Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 40
í40
MOlUaUNBLAÐII), ÞRIDJUDAGUR15.' APRÍL 1986
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur auglýsir
eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum fé-
lagsins í sumar.
Umsóknarfrestur er til 18. apríl nk.
Frekari upplýsingar eru í VR-blaðinu og á
skrifstofu félagsins í Húsi Verslunarinnar sími
687100.
Verzlunarmanna félag Reykja víkur.
Málverkauppboð —
Máfverkauppboð
7. málverkauppboð Gallerís Borgar í sam-
vinnu við Listmunauppboð Sigurðar Bene-
diktssonar hf. verður haldið sunnudaginn 20.
apríl nk. að Hótel Borg og hefst kl. 15.30.
Þeir sem vilja koma myndum inn á uppboðið
vinsamlegast komið þeim í Gallerí Borg fyrir
kl. 18.00 á morgun miðvikudag.
éraé&u'
B()H(í
Pósthússtræti 9.
Sími24211.
Fiskiskip
Höfum til sölu tæplega 200 rúmlesta stálbát
sem er útbúinn búnaði til frystingar um borð.
borð.
Eigendur humarbáta
Við óskum eftir humarbátum í viðskipti á
komandi vertíð. Veitum viðskiptabátum ýmsa
aðstoð svo sem vegna:
Veiðarfæra.
Fjármála.
Greiðslurekstrarkostnaðar.
Bókhalds og skipverjauppgjörs.
T ryggar greiðslur. Vönduð vinna.
Útvegsmiðstöðin hf., Keflavík, símar 4112,
4212 og 2330 (á kvöldin).
Djúprækjuveiðar
Útgerðarmenn — skipstjórar
Okkur vantar báta og skip í viðskipti nú
þegar. Frá okkur er stutt á rækjumiðin fyrir
Norður- og Austurlandi. Við kaupum rækju
hæsta verði.
Nánari upplýsingar í síma 96-52188 og á
kvöldin í síma 96-52128.
Sæblik hf.,
Kópaskeri.
Skatta- og útsvarsskrár
Reykjanesumdæmis
fyrir árið 1985
Skatta-, útsvars-, launa- og sölugjaldsskrár
allra sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi fyrir
árið 1985 liggja frammi frá 16. apríl til 29.
apríl að báðum dögum meðtöldum á eftir-
greindum stöðum:
I Kópavogi, Garðakaupstað, Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og á Seltjarnarnesi:
Á bæjarskrifstofum.
í Hafnarfirði:
Á skattstofu Reykjanesumdæmis frá kl.
10.00-16.00 alla virka daga, nema laugardaga.
í Bessastaða-, Mosfells-, Miðnes-, Vatns-
leysustrandar- og Hafnarhreppi:
Á skrifstofu sveitarstjórnar.
í Gerða-, Kjalarnes-, Kjósahreppi:
Hjá umboðsmönnum skattstjóra.
Hafnarfirði, 15. apríl 1986.
Skattstjórinn i Reykjanesumdæmi,
Sveinn Þórðarson.
Hafnarfjörður — Skipulag \
Samkvæmt ákvæðum skipulaga nr. 19/1964
er lýst eftir athugasemdum við tillögu að
deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Hellnahrauni,
sunnan Reykjanesbrautar og vestan Krísu-
víkurvegar, ásamt breytingartillögu á gild-
andi aðalskipulagi varðandi sama svæði.
Tillögurnar ásamt greinargerð liggja frammi
á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6,
Hafnarfirði frá 14. apríl til 9. júní 1986.
Athugasemdum við tillögurnar skal skila til
undirritaðs eigi síðar en 23. júní 1986 og
skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tillögunum.
Hafnarfirði, 11. apríl 1986.
Bæjarstjórinn íHafnarfirði.
Nýtt félagsheimili
í Skaftártunguhreppi verður vígt með sam-
komu 19. apríl nk. sem hefst í húsinu kl.
14.00. Allir burtfluttir Tungumenn velkomnir
svo og aðrir vinir og velunnarar sveitarinnar.
Um kvöldið verður almennur dansleikur,
hljómsveit Stefáns P. leikur.
Aldurstakmark 16 ára.
Nefndin.
Skotfélag Reykjavíkur
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 19.
apríl 1986 kl. 14.00 að Dugguvogi 1.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf.
Stjórnin.
Sóknarfélagar
Starfsmannafélagið Sókn auglýsir orlofshús
í Ölfusborgum, Húsafelli og Svignaskarði.
Umsóknarfrestur til 25. apríl. Þeir sem hafa
áhuga á skiptiferðum til Danmerkur hafi
samband við skrifstofuna sem fyrst.
Starfsmannafélagið Sókn.
Rabbkvöld
Síðasta rabbkvöld vetrarins verður í kvöld
þriðjudaginn 15. apríl. Húsið opnar kl. 20.30.
Fluguhnýtingar — veiðimyndir — veiðirabb.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemm tinefndin.
Fyrirlestur um
auglýsingar í Evrópu
Armand de Malherbe formaður Evrópu-
sambands auglýsingastofa flytur fyrirlestur
á hádegisverðarfundi sem haldinn verður
miðvikudaginn 16. apríl kl. 12.00 á Hótel
Esju 2. hæð.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og fjallar
m.a. um ný viðhorf í auglýsingamálum í kjöl-
far aukinna möguleika á útvarps- og sjón-
varpsauglýsingum um gervihnetti.
Þátttakendur eru beðnir að láta skrá sig í
síma 29588.
Samband íslenskra auglýsingastofa.
fíSK
r/ÐNt
FAGFELAG
FISKIÐNAÐARINS
boðartil ráðstefnu um
Framtíð íslensks
fiskiðnaðar
Dagskrá ráðstefnu Fiskiðnar þann 17. apríl
1986 haldinn á Hótel Hofi, Rauðarárstíg.
Kl. 9.15 Setning: HalldórÁsgrímsson,
sjávarútvegsráðherra
Kl. 9.45-10.15 Sigurður Markússon, frkv.stj.
Sjávarafurðad. Sambandsins
Kl. 10.30-11.00 Brynjólfur Bjarnason,
frkvstj. Granda
Kl. 11.15-11.45 HalldórÁrnason,
fiskmatsstjóri
Kl. 12.15-13.00 Matarhlé
Kl. 13.15-13.45 Friðrik Pálsson, forstj.
Sölumiðst. Hraðfrystihúsanna
Kl. 14.00-14.30 Eysteinn Helgason, verðandi
frkvstj. Iceland Seafood Corp.
Kl. 14.45-15.15 Rafn Sigurðsson, stjórnar-
form. Sölust. lagmetisins
Kl. 15.30-16.00 Almennar umræður
Fundarstjórar: Gunnlaugur Ingvarsson og
Jón Gunnarsson.
Þátttökugjald kr. 450,00.
Kaffiveitingar innifaldar.
Útivist
Ferðafélagið Útivist óskar eftir að taka á leigu
skrifstofuhúsnæði sem næst miðborg
Reykjavíkur. Uppl. á skrifst. Lækjarg. 6a, sím-
ar: 14606 og 23732.
Útivist.