum ríkisstjórnarinnar er-
lendis að beiðni viðskiptaráð-
herra, sem gegnir formennsku í
ráðgjafarnefnd EFTA á fyrri-
hluta þessa árs.
Fundur ráðgjafarnefndarinnar
var haldinn í Genf dagana 8. og
9. apríl. Sendinefnd íslands fór utan
sunnudaginn 6. apríl. Nefndina
skipa Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra, formaður, Olafur Davíðs-
son frá Félagi íslenskra iðnrekenda,
Finnur Geirsson frá Verslunarráði
íslands, Guðmundur Garðarsson
frá Alþýðusambandi íslands, Magn-
ús Gunnarsson frá Vinnuveitenda-
sambandi íslands og Sveinn Bjöms-
son frá viðskiptaráðuneytinu.
Efni fundarins var um stöðu til-
tekinna þátta samstarfsins innan
EFTA og samstarfs EFTA-ríkjanna
við Evrópubandalagið auk almenn-
ra fundarstarfa. Albert Guðmunds-
son iðnaðarráðherra stjómaði fund-
um ráðgjafamefndarinnar.
Dagana 17. og 18. apríl mun
iðnaðarráðherra sitja ráðherrafund
OECD sem haldinn verður í París.
Sérstakur fundur verður haldinn
innan EFTA til undirbúnings þeim
fundi.
Iðnaðarráðherra er væntanlegur
heim laugardaginn 19. apríl.
(Fréttatilkynning.)
Birnufell í Fellum er gjörónýtt eftir brunanna á laugardag.
Morgunblaðið/ólafur
Egilsstaðir:
Ibúðarhúsið að Birnufelli í
Fellum brann til kaldra kola
Egilsstöðum.
ÍBUÐARHÚSIÐ að Birnufelli i
Fellum ásamt áfastri hlöðu og
fjósi brann til kaldra kola á laug-
ardag. Eldsins varð vart laust
eftir klukkan eitt og kom
slökkviliðið frá Egilsstöðum á
vettvang skömmu síðar, en eldur-
inn var þá orðinn svo magnaður
að ekkert varð við ráðið og brann
allt sem brunnið gat.
íbúðarhúsið á Bimufelli var tví-
lyft steinhús, reist árið 1914, ásamt
áfastri hlöðu og fjósi. Innveggir
íbúðarhússins voru viðarklæddir.
Bóndinn á Birnufelli, Ragnar
Olafsson, sem er einbúi, hafði geng-
ið til hvílu á efri hæð hússins eftir
hádegisverð á laugardeginum og
heyrði þá einhvem skarkala á neðri
hæð. Þegar Ragnar aðgætti hvetju
þetta sætti varð hann eldsins var á
neðri hæðinni, og var eldurinn þá
þegar svo magnaður að Ragnar
komst ekki í síma sem var á neðri
hæð hússins heldur varð að forða
sér út léttklæddur og skólaus.
Komst hann til næsta bæjar til að
gera viðvart um eldinn og kom
slökkvilið von bráðar á vettvang en
fékk ekkert að gert eins og áður
segir.
Ragnar missti alla búslóð sína í
brunanum, allgott bókasafn og
margt gamalla muna. Heyi í hlöðu
varð heldur ekki bjargað utan fá-
einna bagga. Hins vegar auðnaðist
Ragnari að bjarga sauðfé sem hýst
var í fjósi og einhveijum reiðtygjum
tókst honum einnig að bjarga. Bú-
slóðin var óvátryggð.
Eldsupptök eru ókunn, en Ragn-
ar sagðist telja líklegt að þau væru
af völdum rafmagns.
— Ólafur.
-»