Morgunblaðið - 15.04.1986, Síða 43
i M0RGÖMB3JAÐIÐ, ÞRIBJUDAGUft 15; A'PRDL 1986
im
speki
Hrútur (20. mars—19. apríl)
og Meyja (23. ágúst—23.
september).
I dag ætla ég að fjalla um
samband Hrúta og Meyja.
Eins og áður er einungis fjall-
að um hið dæmigerða fyrir
þessi merki. Allir menn eru
samsettir úr nokkrum
stjörnumerkjum og því setja
aðrir þættir strik í reikning-
inn.
Ölík merki
Þessi merki eru gjörólík og
eiga engan veginn saman.
Persónuleiki þeirra og viðhorf
til lífsins eiga fáa snertifleti.
Það sem hins vegar gæti
hjálpað sambandi þeirra er
að báðir aðilar hafi Tungl eða
Rísandi í merki hins.
Léítlyndur
Hrúturinn er lifandi og frekar
kærulaus. Hann er lítið fyrir
smámuni og það að vilja hafa
umhverfi í of mikilli röð og
reglu. Hann er drífandi og
ævintýragjarn, hefur gaman
af því að fást við ný við-
fangsefni en leggur litla
áherslu á öryggi. Spenna, líf
og athafnir eru hans ær og
kýr.
Smámunasöm
Hin dæmigerða Meyja er
jarðbundin og nákvæm. Hún
vill hafa umhverfí sitt í röð
og reglu, er dugleg og vinnu-
söm og leggur töluverða
áherslu á öryggi. Meyjan er
smámunasöm og hefur ákaf-
lega skarpa sjón á umhverfi
sitt og annað fólk. Hún tekur
eftir minnstu smáatriðum.
Þar sem hún hefur síðan þörf
fyrir röð og reglu, getur hún
orðið ergileg ef jafnvel
minnstu smáatriði eru ekki á
réttum stað. Margar Meyjar
eru hreinlegar og hafa sterka
fullkomnunarþörf. Ef um ást-
arsamband er að ræða milli
þessara merkja á það líkast
til rætur að rekja til aðlöðun-
ar milli þess ólíka: „Hann er
spennandi vegna þess að
hann er svo ólíkur öllu sem
ég þekki og á að venjast".
Það er hins vegar ólíklegt að
til slíks komi þar sem grund-
vallandi þættir í hvoru merki
fyrir sig fara sterklega í
taugamar á hinu.
Saga Hrútsins
Við skulum gefa Hrútinum
orðið: „Meyjan, ég þoli það
merki ekki. Ég var í boði hjá
Meyju um daginn og það var
ekkert venjulegt. Hún var
með tuskuna á lofti allan tím-
ann. Það var ekki nóg með
að hún losaði öskubakkann
eftir hveija sígarettu, heldur
lá við að hún þurrkaði hann
eftir hvem smók. Hún var
útum allt, hreinsandi og púss-
andi. Það kemur mér svo sem
ekkert við, það er hennar
vandamál, ekki mitt. Hins
vegar var hún eitthvað svo
smámunasöm og neikvæð að
ég kann ekki að meta hana.
Hún var sínöldrandi og alveg
rosalega gagnrýnin á allt og
alla, baktalandi fólk o.s.frv.
Æ, ég nenni ekki að tala um
hana, gemm frekar eitthvað
skemmtilegt, ég var alveg að
verða eins og Meyjan."
Saga Meyjunnar
„Hrúturinn? Hann er óþol-
andi. Ég man vel eftir honum.
Hann kom vaðandi inn, óboð-
inn. Ég kann ekki að meta
svona hávaðasama og óhefl-
aða menn. Heyrðir þú hlátur-
inn í honum? Hann var vað-
andi útum alla íbúðina. Ég
hélt að hann myndi brjóta
eitthvað. Svo dreifði hann
ösku útum allt. Hefur þú
annars heyrt að hann er skil-
inn? Hann var víst ákaflega
erfiður í sambúð. Tillitslaus
og eigingjam. Mér er sagt
að hann sé mjög erfiður í
skapi.“
X-9
£f 'Zo aðtaAMST'aJ/ra/sajín júr austr/
fcuiQtJsi, rerJar-/>anr> fyrst a<f f/nna i
© 1985 Klng Features Syndicate, Inc World rights reserved
DYRAGLENS
LJOSKA
TOMMI OG JENNI
— : : s 11 1 7 : s
EINHVECN METNAÐ-- - t-Æ&\
\ ANNAÐ TUNGOM'AL .
GETUfZ THLAÐ
ÚTLENSkV/
FERDINAND
SMAFOLK
YOU KNOU), BUILPINS A
ROCK UJALL LIKE TMI5
15 600P THERAPY...
EVEN IF IT'5 A U5ELESS
WALL, IT HELP5 JU5T TO
BE D0IN6 50METHIN6
I HAVE A FEELING THAT
W0RKIN6 ON THI5 ROCK
UJALL may even help me
TO 6IVE UPMYBLANKET...
IM 6LAD TO HEAR YOU
5AY THAT BECAU5E I
CEMENTED YOUK BLANKET
INTO THE UJALL í
Ég skal segja þér, að það Jafnvel þótt þetta sé
er lækning í því að hlaða gagnslaus veggur, þá er
svona steinveggi... gott að hafa eitthvað fyrir
stafni.
Ég hefi það á tilfinning-
unni, að það að vinna við
þennan steinvegg hjálpi
mér við að venja mig af
teppinu mínu ...
____• ' ‘ llHíéW* 5
Það var gott að heyra þig
segja þetta, því að ég múr-
aði teppið þitt inn i vegg-
inn!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Við sáum á sunnudaginn
hvernig Jón Baldursson og Sig-
urður Sverrisson í sveit Sam-
vinnuferða nældu sér í 300 kall
með því að dobla Þórarin Sig-
þórsson og Þorlák Jónsson
Deltumenn í þrcmur griindum í
þessu spili:
Norður
♦ G982
VG105
♦ G632
♦ K7
Vestur Austur -»
410 miM 4063
♦ D876 VK432
♦ D5 ♦ ÁK1074
♦ G98652 ♦ 3
Suður
♦ ÁK754
¥Á9
♦ 98
♦ ÁD104
En nú víkur sögunni í opna
salinn. Þar sátu fy'rir hiind
Samvinnuferða þeir Guðmundur
Pétursson og Valur Sigurðsson
í N/S gegn Guðmundi Sv. Her-
mannssyni og Birni Eysteinssyni
í A/V. Sagnirgengu:
Vestur Nordur Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
(J.S.H. V.S. B.E.
2 lauf Dobl
Pass 3 spaðar Pass
Pass Pass Pass
G.P.
1 lauf
2 títflar 2 spaðar
4 spaðar
Opnun Guðmundar Péturs-
sonar á laufi er sterk og dobl
Vals á tveimur laufum austurs
sýnir 5—8 punkta. Aðrar sagnir
eru eðlilegar.
Guðmundur Hermannsson
spilaði út tiguldrottningunni og
meiri tígli gegn fjórum sjkiðum.
Bjöm fékk á tíuna og staldraði,''
við um stund. Spilið var sýnt á
tjaldi í sýningarsal Hótels Loft-
leiða og áhorfendur furðuðu sig
mjiig á því hví Bjöm drægi það
svo mjög að spila tígli áfram!
Loks tók Bjöm ákvörðun og
spilaði laufi.
Nú voru ýmsir hneykslaðir,
því „Bjöm hefði átt að vita að
makker hans gæti ekki átt lauf-
ásinn eftir sagnir“. Eins og
stundum vill brenna við voru
áhorfendur full fljótir á sér að
dæma spilamennskuna, því vöm
Bjöms er hárrétt. Það er aukaat-
riði að Guðmundur Pétursson
kaus að toj)j>a spaðann og tapaði
þannig spilinu. Hitt er meira um
vert að skoða hvers vegna Bjöm
sjúlaði ekki tígli, „eins og virtist
blasa við“. Hann vissi að makker
sinn ætti einspil í trompi. Ef það
væri ómerkari hundur en tían
myndi hann örugglega upplýsa
spaðadrottninguna hjá sér með
því að spila áfram tígli. Guð-
mundur Pétursson yrði að stinga
með tíunni, og þar sem vestur
gæti ekki yfirtrompað yrði ekki
vandasamt að fara inn á blindan
á laufkóng og svína fyrir drottn-
ingu austurs. Ogenn eitt: jafnvel
þótt einspil makkers sé spaða-
tían dugir ekki að spila tígli.
Eini möguleiki sagnhafa er að
stinga frá með ásnum, fara inn
á blindan á laufkóng og gluða
út spaðagosa!
resió af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80